Myndaveisla: Dagur B fékk viðstadda til að sperra upp eyrun Um sjö hundruð háskólanemar mættu í eina stærstu vísindaferð landsins til að kynna sér frumkvöðlakeppnina Gulleggið í Grósku á dögunum. KLAK - Icelandic Startups stóð fyrir viðburðinum sem hefur fest sig í sessi meðal eftirsóttustu viðburða hjá nemendum háskóla landsins. Lífið 19. janúar 2024 13:02
Verðlaunaðir fyrir umhverfisvænt sementslaust steinlím Gonzalo Patricio Eldredge Arenas og Heiðar Snær Ásgeirsson hlutu nýsköpunarverðlaun forseta Íslands við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Verðlaunin eru veitt þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefna sem styrkt voru af Nýsköpunarsjóði námsmanna árið 2023. Viðskipti innlent 18. janúar 2024 16:28
Sögurnar í fyrra: Því lífið er svo miklu meira en bara vinnan Við upplifum mörg mikla ástríðu fyrir vinnunni okkar. En vitum að lífið er svo miklu meira en vinnan. Viðtölin í Atvinnulífinu taka mið af þessu og þar er mannlega hliðin því alltaf í fyrirrúmi. Enda eru þessi viðtöl vel lesin. Atvinnulíf 14. janúar 2024 08:00
Þátttakan skapi gríðarleg tækifæri til fjárfestingar í nýsköpun Þátttaka Íslands í InvestEU áætluninni mun skapa gríðarleg tækifæri til fjárfestingar í nýsköpun með áherslu á stafræna þróun og grænar lausnir. Þetta segir nýsköpunarráðherra sem kynnti verkefnið í morgun. Viðskipti innlent 10. janúar 2024 14:00
Bein útsending: Þátttaka Íslands í InvestEU-áætluninni Kynningarfundur um þátttöku Íslands í InvestEU-áætluninni og framkvæmd hennar fer fram klukkan 9:30 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi. Viðskipti innlent 10. janúar 2024 09:00
„Salan var algjörlega háð því hvað Þórólfur sagði á fundum“ „Helgi var einkaþjálfari þegar að við kynntumst og í viðskiptafræði í háskólanum. Við gerðum samkomulag um að ég væri hjá honum í líkamsrækt þrisvar í viku og síðan kom hann til mín á mánudögum klukkan fimm og ég kenndi honum forritun og fleira fyrir tölvukúrsana hans. Síðan borðaði hann með okkur,“ segir Maron Kristófersson framkvæmdastjóri Aha.is þegar hann rifjar upp kynni hans og meðstofnanda hans, Helga Má Þórðarsonar. Atvinnulíf 8. janúar 2024 07:01
Tekur við sem forstöðukona nýsköpunar og atvinnulífs í HR Ólöf Vigdís Ragnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðukona nýsköpunar og atvinnulífstengsla hjá Háskólanum í Reykjavík. Viðskipti innlent 4. janúar 2024 10:24
Mesta tæknibylting frá upphafi mun hafa fordæmalausar breytingar á lífi allra Upplýsingatækni er sá geiri sem þróast hvað hraðast. „Næstu ár verða sérstaklega áhugaverð enda mesta tæknibylting frá upphafi tengd gervigreind sem mun hafa fordæmalausar breytingar á lífi allra,“ segir Gunnar Zoëga, forstjóri OK. Opin Kerfi og Premis sameinuðust í fyrra undir nafninu OK. Innherji 28. desember 2023 08:49
Íslenskt fyrirtæki á lista Financial Times yfir framúrskarandi fyrirtæki Íslenska tæknifyrirtækið Treble Technologies, sem sérhæfir sig í hljóðhermun, er á lista Financial Times yfir þau fyrirtæki sem þóttu skara fram úr á árinu. Viðskipti innlent 25. desember 2023 15:58
Samherji finnur not fyrir gamla Landsbankahúsið Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, og Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, hafa stofnað frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtæki sem verður til húsa í gamla Landsbankahúsinu við Ráðhústorg á Akureyri. Fyrirtækið mun bera nafnið Drift EA. Viðskipti innlent 21. desember 2023 10:10
Kaupverðið á PayAnalytics getur orðið allt að sex milljarðar Kaupverð PayAnalytics getur numið allt að fimm til sex milljörðum króna gangi tiltekin afkomumarkmið eftir, samkvæmt heimildum Innherja. Til samanburðar er markaðsvirði flugfélagsins Play 6,5 milljarðar króna. Innherji 20. desember 2023 14:08
