Sérkennilegt að vera útilokuð vegna mála sem komi borginni ekki við Óformlegar meirihlutaviðræður félagshyggjuflokka í borgarstjórn halda áfram en oddvitarnir sem í hlut eiga halda spilunum þétt að sér. Oddviti Sjálfstæðisflokksins segir þetta meirihluta sem henni hugnist síst og segir sérkennilegt að vera í þeirri stöðu að vera útilokuð vegna mála sem komi borginni ekki við. 12.2.2025 12:14
Viðreisn ekki til í meirihlutasamstarf til vinstri Oddviti Viðreisnar segir flokkinn ekki tilbúinn til meirihlutasamstarfs til vinstri. Strandi viðræður flokka á vinstri væng eins og þær gerðu á hægri væng, séu þau tilbúin til að vinna að því að finna aðrar leiðir fyrir meirihlutann til að vinna saman. 11.2.2025 20:30
„Réttlæti er svakalega dýrt“ Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, segist höfða mál gegn ríkinu vegna þess að kerfið eigi ekki að geta komið fram við venjulegt fólk með þeim hætti sem það gerði í máli þeirra hjóna. Það sé ekki á allra færi að leita réttar síns. 11.2.2025 19:00
Endurgreiðsla og mögulegt gjaldþrot flokkanna andstætt markmiðum laganna Stjórnmálaflokkar verða ekki krafðir um endurgreiðslu á hundruðum milljóna króna styrkjum þrátt fyrir að þeir hafi ekki uppfyllt lagaskilyrði um að vera skráðir sem stjórnmálasamtök. Fjármálaráðherra tók þessa ákvörðun á grunni tveggja álitsgerða en hann segir fjármálaráðuneytið hafa brugðist skyldum sínum og að krafa um endurgreiðslu myndi ganga gegn markmiðum laga um styrkina. 7.2.2025 20:02
Verða ekki krafin um endurgreiðslu Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segir að ráðuneytið hafi brugðist vegna styrkveitinga til stjórnmálasamtaka, sem voru ekki rétt skráð samkvæmt lagabreytingum frá 2022. Ekki séu þó forsendur fyrir endurgreiðslukröfu. 7.2.2025 11:55
Rauð vaxtaviðvörun í á þriðja ár Rauð vaxtaviðvörun hefur verið í gildi á Íslandi í á þriðja ár. Þetta segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, sem fagnar því að Seðlabankinn hafi lækkað stýrivexti um fimmtíu punkta í gær en bendir þó á að stýrivextir standi í átta prósentum sem sé ansi mikið. 6.2.2025 20:12
„Þetta hörmulega og sorglega atvik endurspeglar langvinnan vanda“ Karlmaður sem sætir ákæru fyrir að hafa banað hjónum í Neskaupstað síðasta sumar átti að vera í nauðungarvistun þegar voðaverkið var framið. Heilbrigðisráðherra segir atvikið endurspegla langvinnan vanda kerfisins. Núverandi húsnæði undir geðþjónustu sé barn síns tíma. 6.2.2025 19:10
Nýr fundur boðaður eftir hádegi eftir „jákvæða framvindu“ Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir kennara, ríkis- og sveitarfélaga til fundar klukkan eitt í dag en fundarhöld stóðu fram á níunda tímann í gærkvöldi. 6.2.2025 11:49
Verkföllum aflýst eftir að samningi var landað hjá sátta Landssamband Slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og sveitarfélögin náðu að landa kjarasamningi á áttunda tímanum í gærkvöldi eftir langan og strembinn dag. Bjarna Ingimarssyni, formanni Landssambandsins, var að vonum létt yfir áfanganum. 6.2.2025 11:39
Stór hópur komist nú í gegnum greiðslumat eftir 50 punkta lækkun Stýrivextir Seðlabanka Íslands standa í átta prósentum eftir að peningastefnunefnd bankans lækkaði vexti um 0,5 prósentustig. Nefndin var einróma í ákvörðun sinni. Annar tveggja eigenda Mikluborgar telur lækkunina munu auðvelda stórum hópi að komast í gegnum greiðslumat en segir um leið að betur megi ef duga skal. 5.2.2025 20:03