Fréttir
273 274 275 276 277 278 279 280 281 … 334 ›
Krónan fellur eftir lækkað lánshæfismat ríkissjóðs Krónan hefur fallið um tæp þrjú prósent eftir að matsfyrirtækið Standard & Poor’s greindi frá því í dag að það hefði lækkað lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands. Matsfyrirtækið segir lækkanirnar endurspegla minnkandi aðhald í ríkisfjármálum í aðdraganda þingkosninga á næsta ári og líkur hafi aukist á harðri lendingu í efnahagslífinu. Moody´s matsfyrirtækið staðfestir hinsvegar gildandi mat. Fjárlög fyrir næsta ár sögð þensluhvetjandi og á skjön við peningamálastefnu Seðlabankans. Viðskipti innlent 22.12.2006 14:29
Icelandic Group selur VGI Icelandic Group hefur gert samning um sölu á öllum hlutabréfum í VGI ehf, sem framleiðir umbúðir og rekstrarvörur til matvælafyrirtækja. Söluverð nemur 270 milljónum króna. Samningurinn tekur gildi á Nýársdag og taka nýir stjórnendur við rekstri félagsins frá þeim tíma. Viðskipti innlent 22.12.2006 14:18
Kaupþing spáir lægri verðbólgu Greiningardeild Kaupþings segir flest benda til að verðbólga hafi náð hámarki. Vegna vísbendinga um að draga muni úr eftirspurn í hagkerfinu á næstu mánuðum muni draga úr verðbólguþrýstingi. Muni verðbólgumarkmiðið Seðlabankans verða náð á þriðja fjórðungi næsta árs. Greininardeildin spáir því sömuleiðis, að fasteignaverð muni lækka um 4 prósent á næsta ári. Viðskipti innlent 22.12.2006 13:12
Toyota stærsti bílaframleiðandi heims? Allt virðist stefna í að japanski bílaframleiðandinn Toyota taki fram úr bandaríska bílaframleiðandanum General Motors sem stærsta fyrirtækið á þessu sviði á næsta ári. Toyota ætlar að gefa í á nýju ári og auka framleiðslu á nýjum bílum um 4 prósent sem jafngildir því að fyrirtækið búi til 9,42 milljónir bíla á árinu. Viðskipti erlent 22.12.2006 10:25
Vodafone staðfestir fyrirtækjaskoðun á Indlandi Stjórn breska farsímarisans Vodafone hefur staðfest að fyrirtækið sé að íhuga að gera tilboð í indverska farsímafélagið Hutchison Essar. Vodafone mun bjóða allt að rúma 13,5 dali eða um 944 milljarða krónur í félagið. Með kaupunum er horft til þess að stækka fyrirtækið þar sem evrópski farsímamarkaðurinn er mettur. Viðskipti erlent 22.12.2006 09:56
Össur kaupir franskt stoðtækjafyrirtæki Stoðtækjafyrirtækið Össur hefur keypt franska fyrirtækið Gibaud Group fyrir um 132 milljónir Bandaríkjadala eða rúma 9,2 milljarða íslenskra króna. Gibaud Group er forystufyrirtæki í Frakklandi á sviði þróunar og framleiðslu á stuðningstækjum með sérstakri áherslu á spelkur og vörur til notkunar við blóðrásarmeðferðir (phlebology). Viðskipti innlent 22.12.2006 09:50
Barbikjúsósa bjargaði lífi manns Læknar eru forviða að Japani einn sé enn á lífi, eftir að hann villtist í fjallgöngu og lá úti í 23 daga með eina flösku af barbikjúsósu til matar. Öll líffæri fyrir utan heilann í honum voru hætt að virka, líkamshitinn var kominn niður í 22 gráður og púlsinn mjög veikur. Tveimur mánuðum eftir að hann fannst og var færður á sjúkrahús eru öll líffæri hans farin að virka á eðlilegan hátt og hann virðist ekki ætla að bera neinn skaða af. Erlent 22.12.2006 07:15
Háskólanemar með ólæti á Broadway Töluverð ölvun og læti voru á dansleik háskólanema á Broadway í gærkvöldi og í nótt og var hvað eftir annað kallað á lögreglu til að skakka leikinn þegar slagsmál brutust út. Lögregla náði að róa viðkomandi þannig að ekki þurfti að handtaka neinn, en flytja þurfti einn slasaðan á slysadeild, eftir að hann hafði dottið vegna ölvunar. Innlent 22.12.2006 07:20
Laus úr fangelsi eftir afneitun helfararinnar Breski rithöfundurinn David Irving kom aftur til Englands í gær, eftir að honum var sleppt fyrr út úr þriggja ára fangavist í Austurríki, fyrir að hafa neitað helförinni. Hæstiréttur Austurríkis breytti fangelsisdómi Irvings á þann veg að tveir þriðju hlutar hans eru skilorðsbundnir. Erlent 22.12.2006 07:30
Veruleg röskun á millilandaflugi Veruleg röskun er á millilandaflugi þótt nokkrar vélar fari frá landinu samkvæmt áætlun. Nokkurra klukkustunda seinkun er á öllum vélum frá Bandaríkjunum og brottför þónokkra Evrópuvéla tefjast til hádegis. Veður er þokkalegt á Keflavíkurflugvelli þessa stundina. Innlent 22.12.2006 07:25
Átök í Gazaborg Átök blossuðu upp í kvöld í Gazaborg nærri heimili utanríkisráðherra ríkisstjórnarinnar, Mahmoud al-Zahar. Kúlnahríð dundi á hverfinu og hart var tekist á samkvæmt vitnum á svæðinu. Ekki var þó vitað hvort að um væri að ræða átök á milli Hamas samtakanna og Fatah stuðningsmanna. Erlent 21.12.2006 23:49
Þakplötur á ferð og flugi um land allt Björgunarsveitir víða um land hafa verið ansi uppteknar í kvöld en veðurofsinn hefur verið mikill. Þakplötur hafa víða tekist á loft sem og fótboltamörk í Vík í Mýrdal. Björgunarsveitin á Akranesi er enn með vakt við höfnina en smábátar hafa losnað upp en þá tókst þó að festa aftur. Innlent 21.12.2006 23:32
Lögregla í Kína bannar stripplingahlaup Lögregla í Kína bannaði í dag fjöldahlaup sem átti að hlaupa á aðfangadagskvöld til þess að mótmæla of miklum umbúðum á víni. Ástæðan fyrir banninu var þó að allir sem áttu að taka þátt í því áttu að vera naktir. Erlent 21.12.2006 22:55
Atkvæðagreiðslu frestað til laugardags Sendiherra Rússlands hjá Sameinuðu þjóðunum sagði í kvöld að líklegt væri að atkvæðagreiðslu í öryggisráðinu vegna ályktunar um refsiaðgerðir vegna kjarnorkuáætlunar Írans yrði frestað til laugardags. Erlent 21.12.2006 22:42
Maður ákærður fyrir fimm morð Breskur maður, Steven Wright, var í dag ákærður fyrir morð á fimm vændiskonum í austurhluta Englands. Hann er grunaður um að hafa myrt þær á síðustu fimm vikum. Erlent 21.12.2006 22:35
Ingunn AK komin að landi á ný Landfestar togarans Ingunn AK gáfu sig í óveðrinu í kvöld og rak hann um höfnina um tíma. Rakst hann meðal annars í löndunarkrana hjá fiskimjölsverksmiðjunni og skemmdi hann en dansaði framhjá togaranum Bjarna Ólafssyni AK. Innlent 21.12.2006 22:04
Samkomulag nánast í höfn Viðræður um hugsanlegar refsiaðgerðir vegna kjarnorkuáætlunar Írans eru á lokastigi og samningamenn voru leggja lokahönd á tillögu sem öryggisráð Sameinuðu þjóðanna mun greiða atkvæði um á morgun. Erlent 21.12.2006 21:57
Vatnsmagn í Ölfusá minnkar Lögreglan á Selfossi sagði í kvöld að flóðið í Ölfusá væri að minnka samkvæmt mælum í ánni og er búist við því að það taki vatnsmagnið um sólarhring að fara niður fyrir varúðarmörk. Einnig hefur gengið mjög vel að dæla upp úr húsum sem flæddi inn í svæðinu. Innlent 21.12.2006 21:44
Bandaríski herinn ákærir átta hermenn Bandarísk heryfirvöld hafa nú kært alls fjóra vegna morða á allt að 24 óvopnuðum óbreyttum borgurum í bænum Haditha í Írak en atburðirnir áttu sér stað í nóvember á síðasta ári. Einnig eru fjórir til viðbótar kærðir fyrir að hafa tekið þátt í ódæðinu á annan hátt. Erlent 21.12.2006 21:16
Öxnadalsheiði lokuð vegna veðurs Lögreglan á Akureyri var rétt í þessu að senda frá sér tilkynningu um að vegurinn á Öxnadalsheiði hefði lokast. Starfsmenn vegagerðarinnar eru að störfum við að aðstoða bíla sem fastir eru en einn flutningabíla er fastur þversum á veginum. Innlent 21.12.2006 21:04
Bílslys í Hafnarfirði Árekstur varð á mótum Álftanesvegar og Hafnarfjarðarvegar, eða Engidalnum, um klukkan hálf átta í kvöld. Skemmdust báðir bílar það mikið að þurfti að draga þá af vettvangi. Ökumaður annars bílsins þurfti að fara á slysadeild til skoðunar en enginn meiddist alvarlega í slysinu. Innlent 21.12.2006 20:50
Átökin í Sómalíu breiðast út Stjórnarherinn í Sómalíu, sem studdur eru af Eþíópíu, hefur í dag barist heiftarlega við íslamska uppreisnarmenn sem stjórna meirihluta landsins. Er þetta þriðji dagurinn í röð sem barist er. Erlent 21.12.2006 20:43
Enginn árangur í viðræðum við Norður-Kóreu Samningamenn í sexveldaumræðunum svokölluðu sögðu í dag að enn hefði enginn árangur náðst í að reyna að telja Norður-Kóreumenn af kjarnorkuáætlunum sínum. Erlent 21.12.2006 20:31
Hermaður ákærður fyrir 13 morð Bandarískur hermaður hefur verið ákærður fyrir að hafa myrt 13 óvopnaða óbreytta borgara í borginni Haditha í Írak en lögfræðingar hans skýrðu frá þessu í dag. Erlent 21.12.2006 19:22
Sjálfstæðisflokkur samþykkir framboðslista í Reykjavíkurkjördæmum Framboðslistar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður og norður voru samþykktir á fundi í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík í dag. Geir H. Haarde, forsætisráðherra, verður í 1. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður og Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður, verður í efsta sæti á lista flokksins í Reykjavík norður í alþingiskosningunum í maí á næsta ári. Innlent 21.12.2006 18:32
Níðstöng veldur vandræðum Bóndinn í Otradal við Bíldudal hefur reist manni í plássinu níðstöng með áfestum kálfshausi og ósk um útlegð eða dauða. Þetta er gert til að hefna hvolps sem varð fyrir átta tonna dráttarvél fyrir ári síðan og drapst. Sá sem varð fyrir níðinu varð hefur kært málið til lögreglu sem morðhótun. Innlent 21.12.2006 18:28
Skriðuhætta ekki enn liðin hjá Talið er að skriðuhætta sé ekki enn liðin hjá í innanverðum Eyjafirði og þá sérstaklega við bæinn Grænuhlíð. Í ljósi þess er lagt til að fólk hafist ekki við á þeim bæjum sem í mestri hættu eru taldir, það er á svæðinu frá Æsustöðum að Arnarfelli, að báðum bæjum meðtöldum. Innlent 21.12.2006 18:21
Ekkert ferðaveður á Holtavörðuheiði Vegagerðin hefur sent frá sér viðvörun og segir að ekkert ferðaveður sé á Holtavörðuheiði og Vatnsskarði vegna mikillar hálku og stórhríðar. Innlent 21.12.2006 18:13
Kóraninn notaður við embættistöku Deilur hafa blossað upp á bandaríska þinginu vegna þess að nýkjörinn þingmaður Minnesota fylkis, Keith Ellison, ætlar sér að nota Kóraninn þegar hann sver embættiseið en Ellison er múslimi. Þingmenn hafa jafnan notað biblíuna við athafnir sem þessar þó svo að samkvæmt lögum sé þess ekki krafist. Erlent 21.12.2006 17:37
Neytendur fá kartöflu í skóinn frá Seðlabankanum Íslenskir neytendur hafa aldrei verið bjartýsnni en nú ef marka má Væntingavísitölu Gallup sem birt var í dag. Gildi vísitölunnar hækkaði um 17,3 prósent á milli mánaða og 8,5 prósent á milli ára og hefur aldrei verið hærri. Greiningardeild Kaupþings segir bjartsýnina skjóta skökku við á sama tíma og peningalegt aðhald Seðlabankans sé í hæstu hæðum. Sé bjartsýnin vísbending um þróun einkaneyslu veitir neytendum ekki af kartöflu í skóinn frá Seðlabankanum, að sögn deildarinnar. Viðskipti innlent 21.12.2006 16:27
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent