Fréttir
280 281 282 283 284 285 286 287 288 … 334 ›
Rannsókn á hlerunum lokið Í dag lauk meðferð hlerunarmálsins hjá Sýslumanninum á Akranesi, þegar niðurstöðurnar voru sendar til Ríkissaksóknara. Að sögn sýslumannsins á Akranesi er rannsókn lokið og voru 12 manns yfirheyrðir, en Jón Baldvin Hannibalsson og Árni Páll Árnason voru kallaðir fyrir í tvígang. Yfirheyrslurnar voru allar teknar upp á myndband til að viðhafa nákvæmari vinnubrögð, en þeirri aðferð er beitt í æ ríkari mæli, og þykir mikilvæg þegar upplýsingar eru viðkvæmar. Innlent 11.12.2006 18:19
Kaupþing spáir hærri stýrivöxtum Ný fjárlög sem voru samþykkt nú fyrir helgi gera bæði ráð fyrir töluverðri lækkun skatta og hækkun útgjalda. Greiningardeild Kaupþings banka segir að vegið sé töluvert nærri grunnafkomu ríkissjóðs sem muni hefna sín um leið og þenslan gengur niður. Deildin segir erfitt að finna betri fjárfestingu en breikkun þjóðvega. Tímasetningin sé hins vegar slæm og geti það, ásamt öðru, kallað á hækkun stýrivaxta. Viðskipti innlent 11.12.2006 17:11
Nýtt yfirtökutlboð í Corus Slagurinn um bresk-hollenska stálfyrirtækiið Corus harðnaði þegar brasilíski stálframleiðandinn CSN gerði fyirtökutilboð í fyrirtækið aðfaranótt mánudags. Tilboðið hljóðar upp á 4,9 milljarða punda eða um 667 milljarða íslenskra króna. Viðskipti erlent 11.12.2006 15:43
Einelti og nautnasýki í Latabæ Latibær hefur notið gífurlegra vinsælda síðustu misseri og farið sigurför um heiminn. Nú eru hins vegar byrjaðar að heyrast gagnrýnisraddir og ásakanir um að þættirnir hvetji jafnvel til eineltis. Dagný Kristjánsdóttir prófessor hefur skrifað um þættina og gagnrýnt þá harðlega. Hún segir neikvæða mynd af börnum lagða til grundvallar sögunni og sakleysi þeirra spillt með sykri og nautnasýki þrátt fyrir að boðskapurinn sé ekki neikvæður eða ofbeldisfullur. Innlent 11.12.2006 12:18
5,9 prósenta atvinnuleysi innan OECD Atvinnuleysi mældist 5,9 prósent að meðaltali innan aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) í október. Þetta er 0,1 prósents samdráttur á milli mánaða og 0,6 prósentum minna en á sama tíma fyrir ári. Viðskipti erlent 11.12.2006 12:06
Sanyo innkallar farsímarafhlöður Japanski hátækniframleiðandinn Sanyo hefur innkallað 1,3 milljónir rafhlaða fyrir farsíma undir merkjum Sanyo en óttast er að þær geti ofhitnað með þeim afleiðingum að kviknað geti í þeim. Gengi bréfa í fyrirtækinu lækkaði talsvert í lok síðustu viku og hefur ekki verið lægra síðan árið 1975. Viðskipti erlent 11.12.2006 11:15
Landsbankinn gefur út út 18 milljarða skuldabréf Landsbankinn hefur lokið við skuldabréfaútgáfu í Kanada fyrir 300 milljónir kanadíska dala eða 18 milljarða íslenskra króna. Útgáfan er á gjalddaga í janúar 2010. Viðskipti innlent 11.12.2006 09:56
Arababandalagið reynir að miðla málum Arababandalagið ætlar að reyna að miðla málum í þeirri stjórnarkreppu sem við blasir í Líbanon. Mörg hundruð þúsund manns komu saman í höfuðborginni Beirút í gær og kröfuðst þess að Fouad Saniora, forsætisráðherra landsins, afsalaði völdum að hluta til stjórnarandstöðunnar eða segði af sér. Liðsmenn Hizbollah og stuðningsmenn Sýrlendinga fóru fyrir mótmælendum. Talið er að svo fjölmenn mótmæli hafi ekki verið haldin fyrr í Líbanon. Erlent 11.12.2006 08:56
3 börn Fatah-liða myrt í morgun Byssumenn myrtu í morgun þrjú börn yfirmanns í leyniþjónustu Palestínumanna. Skotið var á þau fyrir utan skóla þeirra í Gaza-borg. Faðir barnanna, Baha Balousheh er sagður tengjast Fatha-hreyfingu Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, og mun hafa leitt aðför gegn Hamas-hreyfingunni fyrir áratug. Tvö börn til viðbótar særðust í árásinni og einn vegfarandi féll. Stuðningsmenn Fatah hafa hótað hefndum. Erlent 11.12.2006 08:33
