Guðjón: Mér fannst við bara vera kraftlausir „Við vorum bara skítlélegir og það var ömurlegt að horfa upp á þetta. Það er í raun það eina sem mér dettur í hug að segja núna,“ sagði Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur, eftir 76-63 tap liðsins í Suðurnesjaslag gegn Njarðvík í Iceland Express-deild karla í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld. Körfubolti 30. nóvember 2009 23:00
Sigurður: Varnarleikurinn var frábær allan leikinn „Ég er mjög sáttur með sigurinn. Varnarleikurinn var frábær hjá okkur allan leikinn en það komu leikkaflar þar sem við vorum ekki að gera nógu vel í sókninni en í heildina litið er ég mjög sáttur með okkar leik,“ sagði Sigurður Ingimundarson, þjálfari Njarðvíkur í leikslok eftir 76-63 sigur liðs síns gegn Keflavík í toppbaráttuslag Iceland Express-deildar karla í kvöld. Körfubolti 30. nóvember 2009 22:43
Marvin með 35 stig í sigri Hamars á Breiðabliki Marvin Valdimarsson skoraði 35 stig í mikilvægum ellefu stiga sigri Hamars á Breiðabliki, 89-78, í Hveragerði í Iceland Express deild karla í kvöld. Hamarsmenn lögðu grunninn að sigrinum með góðum þriðja leikhluta sem þeir unnu 28-15. Körfubolti 30. nóvember 2009 21:08
Njarðvík með öruggan sigur gegn Keflavík Njarðvík vann 76-63 sigur gegn Keflavík í sannkölluðum toppslag í Iceland Express-deild karla í körfubolta í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld. Körfubolti 30. nóvember 2009 20:46
KR-ingar frusu í fjórða leikhlutanum og Stjarnan vann Stjarnan vann fimm stiga stiga sigur á Íslandsmeisturum KR, 78-73, í DHl-höllinni í kvöld. Stjörnumenn sýndu mikinn styrk í lok leiksins og unnu sig til baka inn í leikinn eftir að hafa lent mest tíu stigum yfir í þriðja leikhlutanum. Körfubolti 30. nóvember 2009 19:59
Benedikt spáir í leiki kvöldsins: Væri til í að sjá alla þessa þrjá leiki Vísir fékk Benedikt Guðmundsson, þjálfara toppliðs KR í Iceland Express deild kvenna til þess að spá fyrir um þrjá leiki í karladeildinni í kvöld. Allt eru þetta leikir sem geta ráðið miklu um endanlega stöðu liðanna í deildinni. Körfubolti 30. nóvember 2009 15:45
Tveir toppbaráttuleikir í körfunni í kvöld Það verða tveir toppbaráttuleikir í Iceland Express deild karla í kvöld þegar tvö efstu liðin og erkifjendurnir í Njarðvík og Keflavík mætast í Ljónagryfjunni í Njarðvík á sama tíma og Íslandsmeistarar KR taka á móti bikarmeisturum Stjörnunnar í DHL-höllinni. Körfubolti 30. nóvember 2009 14:45
Björn Steinar tryggði Grindavík sigur í framlengingu Grindavík vann í kvöld nauman sigur á Snæfelli á heimavelli í framlengdum leik í Iceland Express-deild karla, 95-94. Körfubolti 29. nóvember 2009 21:04
Öruggur sigur KR KR vann öruggan nítján stiga sigur á Haukum á Ásvöllum í Iceland Express deild kvenna í kvöld, 81-62. Körfubolti 29. nóvember 2009 20:44
Sigurður og Guðjón völdu báðir íslenskan leikmann fyrst Sigurður Ingimundarson, þjálfari Njarðvíkur og Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur, hafa nú lokið við að velja Stjörnuliðin sín fyrir árlegan Stjörnuleik Karla sem fer fram í Dalhúsum Grafarvogi 12. desember næstkomandi. Körfubolti 26. nóvember 2009 14:45
