„Það er leitt að sjá á eftir góðu baráttufólki“ Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, segir leitt að sjá á eftir góðu baráttufólki en Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sagði sig úr flokknum í dag. Sanna fagnar gagnrýni en segir engan árangur nást fari allur tíminn í naflaskoðun. Innlent 23.4.2025 22:03
Gríðarlegir fjármunir sveitarfélaga í öryggisvistanir Reykjavíkurborg ver álíka upphæð í öryggisvistanir fyrir tæplega fjörtíu manns og í sértækan húsnæðisstuðning fyrir 4500 manns. Sviðsstjóri velferðarsviðs segir málflokkinn afar umfangsmikinn og löngu tímabært að breyta og bæta lagaumhverfi. Borgin sé að sinna verkefni sem henni beri ekki að sinna. Innlent 23.4.2025 19:00
Mótmæla hagræðingum og segja þær bitna á konum Í umsögn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, BSRB, um fjármálaáætlun 2026 til 2030 er fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar mótmælt nokkuð hressilega. Ríkisstjórnin er sögð ætla að draga úr umsvifum hins opinbera í hagkerfinu, án nokkurs rökstuðnings, á sama tíma og þarfir almennings aukast og verða flóknari. Innlent 23.4.2025 16:56
Eldur Smári segir að sér sé markvisst haldið í myrkrinu Eldur Smári Kristinsson, formaður samtakanna 22, sem hefur verið kærður fyrir hatursorðræðu af Samtökunum ´78, segir að gögnum málsins sé markvisst haldið frá sér. Innlent 23. apríl 2025 07:35
Af hverju hræðist fólk kynjafræði? Samfélagið okkar breytist hratt og stöðugt. Fólk hefur mismunandi bakgrunn, reynslu og lífssýn og það er mikilvægt að skólakerfið taki mið af því. Eitt skref í þá átt er að kenna kynjafræði í framhaldsskólum. Skoðun 23. apríl 2025 07:02
„Skrítið og óeðlilegt“ að Ísrael fái að vera með í Eurovision Utanríkisráðherra segir óeðlilegt að Ísrael fái að taka þátt í Eurovision, og vill að Ísland beiti sér á vettvangi Samtaka evrópskra sjónvarpsstöðva gegn þátttöku Ísraela. Ráðherra telur þó að Ísland eigi ekki að sniðganga keppnina. Innlent 22. apríl 2025 12:10
Vill að allir flokkar hafi hlutverk í borgarstjórn Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, og Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, tókust á um borgarmálin í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þær ræddu leikskólamálin og húsnæðismálin og voru ekki sammála um margt. Innlent 22. apríl 2025 10:33
Reyndu að fá Ingu á sitt band með fötu af „extra crispy“ kjúklingavængjum Katrín Eir Ásgeirsdóttir, forseti KÍNEMA, nemendafélags Kvikmyndaskóla Íslands og Breki Snær Baldursson, varaforseti, félagsins fóru með tíu leggja fötu af „extra crispy“ kjúklingavængjum til Ingu Sæland, félags- og vinnumarkaðsráðherra, í tilraun til að fá hana til að bjarga Kvikmyndaskólanum. Katrín og Breki ræddu mál skólans í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Innlent 22. apríl 2025 09:16
Mjög gjarnan kölluð nasisti og fasisti Diljá Mist Einarsdóttir lögfræðingur og Alþingismaður segist orðin vön því að vera kölluð nasisti og fasisti og hún sé byrjuð að undirbúa börnin sín undir að sjá umræðu um sig á netinu. Innlent 22. apríl 2025 08:48
Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni? Það er aldrei einfalt eða auðvelt að tilkynna um ofbeldi gegn barni og þó að lögin segi með skýrum hætti að okkur beri að tilkynna ef okkur grunar að barn hafi orðið fyrir ofbeldi þá hika mörg við að tilkynna. Skoðun 22. apríl 2025 08:32
Forsætisráðherra vill sjá nýtt fangelsi á Stóra Hrauni sem fyrst Forsætisráðherra leggur áherslu að framkvæmdir við nýtt fangelsi á Stóra Hrauni á Eyrarbakka hefjist sem fyrst enda byggingarnar í fangelsinu á Litla Hrauni orðnar mjög lélegar og verða þær meira og minna jafnaðar við jörðu með tilkomu nýja fangelsisins. Innlent 21. apríl 2025 20:05
„Til hamingju hálfvitar“ Börkur Gunnarsson, fyrrverandi rektor Kvikmyndaskólans, gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega fyrir „að leggja menntastofnun í rúst“ og „ráðast gegn þekkingu og menntun“. Innlent 21. apríl 2025 19:00
Lögmaður þurfi ekki að hafa áhyggjur af þekkingu ráðherra Dómsmálaráðherra gefur lítið fyrir gagnrýni lögmanns á meinta vanþekkingu hennar á eigin málaflokki. Starfshópur sem hún skipaði til að yfirfara reglur um dvalarleyfi sé mannaður af sérfræðingum í málaflokknum. Innlent 21. apríl 2025 12:12
Páskakveðjur stjórnmálaflokka: Gervigreind, páskaeggjaleit og Sigmundur með kanínueyru Stjórnmálaflokkarnir á Alþingi senda misfrumlegar og mislangar páskakveðjur. Segja má að ríkisstjórnarflokkarnir leggi meira púður í kveðjur sínar sem eru þó allar þrjár ólíkar. Miðflokkur og Sjálfstæðisflokkur senda einfaldar kveðjur en þingflokkur Framsóknar enga. Lífið 21. apríl 2025 00:10
Vanþekking ráðherra sé áhyggjuefni Lögmaður gagnrýnir dómsmálaráðherra fyrir að hafa farið með rangt mál í tilkynningu sinni um skipan starfshóps sem yfirfara á reglur um dvalarleyfi á Íslandi. Hann segir þegar til staðar ákvæði í lögum um dvalarleyfi mansalsfórnarlamba, þau séu ekki nýtt. Innlent 20. apríl 2025 22:56
Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Ásthildur Lóa Þórsdóttir og eiginmaður hennar hafa sett hús sitt við Háhæð í Garðabæ á sölu. Þau keyptu húsið á 55,4 milljónir árið 2007, misstu það þegar húsið var selt á uppboði 2017 en keyptu það aftur 2019 af Arion banka á 55,5 milljónir. Ásett verð hússins er nú 174,9 milljónir. Innlent 20. apríl 2025 19:13
Skrítið ef ríkið hefur ekki áhuga á Háholti Þingmaður Viðreisnar vill að nýr barnamálaráðherra skoði það að alvöru að reka aftur meðferðarheimili fyrir börn að Háholti í Skagafirði. Skrítið sé að nýta húsnæðið ekki á meðan málaflokkurinn er á jafnslæmum stað og hann er núna. Innlent 20. apríl 2025 14:02
Ræddi við foreldra og hætta við miklar hækkanir Kópavogsbær hefur hætt við brattar hækkanir á gjaldskrá vegna sumarnámskeiða bæjarins. Bæjarstjórinn segist hafa rætt við foreldra í bænum um málið og ákveðið að leggja fram nýja tillögu á fundi bæjarráðs. Innlent 20. apríl 2025 12:11
Bjóst ekki við að ríkisstjórnin héldi meirihluta „Þetta var ekki ár vonbrigða heldur ár endurfæðinga,“ segir Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, í viðtali í Sprengisandi. Innlent 20. apríl 2025 11:26
Gagnrýnir brattar hækkanir: „Þetta er bara dapurlegt“ Bæjarfulltrúi í Kópavogi segir miklar hækkanir á gjaldskrá vegna sumarnámskeiða bæjarins vera fráleitar. Það sé dapurlegt að ungmennaráð fái ekki að ræða hækkanirnar. Innlent 19. apríl 2025 20:02
Eitthvað búi að baki „meira en þrá hans eftir friði“ Utanríkisráðherra segir páskavopnahlé í átökum Rússa við Úkraínu óvænt og jákvætt skref en öllum ákvörðunum Pútín beri að taka með fyrirvara. Eitthvað meira liggi að baki ákvörðuninni en þrá eftir friði. Tortryggnin sé mikil þegar kemur að einræðisherra á borð við Pútín. Innlent 19. apríl 2025 18:59
Gamall ráðherra vildi nýtt hús, en nýr ráðherra gæti fengið gamalt hús Meðferðarheimilið Háholt í Skagafirði er komið aftur á sölu. Sveitarstjóri telur húsið henta vel sem meðferðarheimili fyrir börn en ríkið hefur hingað til ekki haft áhuga á því. Hann vonar að nýr ráðherra endurskoði þá afstöðu. Innlent 18. apríl 2025 18:23
„Ágæt ábending“ um bótaþega en tekur ekki undir allar athugasemdir fjármálaráðs Fjármálaráð gerir margvíslegar athugasemdir í umsögn sinni um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem nú er í meðförum Alþingis. Ráðið gagnrýnir meðal annars að því sé gert ókleyft að uppfylla lögbundið hlutverk sitt vegna nýs verklags, og þá er áhyggjum lýst af því að boðaðar breytingar á örorku- og ellilífeyrisbótakerfinu geri bótaþegum hærra undir höfði en launþegum. Innlent 18. apríl 2025 14:57
Hafþór keppir í Rússlandi: „Auðvitað veldur þessi ákvörðun ákveðnum vonbrigðum“ Utanríkisráðherra segir vonbrigði að kraftlyftingakappinn Hafþór Júlíus Björnsson hafi ákveðið að taka þátt á kraftlyftingamóti í Síberíu í Rússlandi um páskana. Hafþór Júlíus er einn af sjö erlendum keppendum á mótinu sem kallast Siberian Pro og fer fram 19. og 20. apríl. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, segir íþróttafólki frjálst að taka þátt í þeim keppnum sem það kýs, en þykir þátttakan umhugsunarverð í ljósi stríðsreksturs Rússa í Úkraínu. Innlent 17. apríl 2025 16:24