Ópíóðar í fráveituvatni og einstakt samband stúlku og æðarfugls Bæjarráð Grindavíkur hefur frestað niðurrifi íþróttamiðstöðvarinnar Hópsins og skoðar nú að breyta húsinu í safn. Forseti bæjarstjórnar vill losna við lokunarpósta og hleypa öllum inn í bæinn á næstunni. Við förum til Grindavíkur í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. 8.9.2024 18:17
Snjókoma á Norðurlandi og ekki mælt með ferðalögum Appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir allt Norðurland vegna hvassviðris og talsverðrar snjókomu á mánudagskvöld og út þriðjudaginn. Samgöngutruflanir eru líklegar og Veðurstofan mælir ekki með ferðalögum. 8.9.2024 16:35
Sturluð stemning á tónleikum Skálmaldar undir norðurljósunum Um 1.500 gestir lögðu leið sína í Heimskautsgerðið á Raufarhöfn í gær á stórtónleika hljómsveitarinnar Skálmaldar. Skippuleggjandi segir stemninguna hafa verið ólýslanlega. 8.9.2024 14:04
Skaut þrjá til bana á landamærunum Þrír voru skotnir til bana á landamærum Jórdaníu og Vesturbakkans í dag. Ísraelski herinn segir hina látnu hafa verið ísraelska, almenna borgara. Þeir voru allir karlmenn á sextugsaldri. 8.9.2024 13:51
Ljósanæturuppgjör og stórtónleikar Skálmaldar Töluvert var um ofbeldisbrot og unglingadrykkju á Ljósanótt í Reykjanesbæ um helgina. Tilkynnt var um fjórar líkamsárásir og einn hátíðargestur kýldi tvo lögreglumenn í andlitið. Gestir Októberfest í Reykjavík voru töluvert rólegri. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. 8.9.2024 11:55
Krefjast rannsóknar eftir að ung kona var skotin í höfuðið Sameinuðu þjóðirnar krefjast þess að andlát bandarískrar konu sem skotin var til bana á Vesturbakkanum verði rannsakað ofan í kjölinn. Ísraelskir hermenn eru sagðir hafa skotið hana í höfuðið þar sem hún var stödd við friðsöm mótmæli. 7.9.2024 22:57
Farið lent en fararnir urðu eftir Mannlaust Starliner-geimfar flugvélarisans Boeing lenti seint í gærkvöldi í Bandaríkjunum. Geimferðin er sú fyrsta sem Boeing leggur í og reyndist ákaflega misheppnuð. Geimfararnir tveir, sem dvalið hafa í flauginni í rúma þrjá mánuði eru ekki á leið til jarðar í bráð. 7.9.2024 21:00
Þjóðarátak gegn ofbeldi og hjartnæm kyrrðarstund Forseti Íslands kallar eftir samstilltu þjóðarátaki gegn ofbeldi í kjölfar andláts Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sem stungin var til bana á Menningarnótt. Opin kyrrðarstund var haldin í Lindarkirkju í dag þar sem gestir heiðruðu minningu Bryndísar Klöru og veittu sorg sinni útrás. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. 7.9.2024 18:03
Tvöfalda viðbúnað á Ljósanótt í kvöld Tilkynnt var um þrjár líkamsárásir á Ljósanótt tónlistar- og bæjarhátíð í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Búist er við talsvert fleiri gestum á hátíðinni í kvöld og viðbúnaður lögreglu verður meira en tvöfaldaður miðað við það sem var í gær. 7.9.2024 12:37
Hraun gæti náð Reykjanesbraut og umdeild auglýsing Play Eldfjallafræðingur telur líkur á að hraun nái að Reykjanesbrautinni á nokkrum klukkutímum komi til nýss eldgoss á Reykjanesskaga. Mögulega þurfi að hefja vinnu við að vernda innviði norðan við síðustu gosstöðvar. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. 7.9.2024 11:57