„Mitt hlutverk að gera fyrirtækin mannréttindasinnaðri“ Róbert Spanó, lögmaður og fyrrverandi forseti Mannréttindadómstóls Evrópu, segir ábyrgð fyrirtækja á einkamarkaði hafa breyst mikið síðastliðin ár. Kröfur neytenda séu meiri og háværari um til dæmis sjálfbærni. Hugtakið um sjálfbærni hafi svo einnig víkkað og taki nú einnig til mannréttinda. Viðskipti innlent 24. janúar 2024 07:41
Enn fleiri sektaðir vegna fullyrðinga um CBD Neytendastofa hefur sektað Fitness Sport ehf og Ozon ehf fyrir fullyrðingar um lyfjavirkni snyrtivara sem innihalda CBD og fyrirtækin selja á heimasíðu sinni og auglýsa á samfélagsmiðlum. Fjöldi fyrirtækja hefur verið sektaður fyrir það sama undanfarið ár. Neytendur 19. janúar 2024 15:19
Dropp stal efsta sætinu af bensíninu hjá Costco Póstþjónustufyrirtækið Dropp er sigurvegari Íslensku ánægjuvogarinnar 2023. Fyrirtækið fékk hæstu einkunnina frá neytendum eða 83,9. Íslandsbanki hlaut lægstu einkunn ársins 53,9. Neytendur 19. janúar 2024 09:31
Bein útsending: Ánægjuvogin afhent Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar verða birtar í dag. Þetta er í tuttugasta og fimmta skipti sem ánægja íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti. Að þessu sinni verða birtar niðurstöður fyrir fjórtán atvinnugreinar og hafa þær sjaldan verið fleiri. Viðskipti innlent 19. janúar 2024 07:31
Segir neytendur ósátta með miklar breytingar á rafrettureglum Reglur um rafrettur taka gífurlegum breytingum um mánaðamótin. Neytendur eru alls ekki sáttir að sögn verslunareiganda sem vill meina að breytingarnar séu slæmar fyrir alla sem koma að viðskiptunum, sem og umhverfið. Neytendur 18. janúar 2024 20:00
HSÍ sendir Ölver viðvörun Handknattleikssamband Íslands hefur sent bréf til eigenda skemmtistaðarins Ölver þar sem þeim er stranglega bannað að birta myndir af landsliðsmönnum í handbolta í auglýsingum sínum. Gömul mynd af Sigga Sveins með Þrótti er í staðinn dregin fram. Innlent 18. janúar 2024 12:57
Bein útsending: Ný leiguvísitala kynnt til leiks Hús- og mannvirkjastofnun efnir til kynningarfundar um nýja vísitölu leiguverðs og upplýsingar úr nýrri leiguskrá sem stofnunin hefur sett á laggirnar. Fundinum er streymt í beinni og hefst klukkan 10. Neytendur 18. janúar 2024 09:54
Leggjast yfir umdeilt gjald sem færðist aftur yfir á almenning Hæstiréttur ætlar að leggjast yfir deilur Landsvirkjunar við Landsnet um innheimtu Landsnets á svonefndu aflgjaldi. Héraðsdómur og Landsréttur hafa þegar úrskurðað gjaldið ólögmætt. Neytendur 18. janúar 2024 09:00
Segja þeim upp sem hækka verð verulega Samkaup, sem reka um sextíu verslanir á landinu á borð við Nettó og Krambúðina, segjast hafa fengið jákvæð viðbrögð frá ýmsum samstarfsaðilum um aðgerðir gegn verðbólgu. Á næstu misserum muni fyrirtækið ræða við alla sína birgja með það að markmiði að verðlækkanir skili sér í vöruverði til almennings. Hætt verði sölu á þeim vörum sem hækkað hafi óhóflega og ódýrari sambærilegar vörur valda til sölu. Neytendur 17. janúar 2024 13:01
