Annar grunsamlegur pakki var sendur til CNN Pakkinn er sagður líta út eins og þeir sem innihéldu rörsprengjur og voru sendir pólitískum andstæðingum Bandaríkjaforseta í síðustu viku. Erlent 29. október 2018 18:26
Nýr hópur förufólks stefnir á Bandaríkin Hópurinn lagði af stað frá höfuðborg El Salvador fyrr í dag. Erlent 28. október 2018 17:24
Stafsetningarvillur meðal þess sem kom upp um Sayoc Alríkislögreglan bandaríska FBI hafði upp á Cesar Sayoc með hjálp erfðaefnis, fingrafara og greiningar á samfélagsmiðlum. Erlent 28. október 2018 10:15
Árasarmaðurinn ákærður fyrir morðin í 29 liðum Maðurinn sem skaut ellefu til bana í bænahúsi gyðinga í Pittsburgh í Bandaríkjunum í gær var ákærður fyrir morðin í gærkvöldi. Erlent 28. október 2018 08:46
Trump segir vopnalöggjöfina hafa "lítið að gera“ með árásina í Pittsburgh Forsetinn segir að hægt hefði verið að koma í veg fyrir árásina ef vopnaður vörður hefði verið inni í bænahúsinu. Erlent 27. október 2018 19:01
Skotárás í Pittsburgh: Árásarmaðurinn í haldi lögreglu Talið er að átta séu látnir hið minnsta eftir skotárás á Bænahús gyðinga í Pittsburgh í dag. Erlent 27. október 2018 15:32
Unnusta Khashoggi hafnar boði Trump Hatice Cengiz, unnusta sádíska blaðamannsins Jamal Khashoggi sem var myrtur í Istanbúl fyrir þremur vikum, hefur hafnað boði Donald Trump, Bandaríkjaforseta um heimsókn í Hvíta húsið. Erlent 27. október 2018 09:53
Trump þvertekur fyrir að hann beri ábyrgð Hann bar sprengjusendingarnar saman við skotárás stuðningsmanns Bernie Sanders á Repúblikana þar sem þeir voru að æfa sig fyrir hafnarboltaleik í fyrra. Erlent 26. október 2018 23:00
Fundu aðra grunsamlega sendingu í Flórída sem stíluð var á Demókrata Bandarískir fjölmiðlar greina frá því að grunsamlegur pakki, sem stílaður var á Cory Booker, öldungadeildarþingmann Demókrata, hafi fundist á Flórída. Erlent 26. október 2018 13:17
Leita logandi ljósi að sökudólgi FBI stýrir rannsókn á sprengjusendingum til áhrifamanna innan bandaríska vinstrisins. Ekki víst að sprengjunum hafi verið ætlað að springa. Forsetinn kennir fjölmiðlum um hatursfulla orðræðu en eitt fórnarlamba skýtur til baka á forsetann og segir æsimennsku hans og hótanir til háborinnar skammar. Erlent 26. október 2018 07:30
Trump-liðar sjá forsetann sem fórnarlamb sprengjusendinga Síðustu daga hafa sprengjur verið sendar á þó nokkra gagnrýnendur og andstæðinga Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Erlent 25. október 2018 21:00
Norrænar þjóðir svara Hvíta húsinu: „Eitthvað erum við að gera rétt“ Sendiráð Norrænna ríkja í Bandaríkjunum sendu Donald Trump tóninn í gærkvöldi og í dag eftir að forsetinn sendi frá sér skjal þar sem hann gagnrýndi norrænu ríkin og "sósíalískar“ stefnur þeirra. Erlent 25. október 2018 20:00
Senda hermenn að landamærunum að Mexíkó Liðsflutningarnir eru sagðir beint svar við áhyggjum Trump forseta af hópi flóttafólks frá Hondúras sem reynir að komast fótgangandi til Bandaríkjanna í gegnum Mexíkó. Erlent 25. október 2018 16:50
Trump kennir fjölmiðlum um reiði í skugga bréfsprengna Raddir hafa heyrst um að Trump forseti hafi kynt undir ofsa gegn andstæðingum sínum eftir að bréfsprengjur hófu að berast andstæðingum hans. Hann reynir nú að snúa taflinu við og kennir fjölmiðlum um að hafa skapað hatursástand í samfélaginu. Erlent 25. október 2018 12:39
Trump sagði fjölmiðla þurfa að láta af „fjandskapnum“ þegar hann ræddi bréfasprengjurnar Donald Trump Bandaríkjaforseti beindi því til fjölmiðla í gær að þeir láti af fjandskap sínum og neikvæðni. Þá kallaði hann eftir því að stjórnmálamenn hætti að níða skóinn hver af öðrum. Erlent 25. október 2018 10:58
Voveiflegir atburðir í Bandaríkjunum Bréfsprengjur hafa í vikunni verið sendar á áhrifamenn innan bandaríska vinstrisins og á fréttastofu CNN. Trump forseti ítrekað gagnrýnt skotmörkin. Forsetinn fordæmdi árásina harðlega og sagði hana svívirðilega. Erlent 25. október 2018 08:00
Kínverjar og Rússar hlusta reglulega á einkasímtöl Trump Þrátt fyrir að aðstoðarmenn Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, hafi oft varað hann við því að kínverskir og rússneskir njósnarar hlusti reglulega á einkasímtöl hans úr iPhone síma sem hann á, heldur forsetinn áfram að notast við símann. Erlent 24. október 2018 23:00
Varar við nýju vígbúnaðarkapphlaupi Vladimir Pútín segir að Rússar myndu beina kjarnorkuvonum sínum að öllum þeim ríkjum Evrópu sem hýsa munu kjarnorkuvopn Bandaríkjanna. Erlent 24. október 2018 21:00
Trump segir sádi-arabíska krónprinsinn mögulega viðriðinn morðið á Khashoggi Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hefur í fyrsta sinn látið hafa eftir sér að Mohammed bin Salman, sádi-arabíski krónprinsinn, geti mögulega verið viðriðinn morðið á sádi-arabíska blaðamanninum Jamal Khashoggi sem myrtur var í byrjun október í kjölfar heimsóknar á ræðisskrifstofu Sáda í Istanbúl í Tyrklandi. Erlent 24. október 2018 09:51
Trump og Pútín stefna á fund í París Áætlað er að fundur forsetanna fari fram þann 11. nóvember en þá verða þeir báðir í París vegna aldarafmælis fyrri heimsstyrjaldarinnar. Erlent 23. október 2018 23:23
Telur sig geta káfað á konum líkt og Trump Karlmaður sem sakaður er um að hafa káfað á konu um borð í flugvél frá Houston til Nýju Mexíkó á sunnudag afsakaði gjörðir sínar með því að segja að Donald Trump, Bandaríkjaforseta, finnist í lagi að káfa á konum. Erlent 23. október 2018 20:53
Starfsmannastjóri Hvíta hússins og ráðgjafi Trump tókust á John Kelly er sagður hafa tekið í kraga Coreys Lewandowski og reynt að ýta honum upp við vegg rétt fyrir utan forsetaskrifstofuna í Hvíta húsinu í febrúar. Erlent 23. október 2018 12:11
Ætlar að byggja upp kjarnorkuvopnabúr Bandaríkjanna þar til aðrir „ná áttum“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að Bandaríkin muni byggja upp kjarnorkuvopnabúr sitt. Það verði gert til að beita Rússland og Kína þrýstingi. Erlent 22. október 2018 23:07
Bandaríkjaforseti ítrekar hótanir gegn Mið-Ameríkuríkjum Donald Trump telur að hópur miðamerískra flóttamanna sem stefnir að landamærum Bandaríkjanna skapi neyðarástand í Bandaríkjunum. Erlent 22. október 2018 13:46
Fyrrum leiðtogi Sovétríkjanna gagnrýnir ákvörðun Trumps Fyrrum forseti og síðasti leiðtogi hinna sálugu Sovétríkja, Mikhail Gorbachev, segir að áform Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að rifta kjarnorkusamkomulagi milli Rússlands og Bandaríkjamanna séu einungis til þess fallin að draga úr þeim árangri sem náðst hefur í kjarnorkuafvopnun heimsins. Erlent 21. október 2018 18:09
Bandaríkjastjórn íhugar að þurrka út skilgreininguna um transfólk Ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta skoðar nú að breyta því á hvaða vegu kyn einstaklinga skilgreinist. Endurskilgreiningin myndi fela í sér að allir Bandaríkjamenn skilgreindust sem annað hvort karlar eða konur, í samræmi við líffræðilegt kyn þeirra við fæðingu. Erlent 21. október 2018 16:21
Rússar segja að riftun kjarnorkuvopnasamkomulagsins muni hafa alvarlegar afleiðingar Yfirvöld í Rússlandi hafa fordæmt áætlanir stjórnvalda í Bandaríkjunum um að rifta kjarnorkuvopnasamkomulagi ríkjanna frá árinu 1987. Bandaríkin séu með þessu að stíga "mjög hættulegt skref“ sem muni kalla á aðgerðir af hálfu Rússlands. Erlent 21. október 2018 14:45
Trump segir að blekkingar og lygar hafi átt sér stað í tengslum við dauða Khashoggi Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur gagnrýnt útskýringar Sádí-Araba á því hvernig blaðamaðurinn Jamal Khashoggi lést eftir að hafa í gær sagt að þær væru trúverðugar. Erlent 21. október 2018 07:49
Bandaríkin munu rifta kjarnorkusamkomulagi við Rússa Bandaríkin munu rifta kjarnorkusamkomulagi við Rússland. Þetta staðfesti Donald Trump Bandaríkjaforseti við fjölmiðla vestanhafs í dag. Erlent 20. október 2018 21:45
Trump segir skýringar Sáda á dauða Khashoggi trúverðugar Rkissjónvarp Sádi-arabíu staðfesti andlát blaðamannsins Jamal Khashoggi í gær. Erlent 20. október 2018 10:41