Enginn verið stuðaður með rafbyssu ennþá Lögreglumenn hafa fimmtán sinnum dregið rafbyssur úr slíðri eða ræst þær eftir að þeir fengu þær fyrst í hendur í september. Enginn hefur enn verið skotinn með rafbyssu af lögreglumönnum. Hver rafbyssa kostar meira en milljón krónur. 4.11.2024 08:33
Létust þegar skyggni hrundi ofan á þau í Serbíu Átta manns eru látnir eftir að steypuskyggni á járnbrautarstöð í næststærstu borg Serbíu í dag. Tveir til viðbótar eru slasaðir, þar á meðal karlmaður sem þurfti að aflima, og fleiri voru fastir undir brakinu. 1.11.2024 15:56
Íslendingar þurfa ekki vegabréfsáritun til Kína næsta árið Kínversk stjórnvöld hafa ákveðið að leyfa Íslendingum að koma til Kína án vegabréfsáritunar út næsta ár. Undanþágan tekur gildi í næstu viku. 1.11.2024 14:45
Borgin lúffar fyrir aðdáendum áramótabrenna Meirihlutinn í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar ætlar að leggja til að fallið verði frá tillögu um að fækka áramótabrennum. Ástæðan er sögð mikil hvatning frá íbúum og íbúaráðum. 1.11.2024 12:17
Telja opinber úrslit kosninganna í Georgíu ekki standast Rannsóknafyrirtæki sem gerði útgönguspá fyrir þingkosningarnar í Georgíu um síðustu helgi segir opinber úrslit sem voru gefin út „tölfræðilega ómöguleg“. Stjórnarandstaðan hvetur til frekari mótmæla gegn kosningaúrslitanna. 1.11.2024 12:02
Horyn nýr forstjóri kísilverksmiðjunnar á Bakka Kísilverksmiðja PCC á Bakka hefur ráðið Tomasz Jan Horyn sem forstjóra fyrirtækisins. Horyn, sem var áður rekstrarstjóri verksmiðjunnar, tekur við af Gesti Péturssyni sem lætur af störfum um áramótin til þess að stýra nýrri Umhverfis- og orkustofnun. 1.11.2024 10:50
Rússar taldir hylja slóð flutningaskipa til að verja olíuhafnir sínar Tankskip sem sigla um Eystrasalt slökkva viljandi á auðkenningarbúnaði til þess að hylja slóð sína til rússneskra hafna komast fram hjá refsiaðgerðum. Viðvarandi truflanir hafa verið á gervihnattasambandi á hafsvæðinu á milli Rússlands og Finnlands. 1.11.2024 09:12
„Tifandi tímasprengjur“ á leið út í samfélagið Hættulegir fangar sem losna úr fangelsi á næstunni eru eins og tifandi tímasprengjur vegna ágreinings um hver eigi að veita þeim stuðning, að sögn geðhjúkrunarfræðings. Maður sem varað var við að væri líklegur til að brjóta af sér aftur er sagður grunaður um líkamsárás og nauðgun skömmu eftir að hann lauk afplánun. 31.10.2024 17:01
Formaður Lýðræðisflokksins sagður misbeita samsæriskenningu Stjórnmálafræðiprófessor segir það ranga notkun á hugtökum að blanda mögulegri spillingu við veitingu embætta saman við samsæriskenningu um „djúpríki“ sem stýri landinu á bak við tjöldin. Formaður Lýðræðisflokksins sagði djúpríkið staðreynd á Íslandi. 31.10.2024 15:01
Leita manns sem skildi eftir sprengiefni á lestarstöð í Berlín Lögreglan í Berlín í Þýskalandi leitar nú manns sem skildi eftir tösku fulla af sprengiefni á lestarstöð og flúði þegar lögreglumenn reyndu að stöðva hann í gær. Enn hefur ekki tekist að bera kennsl á manninn. 31.10.2024 09:43