Tæpur þriðjungur vill Kristrúnu í forsætisráðuneytið Meirihluti þjóðarinnar, eða um 66 prósent, eru ánægð með stjórnarslitin samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Þá vilja flestir, eða um þriðjungur, að Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingar, leiði næstu ríkisstjórn og verði forsætisráðherra. 21.10.2024 19:41
Stefán hélt starfinu með naumindum Stjórn Ríkisútvarpsins hefur ákveðið að endurráða Stefán Eiríksson í stöðu útvarpsstjóra til fimm ára. Fimm stjórnarmeðlimir RÚV greiddu atkvæði með því að bjóða Stefáni endurráðningarsamning en fjórir vildu auglýsa stöðuna. 21.10.2024 18:48
Óvenjuleg aukin virkni við Geysi Óvenjuleg aukning á hveravirkni hefur orðið á Geysissvæðinu í Haukadag síðan á laugardag. Engar breytingar hafa komið fram á mælum Veðurstofunnar sem gætu útskýrt þessa virkni. 21.10.2024 17:48
Faðirinn hafi ætlað að skilja hann eftir á flugvellinum Kona sem sótti um að verða fósturforeldri sextán ára pilts sem vísað var úr landi í dag segir að brösuglega hafi gengið að fá að kveðja hann í úrræði ríkislögreglustjóra fyrir brottför piltsins. Hún óttast að ekkert bíði hans í Kólumbíu. 15.10.2024 23:54
Getur ekki orða bundist yfir útspili Vinstri grænna Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar segist ekki geta orða bundist þegar kemur að Vinstri grænum og pólitísku inntaki flokksins. 15.10.2024 21:46
Einn á bráðamóttóku er rafskúta og reiðhjól lentu saman Ökumaður rafskútu var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans í dag þegar rafskúta hans og reiðhjóllentu saman í Fossvogi í dag. 15.10.2024 21:13
Krúttlegasti innbrotsþjófur landsins Hundur kom hlaupandi með straur í eftirdragi að verslun Ormsson í Lágmúla í gær. Ekki vildi betur til en svo að rúða í inngangi verslunarinnar brotnaði. 15.10.2024 20:46
Lén skráð á laugardag ekki framboðslén Stefán Einar Stefánsson fjölmiðlamaður og fyrrverandi verkalýðsforingi segist ekki á leiðinni í framboð. Lénið stefaneinar.is var skráð á síðu ISNIC á laugardaginn var en ekki í þeim tilgangi að efna til framboðssíðu. 15.10.2024 20:33
„Tímapunkturinn finnst mér afleitur“ Varaformaður Vinstri grænna segir tíma Vinstri grænna með Sjálfstæðisflokknum liðinn. Hann sakar forsætisráðherra um trúnaðarbrest með því að hafa fellt ríkisstjórnina án þess að tala við formenn hinna stjórnarflokkanna. Þess vegna verði ráðherrar Vinstri grænna ekki með í starfsstjórn. 15.10.2024 18:59
„Hefur engan tilgang“ að setja nýtt fólk í starfsstjórn Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins hyggst sitja áfram í starfsstjórn Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra fram að kosningum. Eðlilegast sé að Framsókn og Sjálfstæðisflokkur skipti með sér verkum ráðherra Vinstri grænna. 15.10.2024 17:42