Seðlabankinn dregur úr útlánagetu bankanna Ákvörðun Seðlabankans um að auka bindiskyldu bankanna dregur úr peningamagni í umferð og getu bankanna til útlána. Seðlabankinn setur aukna bindiskyldu í beint samhengi við kostnaðinn við að eiga mikinn gjaldeyrisforða. 4.4.2024 11:40
Ekki gefið hvernig spilast úr stöðunni fari Katrín fram Allar líkur eru á að Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna tilkynni fyrir helgi hvort hún bjóði sig fram til embættis forseta Íslands. Geri hún það mun hún samstundis segja af sér embætti forsætisráðherra. Formenn hinna stjórnarflokkanna segja ekki gefið hvernig spilaðist úr þeirri stöðu þótt grundvöllur væri fyrir áframhaldandi samstarfi flokkanna. 3.4.2024 19:29
Telur að Katrín yrði mjög öflugur kandídat „Það yrði allavega mjög öflugur kandídat til forsetaembættisins sem kæmi þar fram,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra um mögulegt forsetaframboð Katrínar Jakobsdóttur. Hann telur mikilvægt að Katrín ákveði sig og tilkynni um ákvörðun sína áður en þing kemur saman í næstu viku. 3.4.2024 15:30
Opinberar ákvörðun sína á allra næstu dögum Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ætlar að upplýsa um ákvörðun sína varðandi framboð til forseta Íslands á allra næstu dögum. Stjórnarsamstarfið standi sterkum fótum hér eftir sem hingað til. 3.4.2024 12:23
Íhugar framboð til forseta alvarlega Katrín Jakobsdóttir staðfestir að hún sé alvarlega að hugsa um að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands og muni greina frá niðurstöðu sinni á næstu dögum. Tveir forsetaframbjóðendur hafa bæst í hópinn frá í gær, þeir Jón Gnarr og Guðmundur Felix Grétarsson. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fundar sérstaklega í dag um mögulegt framboð Katrínar Jakobsdóttur. 3.4.2024 11:43
Samningar yfir 40 þúsund opinberra starfsmanna lausir Formaður BSRB vonar að aukinn þungi færist í kjaraviðræður við ríki og sveitarfélög (LUM) eftir að samningar ríflega fjörtíu þúsund félagsmanna bandalagsins og BHM losnuðu nú um mánaðamótin. 2.4.2024 19:41
Sterkir forsetaframbjóðendur geta gjörbreytt stöðunni Jón Gnarr tilkynnir væntanlega í kvöld hvort hann bjóði sig fram til embættis forseta Íslands eða ekki. Þá styttist í að forsætisráðherra geri upp hug sinn. Stjórnmálafræðingur segir framboð þeirra og nokkurra annarra geta ráðið miklu í kosningabaráttunni. 2.4.2024 19:20
„Veit að hún er að hugsa málið“ Orri Páll Jóhannsson, þingflokksformaður Vinstri grænna, segist ekki átta sig á því hvort tal um mögulegt forsetaframboð Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, hafi orsakað skjálfta í ríkisstjórnarsamstarfinu. Hann segist vita að Katrín sé að velta fyrir sér framboðinu. 2.4.2024 19:10
Enn ósamið við tugi þúsunda opinberra starfsmanna og samningar lausir Kjarasamningar við aðildarfélög rúmlega fjörutíu þúsund opinberra starfsmanna runnu út nú um mánaðamótin. Formaður BSRB segir viðræðum um nýja samninga miða ágætlega en helst væri tekist á um jöfnun launa á almenna- og opinbera vinnumarkaðnum. 2.4.2024 11:50
Það sem Guðni ætlar að gera eftir að hann lætur af embætti Guðni Th. Jóhannesson ætlar að snúa sér að sagnfræðirannsóknum og kennslu þegar hann lætur af embætti forseta Íslands. Hann eigi meðal annars eftir að ljúka sögu landhelgismálsins og segir kíminn, að engir hafi breytt gangi sögunnar jafn mikið og sagnfræðingarnir. 24.3.2024 20:01