Teitur: Gefur okkur auka kraft „Þetta var gríðarlega mikilvægt fyrir okkur eftir tvo tapleiki á undan. Við áttum möguleika í Grindavík um daginn en spiluðum illa gegn Tindastóli hérna heima," sagði Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir sigurinn á Njarðvík í kvöld. Körfubolti 23. nóvember 2009 22:24
Umfjöllun: Njarðvíkingar stöðvaðir af Stjörnunni Njarðvíkingar töpuðu sínum fyrsta leik í Iceland Express-deildinni þetta tímabilið þegar þeir biðu lægri hlut gegn Stjörnunni í Garðabæ. Stjarnan vann 87-75. Körfubolti 23. nóvember 2009 21:26
Fannar: Ætlum að vera með í þessu „Þetta var rosagott. Það er mikill munur á því að vinna og tapa," sagði Fannar Helgason, fyrirliði Stjörnunnar, eftir góðan sigur Garðbæinga á Njarðvíkingum í kvöld. Körfubolti 23. nóvember 2009 21:18
Fyrsta tap Njarðvíkinga undir stjórn Sigurðar Stjörnumenn urðu fyrstir til að vinna Njarðvíkinga síðan að Sigurður Ingimundarson tók við liðinu, þegar Stjarnan vann 82-75 sigur á leik liðanna í Ásgarði í kvöld. Leikurinn var jafn og spennandi en Garðbæingar voru sterkari í lokin. Íslenski boltinn 23. nóvember 2009 20:16
Snæfellingar snéru leiknum við í seinni hálfleik Snæfell vann ellefu stiga sigur á Tindastól, 90-79 í Stykkishólmi í Iceland Express deild karla í kvöld þrátt fyrir að hafa verið ellefu stigum undir í hálfleik. KR vann á sama tíma öruggan sigur á Breiðabliki í Smáranum. Körfubolti 23. nóvember 2009 20:15
Umfjöllun: Spenna í lokin þegar Keflavík lagði Grindavík Keflavík vann Grindavík í Iceland Express-deildinni í kvöld 97-89. Leikurinn var afbragðsskemmtun en úrslitin gefa aðeins skakka mynd af þeirri spennu sem var undir lokin. Grindvíkingar reyndu við þriggja stiga körfu til að jafna metin þegar fimm sekúndur voru eftir. Körfubolti 22. nóvember 2009 22:34
Friðrik: Alltaf vonbrigði að tapa leik „Slæm byrjun okkar í leiknum var lykillinn að sigri Keflavíkur,“ sagði Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur eftir stórleikinn í Iceland Express deildinni í kvöld. Körfubolti 22. nóvember 2009 21:25
Hörður Axel: Getum komist í magnaða stöðu „Þetta voru tvö hörkulið að spila og maður vissi að þetta yrði hörkuleikur," sagði Hörður Axel Vilhjálmsson, leikmaður Keflavíkur, eftir góðan sigur hans liðs á Grindavík í kvöld. Körfubolti 22. nóvember 2009 21:18
Iceland Express-deild karla: Keflavík vann Grindavík Þrír leikir fóru fram í Iceland Express-deild karla í körfubolta í kvöld þar sem hæst bar Suðurnesjaslagur Keflavíkur og Grindavíkur þar sem Keflavík fór með sigur af hólmi. Körfubolti 22. nóvember 2009 21:14
Hlynur: Það hjálpaði líka til að Nonni Mæju vaknaði Hlynur Bæringsson var traustur að vanda þegar Snæfellingar unnu 20 stiga sigur á ÍR í Iceland Express deild karla í kvöld. Hlynur var með 14 stig, 14 fráköst og 6 stoðsendingar í leiknum. Körfubolti 20. nóvember 2009 22:27
Ingi Þór: Ég var mjög stressaður fyrir þennan leik Ingi Þór Steinþórsson var mjög sáttur með sína menn eftir öruggan 20 stiga sigur á ÍR í Kennaraháskólanum í kvöld. Snæfell var með frumkvæðið allan leikinn en gerði út um leikinn með frábærum spretti í lok þriðja leikhluta. Körfubolti 20. nóvember 2009 22:19
Jón Arnar: Við eigum að geta betur en þetta Jón Arnar Ingvarsson, þjálfari ÍR var að sjálfsögðu ekki ánægður eftir 20 stiga tap á móti Snæfelli í kvöld. ÍR missti leikinn algjörlega frá sér á þriggja mínútna kafla í þriðja leikhluta. Körfubolti 20. nóvember 2009 22:09
Sigurganga Njarðvíkur heldur áfram Njarðvík er enn með fullt hús stiga eftir að hafa unnið sigur á Breiðabliki á heimavelli í kvöld, 78-64. Körfubolti 20. nóvember 2009 21:06
Páll Axel: Ég tala bara íslensku við hann Grindvíkingar hafa unnið tvo fyrstu leiki sína frá því að þeir réðu til sín Darrel Flake en hann á þó enn nokkuð í land að komast í sitt besta form ef marka má leikinn við Stjörnuna í gær. Flake er með 18,5 stig og 7,5 fráköst að meðaltali á tæpum 25 mínútum í þessum sigrum á Blikum og Stjörnunni. Körfubolti 20. nóvember 2009 15:45
Blikar þurftu að skipta um leikmenn áður en þeir komu til landsins Það hefur mikið gengið á í leikmannamálum Breiðabliks í Iceland Express deild karla síðustu daga en nú er ljóst að leikmennirnir tveir sem áttu að leysa John Davis af koma ekki til liðsins og Hrafn Kristjánsson, þjálfari liðsins þurfti því að hafa snögg handtök og finna nýja menn. Það tókst en aðeins annar þeirra verður með á móti Njarðvík í kvöld samkvæmt frétt á heimasíðu Blika. Körfubolti 20. nóvember 2009 12:30
Friðrik: Gríðarlega dýrmætt fyrir okkur að vinna þennan leik Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur var sáttur í leikslok eftir 93-83 sigur á Stjörnunni í Iceland Express deild karla í Grindavík í kvöld. Körfubolti 19. nóvember 2009 21:55
Teitur: Við vissum að þetta yrði brjálaður nóvember Teitur Örlygsson var ánægður með sína leikmenn þrátt fyrir tíu stiga tap í Grindavík í kvöld. Stjörnuliðið sýndi mikla seiglu í leiknum og hélt sér inn í leiknum allan leikinn en varð að sætta sig við tap í lokin. Körfubolti 19. nóvember 2009 21:50
Naumur sigur KR-inga Þrír leikir fóru fram í Iceland Express-deild karla í kvöld. KR vann nauman sigur á Hamar eftir að hafa verið undir næstum allan leikinn. Körfubolti 19. nóvember 2009 21:16
Grindvíkingar sýna beint frá leik sínum við Stjörnuna í kvöld Grindvíkingar taka á móti Stjörnunni í stórleik kvöldsins í Iceland Express deild karla í Röstinni í Grindavík í kvöld og það má fylgjast með gangi mála á umfg.is Körfuknattleiksdeild Grindavíkur er nú farin að sýna beint frá heimaleikjum liðsins og fylgir þar með í fótspor KR, KFÍ, Fjölnis og fleiri liða. Körfubolti 19. nóvember 2009 17:00
Iceland Express-deild karla: KR aftur á sigurbraut Þrír leikir fóru fram í Iceland Express-deild karla í kvöld þar sem KR, Keflavík og Snæfell fóru með sigra af hólmi. KR-ingar komust aftur á sigurbraut eftir tvö töp gegn Njarðvík með skömmu millibili í deild og bikar þegar þeir unnu 71-100 sigur gegn Fjölni í Grafarvoginum í kvöld. Körfubolti 13. nóvember 2009 21:02