Fréttir
240 241 242 243 244 245 246 247 248 … 334 ›
Lýsing af leiknum hraðaði akstrinum Sautján ára gömul stúlka var stöðvuð á Vesturlandsvegi í gær á 125 km hraða. Hún gaf lögreglu þá skýringu að hún hefði gleymt sér við lýsingu í útvarpinu á leik Íslendinga og Dana. Í hita leiksins gleymdi hún að fylgjast með hraðamælinum. Skömmu síðar var liðlega tvítugur piltur tekinn á sama vegi á 129 km hraða. Innlent 31.1.2007 14:52
Árni Þór hættir sem Sirkusstjóri Árni Þór Vigfússon, sjónvarpsstjóri á Sirkus, og tveir aðrir starfsmenn stöðvarinnar láta af störfum á næstu dögum vegna skipulagsbreytinga. Sjónvarpsstöðin hefur verið rekin sem sjálfstæð eining innan 365 miðla en eftir breytingarnar færist rekstur sjónvarpstöðvarinnar Sirkus undir Stöð 2. Dagskrá stöðvarinnar tekur ekki breytingum, að því er Ari Edwald, forstjóri 365 miðla segir í samtali við Vísi. Sirkus er afþreyingarstöð sem höfðar til yngri aldurshópa og er send út í opinni dagskrá. Innlent 31.1.2007 14:04
Hagnaður Boeing tvöfaldast Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing skilaði 989 milljóna dala, eða 67,8 millarða króna, hagnaði á fjórða ársfjórðungi í fyrra. Þetta er rúmlega tvöfalt meiri hagnaður en á sama tíma árið 2005 en þá nam hann 460 milljónum dala, jafnvirði 31,5 milljörðum dala. Viðskipti erlent 31.1.2007 13:01
Krefjast lögbanns og kæra úrskurð ráðherra Mikil óánægja er meðal íbúa í Mosfellsbæ með áætlanir um tengibraut um Álafosskvos sem áætlað er að flytji tíu þúsund bíla daglega. Í fréttatilkynningu frá fulltrúa íbúa segir að íbúar krefjist lögbanns á framkvæmdina. Íbúar og unnendur náttúru munu hittast klukkan 13 við gömlu ullarverksmiðjuna og flagga í hálfa stöng í mótmælaskyni við framkvæmdirnar. Innlent 31.1.2007 12:34
Aukin verðbólga í OECD-ríkjunum Verðbólga mældist 2,3 prósent að meðaltali á ársgrundvelli í innan aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) í desember í fyrra. Þetta er 0,3 prósentustiga hækkun frá því í mánuðinum á undan. Næstmesta verðbólgan var líkt og fyrr hér á landi í desember en þá mældist hún 7,0 prósent. Viðskipti erlent 31.1.2007 11:57
Milljónum dollara sóað í Írak Milljónir dollara sem bandaríkjamenn veittu til enduruppbyggingar í Írak hefur verið sóað, segja bandarískir endurskoðendur í skýrslu til Bandaríkjaþings sem varar við spillingu. Ónotaðar æfingabúðir fyrir lögreglumenn í Baghdad með risasundlaug er eitt af mannvirkjunum sem endurskoðendurnir benda á máli sínu til stuðnings. Milljarður íslenskra króna sem veittur hefur verið til uppbyggingar er enn ónotaður af íröskum stjórnvöldum. Erlent 31.1.2007 11:30
Staða einstakra smásölufyrirtækja metin Samkeppniseftirlitið er nú að athuga stöðu einstakra smásölufyrirtækja varðandi markaðsráðandi stöðu og hvort skaðleg undirverðlagning á tilteknum sviðum hafi átt sér stað. Upplýsinga hefur verið aflað frá smásöluverslunum um samningsskilmála við birgja. Niðurstöður athugunarinnar liggja ekki fyrir enn sem komið er, en aflað hefur verið umfangsmikilla gagna vegna greiningarinnar og er hún vel á veg komin. Innlent 31.1.2007 11:02
