Strætóáskorunin sem sumir þurfa að standast til að fá bílprófið Formaður Ökukennarafélagsins telur að bæta ætti almenningssamgöngur á svæðinu við Ökuskóla 3. Fólk átti sig hreinlega ekki á því hvað þurfi að gera til að komast upp í húsnæðið, sem er í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði. Við spreyttum okkur á ferðalaginu í Íslandi í dag. 28.2.2024 11:39
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Vonir standa til að samkomulag um vopnahlé og gíslaskipti milli Ísrael og Hamas náist á næstunni. Á sama tíma undirbúa Ísraelsmenn að sækja inn í syðstu borg Gasa af auknum þunga á meðan flóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna er á barmi algjörs þrots. Magnea Marínósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur fer yfir stöðuna í myndveri í beinni útsendingu. 25.2.2024 18:20
„Akkúrat þessi fyrirvari sem veldur okkur áhyggjum“ „Staðan er bara sú að við deilum áhyggjum Veðurstofunnar yfir því hvað geti gerst á næstu dögum,“ segir Hjördís Guðmundsdóttir samskiptastjóri almannavarna um stöðuna á Reykjanesi. Veðurstofan telur eldgos líklegt í vikunni sem nú fer í hönd og að byrjað gæti að gjósa með innan við hálftíma fyrirvara. 25.2.2024 16:26
Hádegisfréttir Bylgjunnar Vonir standa nú til að viðræður um vopnahlé og gíslaskipti milli Ísraelsmanna og Hamas skili árangri, en ísraelsk stjórnvöld hafa samþykkt að senda fulltrúa til Katar til slíkra viðræðna. Íslenskur sjálfboðaliði í Egyptalandi segir ganga hægt að koma fólki af Gasa á meðan stjórnvöld taki ekki þátt. 25.2.2024 11:55
Piltar taldir hafa verið að verki Ekki er vitað hversu margir gerendur voru að verki þegar pilti var ógnað með hnífi við Laugardalslaug í gær. Tilkynnt var um atvikið um hálftíma eftir að það átti sér stað og talið er að aðrir piltar hafi verið að verki. 25.2.2024 10:45
Úkraína í erfiðri stöðu á viðsjárverðum tímamótum Úkraínuforseti hvatti í dag þjóð sína til að halda áfram að berjast í stríðinu við Rússa, sem nú hefur staðið yfir í nákvæmlega tvö ár. Úkraínumenn eru í afar erfiðri stöðu í upphafi þriðja árs innrásar; vopn eru af skornum skammti og forsetinn berst fyrir framtíðarfjármögnun að utan. 24.2.2024 21:46
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Úkraínuforseti hvatti í dag þjóð sína til að halda áfram að berjast í stríðinu við Rússa, sem nú hefur staðið yfir í nákvæmlega tvö ár. Úkraínumenn eru í afar erfiðri stöðu í upphafi þriðja árs frá innrás; vopn eru af skornum skammti og forsetinn berst fyrir framtíðarfjármögnun að utan 24.2.2024 18:24
Unga konan sem kærði Albert muni eyða ævinni í að vinna úr málinu Lögmaður konunnar sem kærði knattspyrnumanninn Albert Guðmundsson fyrir kynferðisbrot skoðar nú hvort kæra skuli ákvörðun héraðssaksóknara um að láta málið niður falla til ríkissaksóknara. Málið hafi verið afar erfitt fyrir ungu konuna, sem muni eyða ævinni í að vinna úr því. 24.2.2024 15:30
Hádegisfréttir Bylgjunnar Samninganefndir Breiðfylkingar og Samtaka atvinnulífsins funda nú hjá Ríkissáttasemjara, en VR sagði sig úr fylkingunni í gær. Á sama tíma undirbúa Fagfélögin verkfallsaðgerðir. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. 24.2.2024 11:57
Gerðist svo ógnarhratt að þau gátu ekki tekið neitt með sér Minnst tíu fórust í gríðarlegum eldsvoða í fjölbýlishúsi í Valencia á Spáni í gær. Íslendingur búsettur í borginni segir íbúa í algjöru áfalli. Fjölskylda sem hún þekkir missti heimili sitt í brunanum. 23.2.2024 21:01