Staðan á byggingarmarkaði versnar og gjaldþrotum fjölgar mikið Staða á byggingarmarkaði hefur versnar mikið sem lýsir sér í að minna er flutt inn af byggingarhráefnum, skuldsetning byggingarverktaka hefur aukist og gjaldþrotum í byggingariðnaði hefur fjölgað mikið. Sölutími lítilla íbúða hefur styst samfellt frá í apríl, en merki eru um að jafnvægi sé að nást á fasteignamarkaði. 21.12.2023 07:33
Hæg norðan- og norðvestanátt á landinu Lægðin sem gekk yfir landið í gær er nú við vesturströnd Noregs og hefur hún dýpkað talsvert síðasta hálfa sólarhringinn og mun því valda illviðri í Norður-Evrópu í dag. 21.12.2023 07:12
Þórdís Lind nýr forstöðumaður hjá N1 Þórdís Lind Leiva hefur verið ráðin forstöðumaður orkusviðs N1 og hefur hún þegar hafið störf. 20.12.2023 08:27
Gengur í vestanstrekking með rigningu og slyddu Lægð gengur til austurs yfir mitt landið í dag þar sem gengur í vestanstrekking sunnantil með rigningu eða slyddu og hlýnar í veðri. 20.12.2023 07:25
Átta sækja um embætti forstjóra Veðurstofunnar Átta sóttu um embætti forstjóra Veðurstofu Íslands sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið auglýsti laust til umsóknar í síðasta mánuði. 19.12.2023 13:11
Lúðvík skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Lúðvík Þorgeirsson í embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða til næstu fimm ára, frá 1. mars 2024. Lúðvík hefur síðustu ár starfað sem rekstrarstjóri hjá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu. Hann tekur við stöðunni af Gylfa Ólafssyni. 19.12.2023 11:55
Samþykkja tólf ný götuheiti í Vatnsendahverfi Skipulagsráð Kópavogs hefur samþykkt tillögu umhverfissviðs bæjarins um tólf ný götuheiti í Vatnsendahverfi í Kópavogi og hefur málinu verið vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. 19.12.2023 10:41
Eldgosið hefur ekki áhrif á flug Icelandair Eldgosið sem hófst norðan Grindavíkur í gærkvöldi hefur ekki áhrif á flugáætlun Icelandair eins og staðan er nú. 19.12.2023 10:13
Kemur ný í framkvæmdastjórn Nova Renata Blöndal hefur verið ráðin í starf fararstjóra (Chief Strategy Officer) Nova og tekur hún jafnframt sæti í skemmtana- og framkvæmdastjórn hjá félaginu. 19.12.2023 09:56
Tvær flugvélar þurftu að hringsóla í skamman tíma Starfsemi á Keflavíkurflugvelli er eðlileg og er flogið bæði til og frá vellinum. Tvær flugvélar Icelandair sem voru á leið til Keflavíkurflugvallar þurftu að hringsóla í skamman tíma á meðan unnin var öskuspá vegna gossins sem hófst um fjóra kílómetra norðaustur af Grindavík klukkan 22:17. 19.12.2023 01:19
Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Íslenski boltinn