Segir ummæli Trump um konur móðgun við alla Kamala Harris varaforseti Bandaríkjanna og forsetaefni Demókrata segir ummæli Donald Trump um að hann ætli að vernda konur „sama þótt þær vilji það eða ekki“ móðgun við alla. Harris segir þessi ummæli sýna að hann skilji ekki umboð kvenna, yfirráð þeirra eða rétt þeirra og getu til að taka ákvarðanir um sitt eigið líf, þar á meðal líkama sína. 1.11.2024 07:26
Þau skipa framboðslista Lýðræðisflokksins Lýðræðisflokkurinn hefur nú birt fullskipaða lista sína fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember. Flokkurinn býður fram í fyrsta sinn í öllum kjördæmum og er með listabókstafinn L. Flokkurinn er stofnaður af Arnari Þór Jónssyni lögmanni og fyrrverandi forsetaframbjóðanda. 1.11.2024 06:43
Greiða bætur vegna tækja sem eyðilögðust eða biluðu í rafmagnsleysinu RARIK mun greiða fólki bætur vegna tækja sem eyðilögðust í víðtæku rafmagnsleysi þann 2. október. Frá þessu er greint í tilkynningu frá RARIK og jafnframt að þau muni, ásamt TM, taka yfir öll samskipti og umsýslu vegna tjónatilkynninga. 1.11.2024 06:17
Fækka áramótabrennum í Reykjavík um fjórar Fækka á áramótabrennum í Reykjavík úr tíu í sex. Erindi þess efnis var samþykkt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í gær. Þær brennur sem lagt er til að verði lagðar af eru þær sem haldnar hafa verið við Rauðavatn, í Suðurfelli , Laugardal og Skerjafirði. 31.10.2024 12:58
Fá greitt 150 þúsund krónum minna en læknar í sömu stöðu Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Fíh, hefur sent inn kæru til Kærunefndar jafnréttismála vegna þess að forstöðuhjúkrunarfræðingar á tveimur sviðum Landspítalans fá greidd um 150 þúsund krónum lægri laun en forstöðulæknar á sömu sviðu. 31.10.2024 11:40
Eitt barn útskrifað af gjörgæslu Eitt barn hefur verið útskrifað af gjörgæslu Landspítalans vegna E. coli sýkingarinnar sem greindist á leikskólanum Mánagarði í síðustu viku. Ellefu eru inniliggjandi og enn fjögur á gjörgæslu. Greint er frá á vef RÚV. Rannsókn á E.coli smiti á leikskólanum Mánagarði beinist aðallega að mati sem börnin neyttu þann 17. október. Þá fengu börnin hafragraut, spaghettí og melónur í kaffitímanum. 31.10.2024 11:09
Telur ráðningu Jóns í ráðuneytið ekki koma til af góðu Sigursteinn Másson stjórnarmaður í Dýraverndarsambandi Íslandi, DÍS, segir það ólýðræðislegt og valdníðslu að taka ákvörðun í starfsstjórn um að gefa út nýtt starfsleyfi til hvalveiða. Jón Gunnarsson aðstoðarmaður forsætisráðherra i matvælaráðuneytinu segir umsóknina til afgreiðslu í ráðuneytinu. Það megi ekki tefja afgreiðslu auk þess sem það þurfi að tryggja fyrirtækjunum fyrirsjáanleika. Hann hafi verið enginn síðustu tvö ár. 31.10.2024 09:10
Þau eru í framboði fyrir Sósíalistaflokkinn Sósíalistaflokkurinn birti í gærkvöldi framboðslista sína í öllum kjördæmum. Búið var að tilkynna um flesta oddvita áður. Sanna Magdalena Mörtudóttir er pólitískur leiðtogi flokksins á sviði Alþingis og oddviti í Reykjavíkurkjördæmi suður. Flokkurinn bauð fyrst fram til Alþingis á landsvísu í síðustu kosningum 2021 en náði ekki manni inn. Flokkurinn á tvo menn í borgarstjórn og hefur boðið þar fram tvisvar og náð manni inn. 31.10.2024 07:46
Segja „fit to fly“ vottorð brjóta gegn siðareglum lækna Félag íslenskra heimilislækna hefur sent á félagsmenn sína og stjórnvöld ályktun og tilmæli um að heimilislæknar muni ekki gefa út svokölluð „fit to fly“ vottorð fyrir hælisleitendur sem á að vísa úr landi. Þau telji þau það stríða gegn siðareglum lækna og mannréttindasáttmálum. Þau vilja að reglugerð um vottorðin sé breytt. 31.10.2024 07:18
Ekkert gaman að heyra að allt sé að fara til fjandans Ungir umhverfissinnar bjóða á laugardaginn í matarveislu úr rusli og hrekkjavökuhátíð lífvera. Náttúruverndarfulltrúi hjá Ungum umhverfissinnum segir að samtökin vilji gera loftslagsmál heit aftur og draga úr efasemdum. 31.10.2024 07:03