Karamelluskyrið rýkur upp í verði Verð á mjólkurvörum hækkaði í mörgum verslunum milli fyrstu og annarrar viku ársins samkvæmt niðurstöðum verðlagseftirlits ASÍ. Heildsöluverð á mjólk hækkaði um 1,6 prósent þann 8. janúar sem er strax farið að skila sér í meiri kostnaði fyrir neytendur. Áhugafólk um karamelluskyr finnur sérstaklega fyrir hækkun. Neytendur 17. janúar 2024 11:17
Fresta gjaldtökunni umdeildu Stjórnendur og stjórn Isavia Innanlandsflugvalla hafa ákveðið að fresta gjaldtöku á bílastæðum á flugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum þar til síðar á þessu ári. Neytendur 17. janúar 2024 10:44
Nespresso ekki fyrir óbreytta starfsmenn Lyfjastofnun vill koma á framfæri athugasemd en stofnunin greiðir ekki fyrir kaffineyslu starfsmanna. Þá hefur borist athugasemd frá starfsfólki LSH og er sagt að spítalinn fjármagni sannarlega ekki lúxuskaffidrykkju klínískra starfsmanna. Innlent 12. janúar 2024 13:55
Opinberir starfsmenn þamba Nespresso fyrir milljónir Samkvæmt Opnum reikningum kostar kaffineysla hið opinbera sitt. Starfsmenn ríkisins spara í engu við sig í mat og drykk og alls ekki þegar gæðakaffi er annars vegar. Innlent 12. janúar 2024 11:32
Segir söluhrun á degi einhleypra eiga sér eðlilegar skýringar Brynja Dan, forsprakki dags einhleypra á Íslandi og bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Garðabæ, segir söluhrun á þessum afsláttadegi á síðasta ári eiga sér eðlilegar skýringar. Sé litið til sölu yfir dagana þrjá í kringum 11. nóvember sé ljóst að salan sé enn gríðarlega mikil. Viðskipti innlent 12. janúar 2024 07:47
Fær geymsluna á bílnum og þrifin endurgreidd að fullu Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur komist að því að fyrirtæki sem sér um geymslu og þrif bifreiða á meðan fólk ferðast þarf að endurgreiða manni 38.900 krónur og greiða 35 þúsund krónur í málskostnaðargjald. Neytendur 11. janúar 2024 08:00
Leigubílstjórar fá ekki árskort og kostnaður gæti margfaldast Isavia hefur gert breytingar á gjaldheimtu á leigubílastæðinu við Leifsstöð. Stakt gjald fyrir innakstur á stæðið helst óbreytt en árskort standa ekki lengur til boða. Ljóst er að kostnaður leigubílstjóra sem vinna mikið við að aka fólki til og frá Keflavíkurflugvelli gæti margfaldast. Viðskipti innlent 10. janúar 2024 11:02
Tónninn gjörbreyttist þegar „eiginkonan“ hafði samband Smiður sem tók að sér að smíða fallegan skáp fyrir um hálfa milljón króna tilkynnti kaupanda að vegna heilsufarsbrests gæti hann ekki lokið við verkið eins og samið var um. Þegar kaupandi hafði samband í nafni eiginkonu sinnar og ætlaði að kaupa annað verk tók smiðurinn vel í það erindi. Neytendur 10. janúar 2024 10:31
Bréfpokar undir matarleifar ekki lengur í verslunum Frá og með morgundeginum mun Sorpa hætta dreifingu bréfpoka undir matarleifar í verslunum. Áfram geta íbúar sótt bréfpokana endurgjaldslaust á endurvinnslustöðvum Sorpu og í verslun Góða hirðisins. Neytendur 9. janúar 2024 16:24
Sala á Degi einhleypra hrynur Neytendur horfðu lítið sem ekkert til Dags einhleypra (e. Singles Day) þegar þeir versluðu jólagjafir þetta árið. Viðskipti innlent 9. janúar 2024 15:54
„Computer says no“ hjá Play vegna ónýts farangurs „Mér finnast þau bara alveg ömurleg,“ segir Kristján Sævald Pétursson um viðbrögð Play en hann varð fyrir því á dögunum að taskan hans eyðilagðist í flugi með flugfélaginu. Neytendur 3. janúar 2024 14:00