Akstursþjónusta fatlaðra í Skagafirði til einkaaðila Samningur um akstursþjónustu fatlaðra í Skagafirði var undirritaður í gær. Guðmundur Guðlaugsson sveitastjóri og Gísli Rúnar Jónsson frá Suðurleiðum ehf undirrituðu samninginn á Sauðárkróki. Með samningnum lýkur meira en tíu ára rekstri sveitarfélagsins sjálfs á akstrinum. Samningurinn hljóðar upp á rúmar sex milljónir króna árlega. Um er að ræða reglubundinn akstur á Sauðárkróki auk ferða út í sveit. Innlent 31.1.2007 10:34
Hagnaður Bakkavarar jókst um 111 prósent Bakkavör Group skilaði 9,5 milljarða króna hagnaði í fyrra. Þetta er 111 prósenta aukning á milli ára. Þá nam hagnaðurinn á fjórða og síðasta ársfjórðungi 2006 4,6 milljörðum króna. Þetta er 191 prósenta aukning frá árinu á undan. Afkoman er lítillega yfir spám greiningardeilda viðskiptabankanna. Viðskipti innlent 31.1.2007 09:57
Hráolíuverð lækkar lítillega Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði lítillega á helstu fjármálamörkuðum í dag eftir nokkrar hækkanir í gær og fór niður í rúma 56 bandaríkjadali á tunnu. Orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna birtir vikulega skýrslu um olíubirgðir landsins í dag. Greinendur gera ráð fyrir að olíubirgðir hafi dregist saman á milli vikna vegna kulda í Norður-Ameríku. Viðskipti erlent 31.1.2007 09:23
Metsöluhöfundurinn Sidney Sheldon er látinn Metsöluhöfundurinn Sidney Sheldon lést í gær, 89 ára að aldri. Hann dó úr lungnabólgu á sjúkrahúsi nálægt Palm Springs í Kaliforníu að sögn útgefanda hans Warren Cowan. Á ferli sínum skrifaði Sheldon mörg verðlaunaleikrit sem sýnd voru á Broadway, auk Hollywood kvikmyndahandrita, áður en hann sneri sér alfarið að bókaskrifum þegar hann var fimmtugur. Lífið 31.1.2007 09:23
Vodafone yfir væntingum Viðskiptavinum breska fjarskiptarisans Vodafone fjölgaði um 8,7 milljónir um allan heim á síðasta ársfjórðungi liðins árs. Þetta er talsvert meira en gert hafði verið ráð fyrir. Aukningin skýrist að mestu um aukna hlutdeild fjarskiptafyrirtækisins, sem er eitt það stærsta í Evrópu, á nýmörkuðum á borð við Afríku, Austur-Evrópu og í Miðausturlöndum. Viðskipti erlent 31.1.2007 09:05
Kjúklingur með andarfit Kólumbískur bóndi keypti sér egg á dögunum, sem er ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að kjúklingurinn sem kom úr egginu skartar sundfitjum að hætti anda. Líklega er að um stökkbreytingu sé að ræða. Erlent 30.1.2007 17:45
Microsoft kynnir nýtt stýrikerfi Microsoft-hugbúnaðarfyrirtækið kynnti í gær nýjustu kynslóð Windows-stýrikerfisins og hefur kerfinu verið gefið nafnið Vista. Búist er við að innan árs hafi yfir eitt hundrað milljónir tölvunotenda um allan heim tekið kerfið í sína notkun. Erlent 30.1.2007 17:43
Krónan rýrir traust á Kaupþingi Íslenska krónan er Kaupþingi fjötur um fót og hefur að sumu leyti rýrt traust á bankanum, segir Hreiðar Már Sigurðarson, forstjóri bankans. Það sé skylda að skoða alvarlega að taka upp evru í rekstri bankans og sé tíðinda að vænta um þá ákvörðun á aðalfundi í mars. Innlent 30.1.2007 18:49
