Kristjana nýr framkvæmdastjóri hjá Sýn Kristjana Thors Brynjólfsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Miðla og efnisveitna hjá Sýn. Þetta kemur fram í tilkynningu. Viðskipti innlent 2. desember 2024 09:53
Helena til Íslandssjóða Helena Guðjónsdóttir hefur verið ráðin til að leiða viðskiptaþróun og sjálfbærni fyrir Íslandssjóði. Viðskipti innlent 27. nóvember 2024 11:00
Hrókeringar í framkvæmdastjórn Eimskips Edda Rut Björnsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri innanlandssviðs hjá Eimskip. Harpa Hödd Sigurðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri mannauðs- og samskiptasviðs í stað Eddu Rutar. Viðskipti innlent 26. nóvember 2024 17:04
Fyrrverandi ferðamálastjóri opnar ráðgjafarstofu með syninum Feðgarnir Skarphéðinn Berg Steinsson, fyrrverandi ferðamálastjóri, og Steinar Atli Skarphéðinsson hafa stofnað ráðgjafafyrirtækið Múlanes. Fyrirtækið mun sjá um sérhæfða rekstrarráðgjöf fyrir ferðaþjónustu. Viðskipti innlent 26. nóvember 2024 16:53
Ráðinn forstöðumaður Arion Premíu Magnús Már Leifsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Premíu hjá Arion banka. Viðskipti innlent 26. nóvember 2024 13:25
Birta Ósk og Jenna Kristín til Akademias Birta Ósk Theodórsdóttir hefur verið ráðin tæknistjóri Akademias og Jenna Kristín Jensdóttir hefur verið ráðin fræðslustjóri sama félags. Viðskipti innlent 26. nóvember 2024 11:02
Ragga Sveins snýr aftur til Íslands Ragnhildur Sveinsdóttir, betur þekkt sem Ragga Sveins, mun snúa aftur til Íslands og starfa sem pilateskennari hjá Eldrún Pilates í byrjun desember. Lífið 25. nóvember 2024 14:20
Knattspyrnukappi á Skaganum ráðinn fjármálastjóri Merkjaklöpp ehf. hefur ráðið Ellert Jón Björnsson í stöðu fjármálastjóra fyrirtækisins og hefur hann þegar hafið störf. Viðskipti innlent 22. nóvember 2024 16:31
Bjarni ráðinn framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun Landsvirkjun hefur ráðið Dr. Bjarna Pálsson í starf framkvæmdastjóra Vinds og jarðvarma. Bjarni var áður forstöðumaður Þróunar jarðvarma hjá Landsvirkjun. Viðskipti innlent 21. nóvember 2024 16:13
Kristján ráðinn til Advania Kristján Þorvaldsson hefur tekið við hlutverki forstöðumanns veflausna hjá Sérlausnum Advania. Viðskipti innlent 21. nóvember 2024 10:04
Rannveig kveður: 124 fundir og „aldrei lognmolla“ Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, sat sinn síðasta kynningarfund peningastefnunefndar í morgun en hún lætur af störfum þegar skipunartími hennar rennur út um áramótin. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri nýtti tækifærið við lok fundarins til að þakka Rannveigu fyrir sitt framlag en enginn hefur lengri reynslu en Rannveig af vettvangi peningastefnunefndar. Viðskipti innlent 20. nóvember 2024 13:00
Ráðin framkvæmdastjórar hjá Sóltúni Eva Ýr Gunnlaugsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Sóltúni heilbrigðisþjónustu og Einar Örn Ævarsson sem framkvæmdastjóri Sólstaða ehf. Viðskipti innlent 20. nóvember 2024 12:02
Rúnar nýr framkvæmdastjóri hjá Stólpum Gámum Stólpi Gámar hefur ráðið Rúnar Höskuldsson sem nýjan framkvæmdastjóra sölusviðs fyrirtækisins. Viðskipti innlent 19. nóvember 2024 10:05
Trausti nýr forstjóri og fimmtíu sagt upp hjá Controlant Fimmtíu manns hefur verið sagt upp hjá Controlant og hefur Trausti Þórmundsson verið ráðinn forstjóri félagsins. Félagið verður því með tvo forstjóri en Trausti mun stýra félaginu ásamt Gísla Herjólfssyni, forstjóra og meðstofnanda. Viðskipti innlent 18. nóvember 2024 13:34
Guðmundi falið að bera ábyrgð á hugverkum Carbfix Guðmundur Reynaldsson verið ráðinn til Carbfix þar sem hann mun bera ábyrgð á hugverkum fyrirtækisins. Viðskipti innlent 18. nóvember 2024 10:56
Þingmaður Pírata vill í kærunefnd útlendingamála Sjö umsóknir bárust um embætti nefndarmanns í kærunefnd útlendingamála. Meðal umsækjenda er sitjandi þingmaður, sviðsstjóri hjá Útlendingastofnun og nokkrir lögfræðingar hjá kærunefnd útlendingamála. Innlent 16. nóvember 2024 10:03
Sólrún, Brynjar og Aníta til Reita Brynjar Þór Ólafsson, Sólrún Lovísa Sveinsdóttir og Aníta Auðunsdóttir hafa verið ráðin til Reita. Viðskipti innlent 15. nóvember 2024 10:10
Þrjú ráðin til Tryggja Ingunn Ósk Magnúsdóttir, Smári Freyr Jóhannsson og Gunnar Freyr Róbertsson hafa öll verið ráðin til tryggingmiðlunarfyrirtækisins Tryggja og munu gegna þar lykilhlutverkum. Viðskipti innlent 13. nóvember 2024 10:09
Ísold ráðin markaðsstjóri Ísold Einarsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri upplýsingatækifyrirtækisins OK. Fyrirtækið sérhæfir sig í sölu og ráðgjöf á tæknilausnum og tengdri þjónustu við mörg stærstu fyrirtæki landsins, stofnanir og alþjóðleg fyrirtæki. Viðskipti innlent 12. nóvember 2024 14:19
Frá Bændasamtökunum til Samorku Sverrir Falur Björnsson hefur verið ráðinn verkefnastjóri stefnumótunar og hagsmunagæslu hjá Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja. Viðskipti innlent 12. nóvember 2024 11:13
Deildarstjóri, lögfræðingur og viðskiptastjóri ráðin til Mílu Fjarskiptafyrirtækið Míla hefur ráðið til sín þrjá nýja starfsmenn, deildarstjóra sölu- og viðskiptastýringar, lögfræðing og viðskiptastjóra. Viðskipti innlent 11. nóvember 2024 15:24
Settur forstjóri skipaður forstjóri Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku og loftslagsráðherra hefur skipað Rúnar Leifsson í embætti forstöðumanns Minjastofnunar Íslands. Hann hefur verið settur forstjóri Minjastofnunar frá 1. maí 2023, þegar þáverandi forstjóri lét af störfum. Innlent 11. nóvember 2024 11:22
Sautján sóttu um embætti skrifstofustjóra fjármála Sautján hafa sótt um embætti skrifstofustjóra fjármála í heilbrigðisráðuneytinu en umsóknarfrestur rann út 28. október síðastliðinn. Innlent 11. nóvember 2024 10:48
Nýr flugrekstrarstjóri Icelandair Guðmundur Tómas Sigurðsson er nýr flugrekstrarstjóri Icelandair. Hann tekur við starfinu af Hauki Reynissyni sem ætlar að snúa aftur í flugstjórnarklefann. Viðskipti innlent 9. nóvember 2024 13:44
Ingvar ráðinn slökkviliðsstjóri Ingvar Georg Georgsson hefur verið ráðinn slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Fjarðabyggðar. Ráðning Ingvars var staðfest á fundi bæjarráðs Fjarðabyggðar þann 28. október síðastliðinn. Innlent 8. nóvember 2024 10:34
Þrír nýir stjórnendur hjá Wisefish Þrír nýir stjórnendur hafa verið ráðnir til hugbúnaðarfyrirtækisins Wisefish ehf. Fyrirtækið starfar á sviði viðskiptalausna fyrir sjávarútveg og er hugbúnaður þess notaður víðsvegar um heiminn. Viðskipti innlent 7. nóvember 2024 18:49
Helgi biðst lausnar og fer í ráðuneytið Helga Grímsson, sem gegnt hefur starfi sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur síðustu ár, hefur beðst lausnar frá starfi og mun tímabundið færa sig yfir í mennta- og barnamálaráðuneytið. Innlent 7. nóvember 2024 13:26
ECIT AS kaupir meirihluta í Bókað frá KPMG Norska fjármála og tæknifyrirtækisins ECIT AS hefur keypt meirihluta í bókhalds- og launaþjónustu KPMG sem rekin hefur verið undir heitinu Bókað. Gert er ráð fyrir endanlegum frágangi viðskiptanna í ársbyrjun 2025 en KPMG verður áfram hluthafi. Greint er frá þessu í tilkynningu frá KPMG. Viðskipti innlent 6. nóvember 2024 15:46
Breytingar í framkvæmdastjórn Origo Breytingar hafa verið gerðar á framkvæmdastjórn Origo ehf. í kjölfar endurskipulagningar félagsins til að skilja að starfsemi eignarhaldsfélagsins og rekstrarfélagsins Origo. Viðskipti innlent 6. nóvember 2024 08:18
Linda ráðin framkvæmdastjóri háttsemiseftirlits Linda Kolbrún Björgvinsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra háttsemiseftirlits Seðlabanka Íslands. Starfið var var auglýst laust til umsóknar í lok september síðastliðinn. Viðskipti innlent 5. nóvember 2024 15:41