Öflug sprenging í Tyrklandi Hluti fimm hæða byggingar í borginni Diyarbakir í Suður-Tyrklandi hrundi í öflugri sprengingu í morgun. Fjölskyldur trykneskra hermanna búa þar. Svo virðist sem miðstöðvarketill í byggingunni hafi sprungið. Vitað er að minnst tveir særðust í sprengingunni en óvíst hvort einhverjir týndu lífi. Björgunarmenn eru komnir á vettvang og leita fólks í rústunum. Erlent 11.12.2006 08:18
Viðræður hefjast á ný Viðræður sexveldanna svokölluðu um kjarnorkuáætlun Norður-Kóreumanna hefjast að nýju 18. þessa mánaðar að sögn kínverskra fulltrúa. Fundað verður í Peking. Viðræðurnar sigldu í strand fyrir ári síðan þegar fulltrúar stjórnvalda í Pyongjang gengu frá samningaborðinu vegna refsiaðgerða Bandaríkjamanna. Erlent 11.12.2006 08:06
54 týnt lífi í 3 eldsvoðum í Rússlandi Eldar kviknuðu í tveimur heilbrigðisstofnunum í Rússlandi í nótt. 9 týndu lífi á geðsjúkrahúsi í Síberíu en öllum var bjargað frá bráðum bana af sams konar sjúkrahúsi norðvestur af Moskvu. 54 hafa því týnt lífi í eldum á sjúkrahúsum í Rússlandi um helgina. Erlent 10.12.2006 18:20
Veikir útlendingar kosta Á þriðja þúsund útlendinga fá þjónustu á sjúkrahúsum hérlendis án þess að hafa tryggingar og greiða ekki fyrir þjónustuna. Heilbrigðisráðherra segir að þjónustuna verði að veita, en framkvæmdastjóri lækninga á Landsspítala háskólasjúkrahúsi segir að vinnuveitendur verði að bera ábyrgð á starfsfólki sínu. Innlent 10.12.2006 18:32
Kosningabaráttan hafin Síðasti þingfundur Alþingis fyrir jólaleyfi leystist upp í kosningafund á lokasprettinum og kallaði formaður Samfylkingarinnar ríkisstjórnina einhverja skæðustu frjálshyggjustjórn Vesturlanda. Þingmaður Framsóknarflokksins sagði þvert á móti að ríkisstjórnin væri velferðarstjórn sem bætt hefði hag allra landsmanna. Innlent 10.12.2006 18:11
Yunus tekur við friðarverðlaunum Nóbels Bangladessbúinn Mohammad Yunus veitti friðarverðlaunum Nóbels viðtöku við hátíðlega athöfn í Osló í Noregi í dag. Yunus og Grameen smálána-bankinn sem hann stofnaði deila með sér verðlaununum í ár. Erlent 10.12.2006 13:25
Vísar á rússnesk yfirvöld Marina Litvinenko, eiginkona KGB njósnarans Alexanders Litvinenko, segir margt benda til þess að rússnesk yfirvöld beri ábyrgð á dauða hans. Eitrað var fyrir Litvinenko með geislavirka efninu polon 210 í síðasta mánuði. Erlent 10.12.2006 10:05
Bátar, flugvélar, bílar og trampolín af stað í óveðri Smábátar sukku og binda þurfti einkaflugvélar niður á Reykjavíkurflugvelli vegna óveðursins í gær, en björgunarsveitir unnu linnulaust fram á nótt við að koma í veg fyrir tjón og slys á fólki. Mikið álag var á slökkviliði og björgunarsveitum fram eftir nóttu vegna veðursins. Jónas Guðmundsson hjá svæðisstjórn björgunarsveita á höfuðborgarsvæðinu segir um 70 björgunarsveitarmenn í Reykjavík og nágrenni hafa unnið við ýmis verkefni fram á nótt Innlent 10.12.2006 12:28
Óvænt heimsókn í 13. sinn Donald Rumsfeld, fráfarandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, fór í óvænta heimsókn til Íraks í gær. Þetta var í 13. sinn sem hann heimsótti bandaríska hermenn þar. Erlent 10.12.2006 10:02
Fyrsta næturgeimskot í 4 ár Næturhiminn á Flórída í Bandaríkjunum lýstist upp í nótt þegar geimflauginni Discovery var skotið á loft frá Canaveral höfða. Þetta var í fyrsta sinn í fjögur ár sem geimflaug var skotið á loft að nóttu til. Erlent 10.12.2006 09:59
8 týndu lífi í bruna í Síberíu Að minnsta kosti 8 týndu lífi og 6 brenndust illa þegar eldur kviknaði á geðsjúkrahúsi í Síberíu í Rússlandi í gærkvöldi. Rúmlega 200 manns voru í byggingunni þegar eldurinn kviknaði. Erlent 10.12.2006 09:51
Líkamsræktarstyrkir skattskyldir Líkamsræktarstyrkir vinnuveitenda og stéttarfélaga eru skattskyld hlunnindi og breyting á því yrði frávik frá meginreglum tekjuskattslaga. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra við skriflegum fyrirspurnum Björns Inga Hrafnssonar, varaþingmanns Framsóknarflokksins, um styrki til íþróttaiðkunar og heilsuræktar. Björn Ingi spyr í pistli á heimasíðu sinni í dag hvort ekki sé kominn tími til fyrir stjórnvöld að viðurkenna forvarnargildi hollrar hreyfingar og verðlauna þá með einhverjum hætti sem hugsa vel um heilsuna og spara þannig heilbrigðiskerfinu umtalsverða fjármuni til lengri tíma litið. Innlent 10.12.2006 09:27
Rafmagnstruflanir í Kjós og Hvalfirði í nótt Rafmagnstruflanir voru í nótt í Hvalfirði og Kjós. Stór hluti Kjósar var straumlaus til klukkan fimm í morgun og voru síðustu notendur ekki komnir með rafmagn fyrr en klukkan átta. Rafmagn komst á Hvalfjörðinn klukkan hálftvö í nótt. Ástæða bilunarinnar í Kjós var að staurar brotnuðu vegna ísingar við Grjóteyri og Miðdal. Innlent 10.12.2006 09:16
Undirbýr stofnun nýs dagblaðs Sigurjón M. Egilsson hefur sagt upp störfum sem ritstjóri Blaðsins og hefur óskað eftir að fá að hætta strax um áramót. Sigurjón sagði, í samtali við fréttastofu, að hann væri að undirbúa stofnun nýs dagblaðs, en vildi ekki greina frá því hverjir útgefendur þess yrðu. Innlent 9.12.2006 18:49
Gengu gegn ofbeldi 16 ungir karlmenn gengu niður Laugaveginn í dag til að hvetja karlmenn til að taka afstöðu gegn ofbeldi gegn konum. Einhverjum var misboðið vegna þessa framferðis og kallaði til lögreglu. Innlent 9.12.2006 18:46
Reykdalsvirkjun endurreist Í dag var hundrað ára afmælis Reykdalssvirkjunar minnst í Hafnarfirði. Virkjunin er með þeim fyrstu sem reist var hér á landi. Það var athafnamaðurinn Jóhannes Reykdal sem reisti virkjun á þessum stað fyrir rétt liðlega hundað árum. Innlent 9.12.2006 18:43
Málaferlin kostuðu 8 milljónir Hannes Hólmsteinn Gissurarson segir málaferlin gegn sér í Bretlandi hafa kostað sig 8 milljónir. Hann fagnar því að dómurinn frá í fyrra hafi verið ógildur og vonar að nú sé málinu lokið. Innlent 9.12.2006 18:39
Alnæmissamtökin styrkt Það hljóp á snærið hjá Alnæmissamtökunum á Íslandi nú síðdegis þegar Alnæmissjóður MAC afhenti samtökunum fimmhundruð þúsund króna styrk við hátíðlega athöfn í snyrtivörubás MAC í Debenhams Smáralindinni. Hver króna af seldum viva glam varalit rennur í sjóðinn. Styrkurinn kemur sér ákaflega vel að sögn framkvæmdastjóra samtakanna en hann verður nýttur í fræðslu og forvarnarverkefni. Til samanburðar má geta þess að fjárveitingar ríkisins til samtakanna á síðasta ári námu tveimur og hálfri milljón króna. Innlent 9.12.2006 18:38
6,6% íslenskra barna býr við fátækt Á fimmta þúsund íslenskra barna býr við fátækt, samkvæmt nýrri skýrslu sem forsætisráðherra lét taka saman að beiðni þingmanna Samfylkingarinnar. Þetta er óviðunandi ástand, segir Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, sem vill meðal annars skoða hækkun barnabóta. Innlent 9.12.2006 18:15
Starfsfólk reyndi ekki að bjarga konunum Talið er að kveikt hafi verið í sjúkrahúsi í Moskvu, höfuðborg Rússlands, þar sem fjörtíu og fimm konur létust í nótt. Slökkvilið borgarinnar deilir á starfsfólk fyrir að reyna ekki að koma fólkinu út. Þetta er mannskæðasti bruni í borginni í þrjú ár. Eldurinn braust út á fíkniefnadeild spítalans snemma í morgun og dóu konurnar fjörtíu og fimm úr reykeitrun þar sem eina færa útgönguleiðin var við læst hlið spítalans. Erlent 9.12.2006 17:59
Síðasti þingfundur fyrir jólafrí Alþingi kom saman til síðasta fundar síns fyrir jólaleyfi klukkan hálf tíu í morgun. Fyrir fundinum liggja þrjátíu mál. Búast má við að nokkur þeirra verði afgreidd sem lög frá Alþingi í dag. Innlent 9.12.2006 12:28
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent