Fréttir
260 261 262 263 264 265 266 267 268 … 334 ›
Óljóst hver á að njóta hækkunarinnar Niðurgreiðslur til dagforeldra jukust um ríflega 85 milljónir króna um áramótin. Bæði dagforeldrar og foreldrar virðast ráðvilltir um hver eigi að njóta aukinnar niðurgreiðslunnar. Innlent 6.1.2007 12:36
Demókratar andvígir fjölgun hermanna Demókratar, sem nú eru í meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings í fyrsta sinn í tólf ár, leggjast eindregið gegn því að fjölgað verði í herliði Bandaríkjanna í Írak eins og búist er við að George Bush forseti leggi til í næstu viku. Erlent 6.1.2007 12:21
Offitulyf fyrir hunda komið á markaðinn Það er á allra vitorði að Bandaríkjamenn eru feitasta þjóð veraldar en hitt vita færri að hið sama gildir um bandaríska hunda. Rannsóknir sýna að allt að þriðjungur hunda í landinu er of þungur og fimm prósent glíma við sjúklega offitu. Erlent 6.1.2007 10:01
Óttast ólæti á Norðurbrú Lögregla í Kaupmannahöfn er í viðbragðsstöðu vegna fyrirhugaðra mótmæla við félagsmiðstöð róttæklinga á Norðurbrú í dag. Til óeirða kom í síðasta mánuði fyrir framan húsið eftir að yfirvöld ákváðu að róttæklingarnir yrðu að yfirgefa húsið þar sem búið var að selja það. Erlent 6.1.2007 09:59
Olíuverð hækkar á ný Eftir mikla dýfu undanfarna daga hækkaði heimsmarkaðsverð á olíu undir lok gærdagsins. Fatið af Norðursjávarolíu endaði í 55 dölum og 64 senti en var um tíma komið niður fyrir 55 dali. Vestanhafs var verðið á hráolíufatinu komið upp í 56 dali og 31 sent þegar mörkuðum var lokað þar í gær. Erlent 6.1.2007 09:57
Mótmæli í Mogadishu Upplausn ríkir í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, eftir að stjórnarher Sómalíu og eþíópískar hersveitir ráku herskáa íslamista á brott þaðan á dögunum. Í morgun mótmæltu hundruð borgarbúa hernámi Eþíópíumannanna með því að brenna hjólbarða og kasta grjóti. Erlent 6.1.2007 09:54
Demókratar andvígir fjölgun Demókratar, sem nú eru í meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings í fyrsta sinn í tólf ár, leggjast eindregið gegn því að fjölgað verði í herliði Bandaríkjanna í Írak eins og búist er við að George Bush forseti leggi til í næstu viku. Erlent 6.1.2007 09:52
„Ekki setja manneskju í þvottavélina.“ Bandarískt félag sem sérhæfir sig í því að berjast gegn lögsóknum hefur safnað saman lista yfir fáránlegustu viðvaranir á vörum á síðasta ári. 150 viðvaranir bárust til félagsins og sú sem bar sigur úr býtum hljóðaði svo: „Ekki setja manneskju í þvottavélina." Erlent 5.1.2007 22:50
Bush hættur að nudda aðra þjóðarleiðtoga George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, hefur lofað að gefa Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, ekki fleiri nudd. Frægt er orðið þegar Bush tók sig til á leiðtogafundi í fyrra og labbaði upp að Merkel og fór að nudda á henni axlirnar. Erlent 5.1.2007 22:45
Braust inn og kláraði barinn Þjófur í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum skildi eftir fleiri vísbendingar en hafði ætlað sér því hann fékk sér nokkra drykki úr barnum í húsinu sem hann braust inn í og drapst því næst áfengisdauða á stofugólfinu. Erlent 5.1.2007 22:37
Ban Ki-moon ræðir ástandið í Darfur Ban Ki-moon hitti í dag sérstakan erindreka Sameinuðu þjóðanna í Darfur sem og fulltrúa Afríkusambandsins til þess að reyna að blása lífi í friðarviðræður í Darfur. Eftir fundinn hvöttu þeir til þess að einhugur yrði varðandi á meðal aðila öryggisráðsins um hvað ætti að gera í Darfur. Erlent 5.1.2007 22:33
27 láta lífið í aurskriðum í Brasilíu Að minnsta kosti 27 létu lífið í aurskriðum í suðausturhluta Brasilíu í þessari viku og talið er að allt að 11 þúsund manns hafi þurft að flýja heimili sín. Varnarmálaráðuneytið þar í landi sagði að enn væri verið að leita að fórnarlömbum og því gæti tala látinna aukist töluvert. Erlent 5.1.2007 22:22
Heimatilbúnar auglýsingar í Super Bowl Tímaritið TIME virðist hafa haft rétt fyrir sér þegar það valdi Þig, eða hinn virka netnotanda, sem persónu ársins því ansi margar auglýsingar í Super Bowl, sem er úrslitaleikurinn í ameríska fótboltanum, verða gerðar af sigurvegurum ýmissa keppna sem auglýsendur standa fyrir. Þannig getur hver sem er tekið þátt í keppni um Chevrolet og Doritos auglýsingar og verða þær sem bera sigur úr býtum sýndar í hálfleik. Erlent 5.1.2007 22:15
Ákærur á föngum í Guantanamo birtar í febrúar Bandaríski herinn býst við því að birta ákærur á hendur hóps fanga í Guantanamo fangelsinu nú í febrúar og að réttarhöld, þar sem sönnunargöng gegn þeim verða sýnd, verði síðan í sumar. Hundruð manna hefur verið haldið í Guantanamo án dóms vegna gruns um að þeir séu hryðjuverkamenn. Erlent 5.1.2007 22:00
Sarkozy hvetur íbúa Korsíku til að sýna stillingu Innanríkisráðherra Frakklands, Nicolas Sarkozy, skoraði í dag á ungt fólk á Korsíku til þess að hemja sig og snúa baki við ofbeldi en í gær sprungu nokkrar sprengjur á eyjunni, sem vill sjálfstæði frá Frakklandi. Einn lést í árásunum og einn særðist síðan alvarlega þegar sprengja sem þeir voru að koma fyrir sprakk í höndunum á þeim. Erlent 5.1.2007 21:08
Bush skipar nýjan yfirmann leyniþjónustna í Bandaríkjunum George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, skipaði í dag fyrrum flotaforingjann Mike McConnell sem yfirmann bandarískra leyniþjónustna en hann tekur við starfinu af John Negroponte sem verður aðstoðarutanríkisráðherra. McConnell þessi vann áður fyrir stjórn föður Bush og þá var hann helsti aðstoðarmaður Colins Powells. Erlent 5.1.2007 20:51
Eftirliti með fjárútlátum ríkisins ábótavant Eftirliti með framkvæmd fjárlaga er ábótavant og hvergi í stjórnkerfinu er til listi yfir þá sem fá framlög úr ríkissjóði. Ríkisendurskoðandi vill bæta úr þessu og fór í fyrradag bréflega fram á það, við öll ráðuneytin, að þau taki saman upplýsingar um hverjir fá hvað og í hvað peningarnir fara. Innlent 5.1.2007 20:10
Bush hvattur til aðgerða gegn Íran Íran er á bakvið hið aukna ofbeldi í Írak og sér uppreisnarmönnum fyrir vopnum og birgðum. Þetta fullyrti einn helsti andstæðingur íranskra stjórnvalda á fundi nefndar um „Stjórnarskipti í Íran“ í kvöld. Maðurinn, sem heitir Alireza Jafarazadeh, hefur áður fullyrt ýmistlegt um Íran og það hefur jafnan reynst satt. Erlent 5.1.2007 20:05
Erkibiskup í Póllandi viðurkennir spillingu Nýskipaður erkibiskup í Varsjá í Póllandi viðurkenndi í dag að hann hefði unnið með leyniþjónustu landsins á þeim tímum sem kommúnistar voru við völd. Hann hafði áður neitað ásökunum þess efnis en þær raddir sem höfðu krafist afsagnar hans gerðust sífellt háværari. Erlent 5.1.2007 19:43
20 þúsund flýja ofbeldi í Tsjad Ofbeldi í austurhluta Tsjad, sem upprunnið er í Darfur héraði í Súdan, hefur neytt 20 þúsund manns til þess að flýja heimili sín undanfarnar tvær vikur en Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna skýrði frá þessu í dag. Erlent 5.1.2007 19:22
Negroponte aðstoðarutanríkisráðherra George Bush Bandaríkjaforseti gagnrýndi í dag hvernig staðið var að aftöku Saddams Hussein en sagði þó einræðisherrann fyrrverandi hafa fengið réttlátan dóm. John Negroponte, yfirmaður leyniþjónustustofnana ríkisins, var í dag tilnefndur í embætti aðstoðarutanríkisráðherra. Erlent 5.1.2007 19:26
Olíuverðslækkanir ósennilegar Heimsmarkaðsverð á olíu hefur fallið um tíu prósent í þessari viku og hefur ekki verið lægra í hálft annað ár. Ólíklegt er að íslenskir neytendur njóti lækkunarinnar vegna óhagstæðrar gengisþróunar. Innlent 5.1.2007 19:17
Rice varar Norður-Kóreu við Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að ef Norður-Kórea framkvæmdi aðra tilraunasprengingu á kjarnavopnum, væri landið að auka enn á einangrun sína í alþjóðakerfinu. Erlent 5.1.2007 19:14
Evrópu-reglugerð ógnar Cheerios Hugsanlegt er að vinsæla morgunkornið, Cheerios, verði bannað hér á landi ef reglugerð Evrópusambandsins, um takmarkanir á vítamínbættri matvöru, verður tekin inn í Evrópska efnahagssamninginn. Reglugerðin kom út rétt fyrir áramót og gæti haft áhrif á tugi vörutegunda hér á landi, meðal annars Cheerios sem er vítamínbætt og þykir bæði hollt og gott. Innlent 5.1.2007 19:06
Sátu fyrir innbrotsþjófum Tveir menn sátu fyrir innbrotsþjófum á heimili föður síns í morgun og leiddi fyrirsátið til handtöku þeirra. Þetta var þriðja ferð innbrotsþjófa í húsið, frá því um jólin, en þeir höfðu stillt upp þýfi í anddyrinu sem beið þess að vera sótt. Innlent 5.1.2007 18:09
Hugsanlegt að borgin kosti fleiri öryggismyndavélar Formaður borgarráðs segir borgarstjórn vilja ræða hugmyndir nýs lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins um fleiri öryggismyndavélar og segir hugsanlegt að borgin leggi til fjármuni í verkið. Innlent 5.1.2007 18:04
Offitulyf fyrir hunda komið á markað Matvælaeftirlit Bandaríkjanna hefur leyft offitulyf fyrir hunda en það virkar á þann hátt að það dregur úr matarlyst og upptöku líkamans á fitu. Lyfið, sem heitir Slentrol, á að hjálpa þeim bandarísku hundum sem glíma við offitu en talið er að um fimm prósent þeirra eigi við vandann að stríða. Erlent 5.1.2007 18:12
Litvinenko sakaður um fjárkúgun Alexander Litvinenko, fyrrum njósnari sem var eitrað fyrir í Lundúnum í nóvember síðastliðnum, ætlaði sér að fjárkúga rússneskan auðkýfing sem búsettur er í Lundúnum. Þetta fullyrti vinkona hans í samtali við fréttaþáttinn sextíu mínútur en hann verður sýndur í Bandaríkjunum á sunnudaginn kemur. Erlent 5.1.2007 17:43
Frelsaður eftir sex ár í gíslingu Fyrrum ráðherra í Kólumbíu, sem hefur verið í haldi mannræningja í sex ár, tókst í dag að komast undan þeim eftir björgunaraðgerðir kólumbíska hersins. Talið er að tugir uppreisnarmanna í FARC hafi látið lífið í aðgerðunum. Erlent 5.1.2007 17:32
Innbrotsþjófur í neyð Brotist var inn í söluskála Esso á Suðureyri aðfaranótt fimmtudags og var þjófurinn augljóslega í neyð því það eina sem hann hafði á brott voru 4 pakkar af Durex smokkum með ávaxtabragði. Eftirlitsmyndavél er á staðnum og náði hún að festa atburðinn á filmu. Þjófurinn reyndi svo lítillega að opna peningakassann á leið sinni út aftur, en þegar að það gekk ekki greiðlega fyrir sig, hvarf hann á braut. Innlent 5.1.2007 17:14
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent