„Allt of snemmt að afskrifa Grindavík“ Formaður bæjarráðs í Grindavík segir stöðuna vegna eldgossins sem hófst í gær mun betri en í fyrstu leit út fyrir. Ljóst sé að varnargarðar hafi bjargað byggðinni oftar en einu sinni. 30.5.2024 17:01
Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Flugvallayfirvöld á Grænlandi hafa tilkynnt um seinkun á opnun nýs alþjóðaflugvallar við bæinn Ilulissat við Diskó-flóa. Ný tímaáætlun gerir ráð fyrir að hægt verði að taka völlinn í notkun á fjórða ársfjórðungi 2026, eftir tvö og hálft ár. 30.5.2024 13:05
Gæti haft gríðarlega þýðingu fyrir Ísafjörð Nærri sextíu stiga heitt vatn er fundið á Ísafirði. Á næstu vikum skýrist hvort magnið dugar til að kynda öll hús í höfuðstað Vestfjarða. Fyrir vestan er heitavatnsfundinum líkt við gullfund en Orkubú Vestfjarða neyddist í vetur til að brenna olíu fyrir yfir hálfan milljarð króna. 27.5.2024 20:40
Segir samstöðu lykilinn að jarðgangagerð Færeyinga Algjör samstaða um jarðgangagerð er lykillinn að samgöngubyltingu Færeyja, segir ráðherrann Høgni Hoydal, og segir Hvalfjarðargöngin hafa reynst Færeyingum innblástur. Og það eru ekki Danir sem borga. 23.5.2024 21:55
Skipsbrak varpar ljósi á harmleik undan Vestfjörðum fyrir 72 árum Brak sem kom í troll íslensks togara í fyrra hefur núna leitt til þess að búið er að varpa ljósi á 72 ára gamlan harmleik, um örlög fimm norskra selveiðiskipa, sem hurfu sporlaust með 78 manns milli Íslands og Grænlands um páskana árið 1952. 22.5.2024 21:41
Tækifærum fækkar til að sjá svona flugvélar fljúga Flugáhugamönnum bauðst í kvöld að skoða eldgamlar herflugvélar úr seinni heimsstyrjöld á Reykjavíkurflugvelli. Þrjár flugvélanna fljúga áleiðis til Bretlands í fyrramálið. 21.5.2024 23:30
Herþristar á níræðisaldri til sýnis á Reykjavíkurflugvelli Gamlar herflugvélar úr síðari heimsstyrjöld af gerðinni DC-3, eða C-47 Douglas Dakota, verða til sýnis á Reykjavíkurflugvelli í kvöld. Þær standa á flughlaðinu norðan við gamla Loftleiðahótelið og verður svæðið opið almenningi milli klukkan 18 og 20. 21.5.2024 14:47
Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Fimm gamlar herflugvélar úr síðari heimsstyrjöld af gerðinni DC-3, eða C-47 Douglas Dakota, millilenda á Íslandi á næstu dögum á leið sinni frá Norður-Ameríku til Evrópu. Þar munu þær taka þátt í minningarathöfnum í tilefni þess að 80 ár verða liðin frá innrásinni í Normandí, D-deginum 6. júní 1944. 20.5.2024 15:43
Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Lögþing Færeyja hefur fallið frá áformum um að leggja á 4.500 króna aðgangseyri, 225 danskar krónur, á alla erlenda ferðamenn sem heimsækja eyjarnar. Í staðinn verður tekið upp gistináttagjald, 20 krónur danskar, um 400 krónur íslenskar, fyrir hverja nótt, þó að hámarki tíu nætur, eða um 4.000 krónur. 19.5.2024 11:20
Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Ummæli borgarstjóra Þórshafnar, Heðins Mortensen, um að hann vildi bjóða Atlantshafsbandalaginu að byggja nýjan alþjóðaflugvöll í Færeyjum, komu sem sprengja inn í færeysk stjórnmál. Bæði lögmaður Færeyja, Aksel V. Johannesen, og utanríkisráðherrann Høgni Hoydal, hafa brugðist hart við og sagt þessa hugmynd ekki koma til greina. 17.5.2024 11:03