Fréttamaður

Jón Ísak Ragnarsson

Jón Ísak er fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Spænskir kokkanemar elda ís­lenskan salt­fisk

Íslenskur saltfiskur var í aðalhlutverki þar sem færasti saltfiskkokkur Spánar var valinn í Mérida á Spáni í vikunni. Keppnin var haldin í þriðja skipti í ár en 18 skólar frá öllum landshlutum Spánar tóku þátt að þessu sinni. Spánn er stærsti markaðurinn fyrir íslenskan saltfisk og er hann uppistaðan í mörgum vinsælum réttum þar í landi.

Harðar deilur um á­gæti nýrra búvörulaga

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Sigmar Guðmundsson voru til viðtals í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Rætt var um ný búvörulög og áhrif þeirra á íslenska neytendur og bændur. Sigurður segir lögin sambærileg lögum Norðurlandanna og feli í sér mikla kjarabót bæði fyrir bændur og neytendur. Sigmar er ósammála og segir löggjöfina geta skapað hvata fyrir stór fyrirtæki til að bjóða neytendum hærra verð.

„Gasið hefur ekkert risið“

Hætta er á gasmengun við Hafnir og í Grindavík í dag að sögn veðurfræðings hjá veðurstofunni, en há gildi brennisteinsdíoxíðs mældust þar í nótt og í morgun. Hraun lekur ennþá ofan í Melholsnámu og áfram er unnið að hækkun varnargarðanna.

Ítalski píanistinn Maurizio Pollini látinn

Margrómaði píanistinn Maurizio Pollini lést í gær 23. mars 82 ára að aldri. Tilkynning barst í gær frá óperuhúsinu í Mílanó, La Scala, þar sem hann var tíður flytjandi. Pollini hefur heillað alþjóð með píanóleik sínum í rúmlega sextíu ár. Hann naut mikillar virðingar annarra tónlistarmanna.

Hætta með Pizzavagninn eftir tuttugu ára rekstur

Petrína og Björgvin Þór hafa ekið Pizzavagninum um uppsveitir Árnessýslu í tuttugu ár  en ætla að hætta rekstri í vikunni. Óvissa er um það hvort einhver taki við rekstrinum. Pizzavagninn verður á balli á Flúðum á miðvikudaginn og hættir eftir það.

Baltasar sleginn yfir hestamálinu

Baltasar Kormáki og hans teymi var verulega brugðið þegar þeim barst veður af hrottafenginni meðferð hesta sem verið var að þjálfa fyrir kvikmyndaverkefni þeirra. Hann segir þjálfarana hafa verið rekna um leið og upp komst um málið.

Hesta­mis­þyrmingar fyrir ís­lenska kvik­mynda­fram­leiðslu

Matvælastofnun hefur stöðvað tímabundið sérstaka þjálfun á hestum til þátttöku í kvikmyndaframleiðslu vegna hrottalegrar meðferðar. Alvarleg atvik sjást á myndbandi sem er í dreifingu á Facebook. Spænskir atvinnumenn með mikla reynslu af hestaþjálfun voru fengnir í verkið, en í myndbandinu sjást þeir berja hestana í hausinn og sýna mjög harkalega reiðmennsku. Búið er að reka þjálfarana og alla sem komu að málinu.

Guð­mundur meðal efstu manna fyrir loka­um­ferð Reykja­víkur­skák­mótsins

Guðmundur Kjartansson er efstur ásamt fimm öðrum á alþjóðlega Reykjavíkurskákmótinu sem haldið er í Hörpu þessa dagana. Guðmundur lagði fyrrverandi sigurvegara mótsins, Baskaran Adhiban að velli með svörtu mönnunum í dag. Sigur á morgun tryggir Guðmundi jafnt fyrsta sæti. Lokaumferðin hefst á morgun kl 11.

Bankarnir geti lækkað eigin vexti án að­komu Seðla­bankans

Finnbjörn Hermannsson forseti ASÍ segir vonbrigði að Seðlabankinn hafi ákveðið að halda meginvöxtum óbreyttum. Forsendur hafi verið fyrir því að lækka vexti í dag. Markmið nýgerðra samninga standi þó enn og væntanlega verði myndarlegrar vaxtalækkunar í maí. Viðskiptabankarnir geti hins vegar lækkað sína vexti.

M. Emmet Walsh látinn

Bandaríski leikarinn M. Emmet Walsh er látinn, 88 ára að aldri. Hann lék meðal annars í myndunum Blade Runner og Christmas with the Kranks, en hann lék 233 hlutverk á leikaraferli sem hófst á sjöunda áratugnum.

Sjá meira