Bala safnar um 700 milljónum í vísisjóð Founders Ventures Management, sem stýrt er af Bala Kamallakharan, vinnur að því að stækka vísisjóð um um það bil fimm milljónir bandaríkjadala, jafnvirði um 700 milljónir króna. Sjóðurinn fjárfestir í fyrirtækjum á hugmyndastigi og við það yrði hann um 9,5 milljónir dala, jafnvirði um 1,3 milljarðar króna. Innherji 15. desember 2023 07:19
Meniga tilkynnir um 2,2 milljarða fjármögnun Meniga hefur tilkynnt um 15 milljóna evru fjármögnun, sem samsvarar um 2,2 milljörðum íslenskra króna, í D-fjármögnunarlotu. Þátttakendur í fjármögnungarlotunni voru stórir evrópskir bankar eins og BPCE og Crédito Agrícola, fjárfestingafélagið Omega ehf, ásamt þátttöku margra af núverandi hluthöfum. Viðskipti innlent 14. desember 2023 11:28
Sala PayAnalytics kemur „ljómandi vel út“ fyrir Nýsköpunarsjóð Svissneska fyrirtækið Beqom hefur keypt hugbúnaðarfyrirtækið PayAnalytics. Kaupin koma „ljómandi vel út“ fyrir Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins, segir framkvæmdastjóri sjóðsins í samtali við Innherja, sem var á meðal hluthafa. Þriðjungur af kaupverðinu er greiddur með reiðufé. Innherji 12. desember 2023 21:09
Tækifæri CRI þrefaldast á skömmum tíma Íslenska tæknifyrirtækið Carbon Recycling International (CRI) hefur selt hinu þýska P1 Fuels búnað til framleiðslu á rafeldsneyti sem notað verður meðal annars fyrir akstursíþróttir. Forstjóri CRI segir að þau tækifæri sem fyrirtækið hafi til skoðunar hafi þrefaldast á skömmum tíma. Innherji 8. desember 2023 10:52
Margföldunaráhrif: Að ráða einn alþjóðlegan sérfræðing skapar vinnustaðnum fimm sérfræðinga „Það er talað um að einn alþjóðlegur sérfræðingur sem ráðinn er inn á íslenskan vinnustað, skapi fimm sérfræðinga,“ segir Nanna Elísa Jakobsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði Samtaka iðnaðarins (SI) sem dæmi um hversu mikil verðmæti geta falist í því fyrir íslensk fyrirtæki að ráða erlenda sérfræðinga til starfa. Atvinnulíf 7. desember 2023 07:00
Verður Ísland útibúaland eða land höfuðstöðva blárrar nýsköpunar? Á skömmum tíma hafa mörg af mest hraðvaxandi fyrirtækjum hérlendis verið seld erlendum fjárfestum. Við fögnum þessum aukna áhuga erlendra fjárfesta á íslenskri nýsköpun og auðlindum henni tengdri. En þessi þróun kallar þó á að við metum hvaða áhrif hún getur haft á íslenska nýsköpun og athafnalíf. Eins er mikilvægt að rekstrarskilyrði þessara fyrirtækja séu sem best þannig að höfuðstöðvar þeirra haldist hér áfram. Sjávarklasinn hefur ekki hingað til talið skipta máli hvaða litur er á vegabréfum eigenda íslenskra fyrirtækja en þegar erlendir aðilar taka að fullu yfir okkar framsæknustu fyrirtæki er ástæða til að skoða áhrifin af því. Í þessari greiningu Sjávarklasans er fjallað um erlenda fjárfestingu og möguleg áhrif hennar á bláa hagkerfið hérlendis. Skoðun 30. nóvember 2023 17:00
Nýtni ömmu: „Gömlum jakkafötum var snúið á rönguna og saumuð ný“ „Amma henti aldrei neinu, heldur nýtti allt, gömlum jakkafötum var snúið á rönguna og saumuð ný,“ segir Hrefna Sigurðardóttir vöruhönnuður og annar eigandi Fléttu. Atvinnulíf 29. nóvember 2023 07:01
Öll familían alltaf að tala um vinnuna, líka mamma og pabbi „Nei alls ekki,“ svarar Hrafnhildur Hermannsdóttir aðspurð um það hvort eiginmaðurinn Kristófer Júlíus Leifsson, annar stofnandi Eldum rétt, hafi þá strax verið svona góður í að elda. Atvinnulíf 27. nóvember 2023 07:01
Treble stefnir á um tveggja milljarða fjármögnun frá erlendum fjárfestum Djúptæknifyrirtækið Treble Technologies stefnir á 12-15 milljón evra fjármögnun, jafnvirði 1,8-2,3 milljarða króna, frá erlendum fjárfestum og fjölga starfsmönnum úr 32 í um 50 hérlendis. Evrópski fjárfestingarbankinn hefur skuldbindið sig til að taka þátt í fjárfestingarlotunni og leggja fram jafn háa fjárhæð og safnast frá öðrum fjárfestum, upplýsir framkvæmdastjóri sprotafyrirtækisins. Innherji 20. nóvember 2023 14:01
