fréttamaður

Rakel Sveinsdóttir

Rakel sér um flokkana Atvinnulíf og Áskorun á Vísi.

Nýjustu greinar eftir höfund

Fyrir stjórnendur sem eru með nefið ofan í öllu

Það telst úreld stjórnunaraðferð í dag að ofstjórna. Að vera með puttana ofan í öllu sem starfsfólk gerir, fara yfir allt sem gert er, telja sig geta gert hlutina betur eða best, að engum sé treystandi nema þú sért inn í öllu og með tak á öllu.

Að skilja og jafna sig á tilfinningalegu framhjáhaldi

Tilfinningalegt framhjáhald er tegund af framhjáhaldi sem meira er fjallað um eftir að samfélagsmiðlar og spjallforrit komu til sögunnar.  Enda erum sítengd og getum falið „allt“ í símanum okkar.

Fjölskylduvænni vinnustaður: Hvetur fleiri verslanir til að loka klukkan fimm

„Kauphegðun fólks hefur breyst svo mikið síðustu árin en opnunartími sérverslana hefur ekki þróast í samræmi,“ segir Úlfar Finsen, eigandi Módern húsgagnaverslunarinnar. „Í dag er mesta traffíkin til okkar á milli klukkan eitt og þrjú á daginn en færri sem koma á milli klukkan fimm og sex.“

Frændur og ungir feður: Búa til ævintýri þar sem söguhetjan eru börnin sjálf

„Dóttir mín elskar að lesa. Og mér finnst mjög annt um þann tíma sem ég les með henni því þetta er ákveðin gæðastund. Hún vill samt mikið stjórna því hvað við erum að lesa og þar af leiðandi erum við oft að lesa sömu bækurnar. Ég vissi að hún myndi elska að eiga bók með nafninu sínu þar sem hún væri sjálf í aðalhlutverki,“ segir Sölvi Víðisson, annar stofnandi Ævintýri.is, en þar er hægt að panta sérhannaðar bækur fyrir hvert barn.

Apple Notes perri sem spilar við kærustuna yfir morgunmatnum

Egill Halldórsson, eigandi Wake Up Reykjavík, Górillu Vöruhúss og framkvæmdastjóri þess síðarnefnda, ætlar að gefa sér það að teljast yfir meðallagi fyndinn. Síðustu mánuði hafa hann og kærastan byrjað daginn á því að borða croissant saman og spila Backgammon áður en þau fara í vinnuna.

Yfir 50 lönd komin með fjar­vinnu­dvalar­leyfi en kröfurnar ó­líkar

Í kjölfar Covid fjölgar þeim löndum hratt sem gefa nú út sérstök fjarvinnudvalarleyfi sem gerir fólki kleift að búa í landinu í lengri eða skemmri tíma. Sem þýðir að fyrir þann hóp fólks sem kýs að starfa í fjarvinnu, er heimurinn að verða að valkosti sem aðsetur.

Allir geta stutt við sprota og mikið fjármagn sótt nú þegar

Á föstudaginn í þessari viku munu sjö sprotafyrirtæki kynna nýsköpunarverkefni sín fyrir fjárfestum sem lokaviðburð hraðalsins Hringiða sem KLAK stendur fyrir. Hringiða hefur það að markmiði að undirbúa græn nýsköpunarverkefni fyrir umsóknir um Evrópustyrki.

„Erum óhrædd við lausnir og reynum ekki að vera ofurforeldrar“

„Við erum óhrædd við lausnir og reynum ekki að vera ofurforeldrar eða ofurpar. Við nýtum okkur þá aðstoð sem við getum fengið því það er mikilvægt að átta sig á því að við getum ekki verið 100% í öllu,“ segir Hrefna Sif Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Tixly á Íslandi.

Sjá meira