Munu leggja enn betur við hlustir „Ég held að þetta verði að leiða til þess að við leggjum enn betur við hlustir.“ Þetta segir Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðiprófessor eftir fund hóps fólks sem kom saman í gærkvöldi til að hvetja Baldur til að bjóða sig fram til forseta í komandi kosningum. 5.3.2024 10:42
Fengu grænt ljós á flutning 72 dvalarleyfishafa frá Gasa Sjötíu og tveir einstaklingar frá Gasa, sem eru með dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar, komu til Kaíró í Egyptalandi seint í gærkvöldi og halda í kjölfarið til Íslands. Þetta gerist eftir að ísraelsk stjórnvöld afgreiddu fyrirliggjandi nafnalista íslenskra stjórnvalda um helgina. 5.3.2024 08:39
Noregskonungur fær gangráð Haraldur Noregskonungur mun fá græddan í sig varanlegan gangráð þar sem hjartsláttur hans þykir of hægur. 5.3.2024 07:26
Mild austanátt en hvassviðri sunnantil Lægð suðvestur af landinu beinir nú til okkar mildri austan- og suðaustanátt og má gera ráð fyrir að víða verði strekkingsvindur en hvassviðri með suðurströndinni. 5.3.2024 07:07
Sundlaugin fyllist á ný og bæjarbúar fagna Byrjað er hleypa vatni ofan í sundlaugina á Þingeyri á ný þar sem framkvæmdir hafa staðið yfir síðustu mánuði. Nýr dúkur hefur verið lagður þar sem sá eldri lak og segir starfsmaður sundlaugarinnar að bæjarbúar fagni innilega. 4.3.2024 13:15
Fjórtán sagt upp í einu hópuppsögn mánaðarins Fjórtán manns var sagt upp í einu hópuppsögn til tilkynnt var til Vinnumálastofnunar í síðasta mánuði. 4.3.2024 12:45
Bein útsending: Skaðlegt inniloft, loftræstingar og heilsa Ráðstefna um skaðlegt inniloft, loftræsingar og heilsu fer fram í Háskólanum í Reykjavík í dag. 4.3.2024 12:16
Leggjast gegn álklæðningu á tveimur hliðum Laugalækjarskóla Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur lagst gegn umsókn byggingarfulltrúa borgarinnar þar sem sótt er um leyfi til að klæða suðausturgafl og suðvesturhlið Laugalækjarskóla með sléttri álklæðningu. Er vísað í að að setja klæðningu á hús þar sem ekki hafi verið gert ráð fyrir henni í upphafi hafi oft neikvæð áhrif á útlit húss. Þannig geti helstu stíleinkenni tapast. 4.3.2024 11:12
Karl Gunnlaugsson er fallinn frá Karl Gunnlaugsson, akstursíþróttamaður og athafnamaður, er látinn, 57 ára að aldri. Hann lést á heimili sínu í Mosfellsbæ á laugardaginn. 4.3.2024 10:15
Tilkynningar um kynferðisbrot ekki færri síðan 2017 Tilkynnt var um 521 kynferðisbrot til lögreglunnar á síðasta ári og voru tilkynningar 15 prósent færri en að meðaltali samanborið við síðustu þrjú ár þar á undan. Fara þarf aftur til 2017 til að sjá færri tilkynningar um kynferðisbrot til lögreglu. 4.3.2024 08:57