Vopnahléið að mestu virt Allt hefur verið með kyrrum kjörum á Gaza-ströndinni í dag eftir að samkomulag náðist á milli stríðandi fylkinga um vopnahlé. Verslanir og skólar voru opnaðir á nýjan leik en starfsemi þeirra hefur legið niðri síðan á fimmtudaginn þegar sló í alvarlega brýnu á milli liðsmanna Hamas-samtakanna og Fatah-hreyfingar Mahmoud Abbas forseta. Erlent 30.1.2007 17:40
Á fimmta tug pílagríma liggur í valnum Á fimmta tug pílagríma lét lífið í fjölmörgum árásum í nágrenni Bagdad í dag, um það leyti sem Ashura-trúarhátíð sjía stóð sem hæst. Þar af voru sjö skotnir til bana þegar þeir voru á leið með rútu frá hinni helgu borg Karbala. Erlent 30.1.2007 17:38
Forstjóri MEST hættir vegna ágreinings Þórður Birgir Bogason forstjóri MEST ehf hefur óskað eftir að láta af störfum fyrir fyrirtækið. Ástæðan er ósætti um framtíðarsýn fyrirtækisins. Stjórn félagsins hefur gengið frá starfslokasamningi við Þórð og mun Bjarni Gunnarsson stjórnarformaður MEST ehf taka tímabundið við starfi forstjóra. Verið er að kynna breytingarnar á starfsmannafundi. Innlent 30.1.2007 10:29
Fíkniefnaleitarhundurinn Bassi allur Fíkniefnaleitarhundurinn Rocky Star Black Odin Bassi dó um helgina tíu ára gamall. Auk þess að vera leitarhundur vann Bassi um árabil við hlið þjálfara síns, Ísfirðingsins Þorsteins Hauks Þorsteinssonar fyrrverandi tollfulltrúa, við fíkniefnafræðslu til unglinga landsins. Innlent 30.1.2007 10:17
Loftslagið jarðar fer stöðugt hlýnandi Útblástur gróðurhúsalofttegunda hefur valdið umtalsverðri hækkun á hitastigi andrúmsloftsins og hafsins með þeim afleiðingum að sjávarborð hefur risið og heimsskautaísinn bráðnað. Þetta er afdráttarlaus niðurstaða skýrslu sem loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna kynnir á næstu dögum. Erlent 29.1.2007 19:02
Sprengdi upp bakarí Samtökin Heilagt stríð og al-Aqsa-herdeildirnar hafa bæði lýst yfir ábyrgð á sjálfsmorðsárás sem framin var í bænum Eilat í Ísrael í dag. Fjórir létu lífið í tilræðinu, sem er það fyrsta í landinu í níu mánuði. Erlent 29.1.2007 18:27
Forseti Sudan hundsaður í formannsembætti Enn hefur verið gengið framhjá Omar al-Bashir forseta Súdan sem næsta formanns Afríkusambandsins vegna átakanna í Darfur. Komið var að Bashir að taka við embættinu, en í stað hans er það John Kufuor forseti Ghana sem hlýtur heiðurinn. Afríkuríkið Chad hafði hótað að segja sig úr samtökunum ef Bashir yrði formaður þeirra. Erlent 29.1.2007 16:56
Hillary klaufaleg á blaðamannafundi Hillary Clinton forsetaframbjóðandi demókrata í Bandaríkjunum fékk óvænt viðbrögð á fjöldafundi í Iowa í Bandaríkjunum í gær, vegna ummæla sem hún viðhafði um hæfni sína til að meðhöndla illa menn. Hillary byrjaði fundinn á alvarlegum nótum og sagðist vera í forsetaslagnum af alvöru, hún ætlaði að vinna. Hún gagnrýndi George Bush Bandaríkjaforseta harðlega fyrir stríðið í Írak. Erlent 29.1.2007 16:37