Bein útsending: Dagur verkfræðinnar Dagur verkfræðinnar verður haldinn á Hótel Hilton í dag og verður í beinu streymi hér á Vísi. Dagskráin hefst klukkan 13.00 og lýkur klukkan 17.00. Viðskipti innlent 17. nóvember 2023 12:47
Edda Aradóttir á lista TIME Edda Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix er á lista TIME yfir 100 áhrifamestu viðskiptaleiðtoga á sviði loftslagsmála. Það kemur fram í tilkynningu frá Carbfix. Viðskipti innlent 16. nóvember 2023 19:17
Pink Iceland verðlaunuð í annað skipti Pink Iceland hlaut Nýsköpunarverðlaun og Skriðuklaustur í Fljótsdal Nýsköpunarviðurkenningu ferðaþjónustunnar fyrir árið 2023. Verðlaunin voru afhent á 25 ára afmælisráðstefnu samtakanna á Hilton Reykjavík Nordica í gær. Viðskipti innlent 16. nóvember 2023 16:29
Þrívíddarprentuð Hallgrímskirkja úr málmi á Degi verkfræðinnar Dagur verkfræðinnar verður haldinn í áttunda sinn á morgun. Þar verða haldnir fyrirlestrar um hin ýmsu verkfræðiverkefni og verður Teningurinn veittur. Hann er viðurkenning Verkfræðingafélags Íslands fyrir framúrskarandi verkefni. Innlent 16. nóvember 2023 16:05
Kría fjárfesti í erlendum vísisjóðum eins og tíðkist í Danmörku og Finnlandi Kría, sjóður á vegum ríkisins sem fjárfestir í vísisjóðum, ætti horfa til sambærilegra sjóða í Danmörku og Finnlandi sem fjárfesta einnig í erlendum vísisjóðum. Það gæti verið gert með skilyrði um að erlendi vísisjóðurinn fjárfesti einnig á Íslandi. Með því mun Kríu takast að byggja upp tengsl við alþjóðlega samstarfsaðila, segir ráðgjafi sprotafyrirtækja sem aðstoðar þau við erlenda tengslamyndun. Innherji 15. nóvember 2023 15:15
„Of þröng“ viðmið fyrir kauprétti í nýsköpunarfyrirtækjum Endurskoða þarf skattalega meðferð kauprétta starfsfólks í nýsköpunar- og hugverkafyrirtækjum. Viðmiðin eru of þröng og henta ekki þorra fyrirtækja í hugverkaiðnaði, segir sviðsstjóri hjá Samtökum iðnaðarins. Danskur stjórnandi vísisjóðs sagði að skynsamleg ráðstöfun kauprétta væri mikilvægur þáttur til að skapa frjóan jarðveg til að sprotafyrirtækið geti blómstrað og orðið að einhyrningum. Innherji 9. nóvember 2023 13:23
Rafnar kaupir Rafnar-Hellas Haftæknifyrirtækið Rafnar ehf. hefur keypt meirihluta í gríska skipasmíðafélaginu Rafnar-Hellas. Rafnar á Íslandi hefur unnið með Rafnar-Hellas frá árinu 2019, en það er það fyrirtæki sem hefur smíðað flesta báta í heiminum samkvæmt hönnun Rafnar. Lykilstarfsmenn og stofnendur Rafnar-Hellas munu koma inn í framkvæmdastjórn móðurfélagsins ásamt því að verða áfram eigendur að hluta í félaginu. Viðskipti innlent 9. nóvember 2023 08:57
Opinber sjóðasjóður sem fjárfestir ekki bara í Danmörku breytti miklu Einn af lykilþáttum þess að efla nýsköpunarumhverfið í Danmörku var að koma á laggirnar opinberum sjóði sem fjárfestir í vísisjóðum sem fjárfesta í sprotafyrirtækjum. Sjóðasjóðurinn fjárfestir ekki einungis í dönskum vísisjóðum heldur einnig í alþjóðlegum sjóðum í von um að hluti af fjármagninu muni rata til danskra fyrirtækja, sagði Tommy Andersen, meðstofnandi að danska vísisjóðnum byFounders, en hann hefur veitt dönskum og íslenskum stjórnvöld ráðgjöf um sprotaumhverfið. Innherji 7. nóvember 2023 14:19
Vísisjóðir á eftir sprotum sem seldir verða fyrir meira en 100 milljónir dala Fjögur íslensk fyrirtæki, sem eitt sinn voru sprotar, hafa verið seld fyrir meira en 100 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði um 14 milljarða króna. Vísisjóðir þurfa að selja einhver fyrirtæki í eignasafninu fyrir slíkar fjárhæðir til að ná góðri ávöxtun. Innlendir vísisjóðir eru með rúmlega 140 erlenda meðfjárfesta í fyrirtækjunum sem þeir styðja við, segir stjórnandi vísisjóðs. Innherji 6. nóvember 2023 15:17
Nýsköpunarlandið Ísland? Á fjárlögum 2024 er áætlaður niðurskurður um rúmlega milljarð í samkeppnissjóði Vísinda- og tækniráðs, Rannsóknasjóð, Tækniþróunarsjóð og Innviðasjóð. Niðurskurður á Rannsóknasjóði einum og sér nemur tæpum hálfum milljarði, en það samsvarar ársverkum 70 doktorsnema. Skoðun 6. nóvember 2023 12:01