Heimsmarkaðsverð á áli orðið ævintýralega hátt Heimsmarkaðsverð á áli fór í gær í 3.850 dollara tonnið. Þetta er langhæsta álverð sögunnar. Álmarkaðir hafa heldur róast framan af degi og verðið sigið niður, fór niður í 3.740 dollara í morgun og var komið niður undir 3.500 dollara um hádegisbil. 8.3.2022 12:24
Segir Bolungarvíkurgöng hafa bjargað Bjarnabúð Margir spáðu því að Bjarnabúð í Bolungarvík, ein elsta verslun landsins, myndi lognast út af með Bolungarvíkurgöngum þegar auðveldara varð fyrir Bolvíkinga að skreppa í búðir á Ísafirði. Reynsla kaupmannsins varð þveröfug; Ísfirðingar fóru að versla í Bolungarvík. 7.3.2022 21:41
Bolvíkingurinn Jakob Valgeir vill sameiningu við Ísafjörð „Ég skil svo sem ekki af hverju menn sameinast ekki Ísafirði. Styrkja byggðarlögin. Vera bara með eitt sveitarfélag á norðanverðum Vestfjörðum,“ segir útgerðarmaðurinn og Bolvíkingurinn Jakob Valgeir Flosason, framkvæmdastjóri Jakobs Valgeirs ehf., stærsta fyrirtækis Bolungarvíkur. 7.3.2022 12:18
Hjúkrunarfræðingurinn sem elskar að vera sauðfjárbóndi „Ég er sem sagt hjúkrunarfræðingur og vinn hérna á Bergi, hjúkrunarheimilinu. En svo er ég með 130 ær en er í samkrulli með tengdapabba, sem er með 250," segir Svala Björk Einarsdóttir, sem er í hópi fjölmargra sauðfjárbænda í Bolungarvík. 5.3.2022 15:15
Myndskeið sýnir stærstu flugvél heims gjörónýta Myndskeið, sem sagt er vera úr fréttaútsendingu rússneska ríkissjónvarpsins, virðist taka af allan vafa um það að stærsta flugvél mannkynssögunnar, hin úkraínska Antonov 225, hefur gjöreyðilagst. Myndirnar sýna það miklar skemmdir á risaþotunni að erfitt er að ímynda sér að henni verði flogið framar. 4.3.2022 11:22
Loðnukvótinn aukinn á sama tíma og verðmætasta veiðin er hafin Íslenskar loðnuútgerðir fá um fimmtíu þúsund tonna viðbótarkvóta í loðnu þar sem Norðmönnum tókst ekki að klára sinn kvóta áður en veiðitímabili þeirra á Íslandsmiðum lauk. Þetta gerist á sama tíma og verðmætasti þáttur loðnuvertíðarinnar, hrognavinnslan, er að hefjast. 3.3.2022 23:30
Mjólkurvinnslan Arna sýnir að ekki þarf allt að vera í Reykjavík Mjólkurvinnslan Arna hefur á einum áratug vaxið upp í það að verða næststærsta fyrirtæki Bolungarvíkur, með yfir fjörutíu manns í vinnu. Stofnandinn segir þetta sýna að það þurfi ekki allt að vera í Reykjavík, það sé vel hægt að byggja upp öflugt fyrirtæki úti á landi. 2.3.2022 22:02
Úkraínumenn segjast ætla að endursmíða Drauminn Flugheimurinn virðist hafa misst stærstu flugvél heims, úkraínsku þotuna Antonov 225, sem fullyrt er að hafi eyðilagst í árás Rússa á heimaflugvöll hennar í Úkraínu. Ný gervihnattamynd virðist þó sýna stél hennar óskemmt. Risaþotan var aðeins til í einu eintaki og kom nokkrum sinnum til Íslands. 1.3.2022 22:20
Segist finna til ábyrgðar að stýra stærsta fyrirtæki sjávarbyggðar Útgerðarmaðurinn Jakob Valgeir Flosason hefur byggt upp stærsta atvinnufyrirtæki Bolungarvíkur á undanförnum árum með milljarða fjárfestingum í útgerð og fiskvinnslu. Hann segist finna til ábyrgðarinnar og sé ekki á leiðinni í burtu með kvótann. 28.2.2022 23:10
Illviðrin úr Jökulfjörðum brjóta fyrst á húsi Einars „Þegar norðaustanáttin kemur hér úr Jökulfjörðunum þá er fyrsti fasti punkturinn sem hún brýtur á húsið mitt. Maður finnur stundum fyrir þessu en allt er þetta þess virði,“ segir Bolvíkingurinn Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, sem býr í einu ysta húsinu við sjávarbakkann í Bolungarvík. 28.2.2022 12:22