Fordæmir viðbrögð Play eftir að taska gjöreyðilagðist í flugi „Við komuna á Kastrup fór ég eins og venja er að ná í töskuna mína en í stað þess að fá hana til baka eins og venjulega þá kom taskan til mín gjörsamlega í henglum brotin á alla kanta og hékk bókstaflega saman á lyginni einni saman.“ Neytendur 3. janúar 2024 10:16
Skordýr í kryddi og glerbrot í súpu Krydd sem var flutt inn af Krónunni og selt í verslunum hennar hefur verið innkallað vegna þess að skordýr fannst í því. Þá hefur Sælkerabúðin ákveðið að innkalla súpu því að í henni fundust glerbrot. Neytendur 29. desember 2023 17:08
Viðskiptafréttir ársins 2023: Sala áratugarins, vandræði Marel og heljarinnar gjaldþrot Árið sem líður var, eins og nánast öll ár, viðburðaríkt hvað varðar viðskiptin. Árið einkenndist af ítrekuðum stýrivaxtahækkunum, síhækkandi verðalagi og mikilli lækkun hlutabréfaverðs en einnig stórum sigrum í atvinnulífinu. Viðskipti innlent 29. desember 2023 15:56
Icelandair skýri betur fjárhæð skrópgjalds og fleira til Neytendastofa hefur beint þeim fyrirmælum til Icelandair að tilgreina í flutningsskilmálum sínum með hvaða hætti farþegar skuli senda félaginu tilkynningar um að þeir hyggist ekki nýta einhvern hluta flugmiða og fyrir hvaða tímamark. Neytendur 28. desember 2023 14:31
Flugeldarnir kosta það sama og í fyrra Flugeldasala hefst hjá björgunarsveitum landsins í dag. Verð á flugeldum er það sama og í fyrra vegna hagstæðs gengis þegar flugeldarnir voru keyptir frá Kína. Innlent 28. desember 2023 12:32
Opna nýja flöskumóttöku í Reykjavík Endurvinnslan hf hefur opnað nýja flöskumótöku við Köllunarklettsveg 4 í Reykjavík, beint á móti Góða hirðinum. Í stöðinni eru tvær talningarvélar sem telja og flokka heilar umbúðir og geta afkastað um þrettán milljónum eininga á ári. Neytendur 28. desember 2023 12:22
Notuð bókasafnsbók versta jólagjöfin Fjöldi fólks skilaði jólagjöfum í Kringlunni í gær þegar verslanir voru opnaðar á ný eftir jólahátíðina. Einn sagði hnífasett bestu gjöfina en notaða bók þá allra verstu. Innlent 28. desember 2023 10:03
Gjafakort virki svo sannarlega á útsölum Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir gjafakort svo sannarlega virka á útsölum. Hann hafi farið með rangt mál í Bítinu á Bylgjunni í morgun þegar hann fullyrti hið gagnstæða. Rætt var um jólaverslunina í ár í þættinum í morgun. Neytendur 27. desember 2023 15:29
Dýrara í Strætó á nýju ári Ný gjaldskrá hjá Strætó tekur gildi þann 8. janúar næstkomandi. Hækkunin nemur að meðaltali 11% yfir alla fargjaldaflokka. Sem dæmi má nefna að stakt fargjald fer úr 570 kr. í 630 kr. og 30 daga nemakort fer úr 4500 kr. í 5.200 kr. Verð á Klapp plastkortum helst þó óbreytt eða 1.000 kr. Neytendur 21. desember 2023 15:16
Letrið of smátt og lýsingarorðin of jákvætt hlaðin Mat Neytendastofu er að GS Verslanir ehf, rekstraraðila GS Búlluna, hafi brotið gegn auglýsingarbanni með því að birta myndir og myndbönd af nikótínvörum, rafrettum og áfyllingum fyrir þær á samfélagsmiðlum. Hefur félaginu verið bannað að birta auglýsingarnar. Neytendur 21. desember 2023 11:04