Gengur vel að aðstoða fólk með fíknisjúkdóm í apótekinu Tugir hafa nýtt sér skaðaminnkandi þjónustu í Reykjanesapóteki þar sem fólki er bæði hjálpað við að draga úr neyslu og veitt aðstoð í viðhaldsmeðferð. Lyfjafræðingur segir fyrirkomulagið hafa gefið góða raun og vill að það verði tekið upp á landsvísu. 23.1.2024 13:40
Mótmælendur mæta þingmönnum: „Almenningur fylgist með“ Nokkur hundruð manns hafa boðað komu sína á mótmæli á Austurvelli á sama tíma og þing kemur saman í dag. Skipuleggjandi segir aðgerðaleysi stjórnmálamanna gagnvart þjóðarmorði á Gasa ekki boðlegt 22.1.2024 13:01
Ein starfhæf fæðingardeild á Gasa Sameinuðu þjóðirnar ítreka ákall um vopnahlé á Gaza. Einungis ein fæðingardeild er starfhæf á svæðinu og starfsfólk segir ástandið grafalvarlegt. 19.1.2024 19:15
Rannsóknarnefnd um snjóflóðið í Súðavík Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hefur sent þingforseta beiðni um skipan rannsóknarnefndar um snjóflóðið á Súðavík. Algjör samstaða ríkti um málið þvert á flokka innan nefndarinnar. 19.1.2024 11:57
Um helmingi dýrara að leigja hjá hagnaðardrifnum leigufélögum Leiguverð hjá hagnaðardrifnum leigufélögum er ríflega sextíu prósent hærra en hjá þeim óhagnaðardrifnu samkvæmt nýrri leiguvísitölu. Vísitalan byggir á nýrri leiguskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem gefur mun betri mynd af leigumarkaðnum en áður. 18.1.2024 14:03
Fyrsta stig verðmætabjörgunar í gangi og næstu til skoðunar Lögreglustjórinn á Suðurnesjum lýsir aðgerðum til að tryggja hita á húsum í Grindavíkurbæ sem stórri verðmætabjörgun. Áfram verður unnið að því í dag auk þess sem sérfræðingahópur á vegum almannavarna er að kortleggja sprungur og hættur í bænum. 17.1.2024 11:14
Ekki búandi í Grindavík næstu mánuði og jafnvel ár Gosinu við Grindavík virðist lokið en prófessor í jarðeðlisfræði segir viðbúið að svipaðir atburðir endurtaki sig á næstu mánuðum og jafnvel árum. Grindavík sé ekki öruggur staður á meðan. 16.1.2024 12:09
Sprungur að stækka og líkur á nýjum gosopum Þrátt fyrir að dregið hafi úr gosvirkni eru líkur á að ný gosop opnist innan Grindavíkur og sprungur eru að myndast í bænum. Deildarstjóri eldvirkni og jarðskjálfta segir mikla hættu til staðar á svæðinu þar í kring og óvissu um framhaldið. 15.1.2024 12:00
VG hafi varið ráðherra Sjálfstæðisflokksins vantrausti Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ekki tímabært að tjá sig um boðaða vantrauststillögu stjórnarandstöðunnar á Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra en bendir á að Vinstri Grænir hafi varið ráðherra Sjálfstæðisflokksins vantrausti þegar á það reyndi. 9.1.2024 13:46
Gos í Grímsvötnum líklega í vændum Búast má við gosi í Grímsvötnum á næstu dögum eða vikum að mati eldfjallafræðings. Fluglitakóði yfir eldstöðinni var færður á gult í gær vegna óvenjulegrar skjálftahrinu en gosmökkurinn gæti haft áhrif á flugumferð. 5.1.2024 12:02