Fyrsta málið staðfest hjá sakamáladómsstólnum í Haag Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn í Haag ákvað í dag að næg sönnunargögn væru gegn leiðtoga og liðsmanni í Kongólska hernum til að hefja fyrsta mál dómstólsins. Ákvörðunin staðfestir ákæru gegn Thomas Lubanga um að hafa skráð börn í herinn sem hermenn. Hún markar þáttaskil fyrir dómstólinn sem var komið á fót árið 2002 og er ætlað að vera varanlegur alþjóðlegur stríðsglæpadómstóll. Erlent 29.1.2007 15:37
Fimmtán manna áhöfn bjargað Sex skipverjum var bjargað úr spænskum togara um borð í breska herþyrlu við Scilly eyjur, 45 kílómetra frá Cornwall á Suðvesturodda Bretlands í dag. Sexmenningarnir urðu eftir fyrr í dag þegar níu manns var bjargað. Flogið var með þá til Brest í Norður Frakklandi. Fyrsta tilraun þyrlunnar til aðstoðar var að koma pumpu um borð í skipið sem er spænskt og heitir Mareton, en hjálparkall barst frá skipinu eftir að það fékk á sig sjó um 160 mílur vestur af Scilly eyjum. Erlent 29.1.2007 15:24
Kína varar við víni og konum Yfirvöld í Kína hafa varað ríkisstjórnina og starfsmenn Ólympíuleikanna við því að taka þátt í spillingu eða siðlausri hegðun þegar Ólympíuleikarnir fara fram í Peking árið 2008. Kommúnistaflokkurinn í Peking varaði embættismenn og opinbera starfsmenn við því að dreifa orku sinni í vín eða konur. Haft er eftir kínverska dagblaðinu, the China Daily, að fylgst verði með embættismönnum og hvort lífstíll þeirra sé nægilega ábyrgur. Erlent 29.1.2007 14:47
Verkfalli aflýst hjá British Airways Tveggja daga verkfalli flugliða hjá breska flugfélaginu British Airways hefur verið aflýst. Samningar náðust nú eftir hádegið milli félagsins og flugliða um aðalatriði deilunnar. Verkfallið var fyrirhugað frá miðnætti í kvöld til miðnættis á miðvikudagskvöld. Sættir um laun og veikindadaga tókust loks í dag. Þrátt fyrir að verkfallinu hafi verið aflýst er gert ráð fyrir einhverjum truflunum á flugi. Erlent 29.1.2007 14:07
Gámar fjarlægðir af strandaða flutningaskipinu Fjöldi björgunarbáta hóf í dag að fjarlægja meira en tvö þúsund gáma af flutningaskipinu MSC Napoli, sem strandaði undan ströndum Devon á Englandi 19 janúar. Risastór fljótandi krani er notaður til að færa gámana, sem innihalda allt frá barnableyjum til mótorhjóla. Verkið er bæði tímafrekt og vandasamt, en skipið má ekki breyta um stöðu þegar gámarnir eru teknir af því. Erlent 29.1.2007 13:54
Allt stefnir í verkfall hjá British Airways Allt útlit er fyrir að tveggja daga verkfall starfsmanna breska flugfélagsins British Airways hefjist á morgun. Flugfélagið hefur þegar aflýst 1.300 flugferðum, þar á meðal til og frá Íslandi. Erlent 29.1.2007 12:07
Þrenn samtök lýsa ábyrgð Þrenn samtök hafa lýst yfir ábyrgð á sjálfsmorðsárás sem framin var í Rauðahafsbænum Eilat í Ísrael í morgun. Þrír létu lífið í árásinni en hún var gerð í bakaríi í bænum, sem er fjölsóttur af ferðamönnum. Erlent 29.1.2007 12:04
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent