Frumsýning á Vísi: Stikla úr sýningunni Óskaland Vísir frumsýnir hér glænýja stiklu úr sýningunni Óskaland í tilefni af frumsýningu leikritsins á Stóra sviði Borgarleikhússins. Óskaland er fyndin og hjartnæm sýning um fjölskylduflækjur og kynslóðabil. Leikstjórn er í höndum Hilmis Snæs Guðnasonar. Lífið 11. október 2024 14:02
Teknó baróninn á Radar á laugardag Bresti tónlistarmaðurinn og plötusnúðurinn Dave Clarke kemur fram á Radar ásamt víetnamska plötusnúðinum DJ Chica um helgina. Lífið 11. október 2024 14:02
Andinn á tökustað í Glæstum vonum: „Spurði fyrst hvort ég gæti verið vondur tvífari“ Dröfn Ösp Snorradóttir heimsótti tökustað hjá Glæstum vonum í Íslandi í dag í vikunni og hitti leikarana og rokkstjörnuna Jökul Júlíusson söngvara Kaleo sem kom fram í þáttunum sem gestaleikara á dögunum. Lífið 11. október 2024 11:30
Spilar á flygil innan um risatrukka: „Spurning um líf og dauða fyrir klassíska tónlist“ Bjarni Frímann heldur einleikstónleika á píanó á bílaverkstæði um helgina. Hann segir að vinna þurfi klassískri tónlist nýjar veiðilendur þar sem hægfara sjálfseyðing blasi við. Bransinn neiti að horfast í augu við að meðalaldur hlustenda hækki og að nýliðun sé lítil sem engin. Lífið 11. október 2024 07:03
Hlátrarsköll á svartri kómedíu Frumsýning gamanmyndarinnar, Top 10 möst, fór fram fyrir fullum sal áhorfenda í Smárabíói í gærkvöldi. Um er að ræða kolsvarta kómedíu sem fjallar um viðkvæm málefni en er sett upp á spaugilegan hátt. Lífið 10. október 2024 20:00
Mikil stemning á lokahófi RIFF Innlent og erlent kvikmyndargerðar- og bransafólk kom saman í vikunni á Parliament hótelinu til að fagna lokum RIFF kvikmyndahátíðarinnar. Lífið 10. október 2024 17:55
Forsetahjónin létu sig ekki vanta og eltu veðrið Mikið var um dýrðir þegar Þjóðleikhúsið frumsýndi bráðfyndna útilegufarsann Eltum veðrið síðastliðið föstudagskvöld. Meðal þeirra sem létu sjá sig voru sjálf forsetahjónin. Lífið 10. október 2024 14:00
Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Suður kóreski rithöfundurinn Han Kang hlaut nóbelsverðlaunin í bókmenntum þetta árið. Verk eftir hana hefur komið út á íslensku, en hún hefur einnig komið hingað til lands. Menning 10. október 2024 11:33
Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Sænska akademían tilkynnir í dag hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels. Menning 10. október 2024 10:33
Tólf hundruð fylgdust með tendrun friðarsúlunnar Um 1.200 komu saman í Viðey í kvöld til að fylgjast með tendrun friðarsúlunnar. Kveikt var á friðarsúlunni í kvöld í 18. sinn. Lífið 9. október 2024 20:34
Fögnuðu væntanlegri komu Eftirmála á sjónvarpsskjáinn Mikil spenna og lófaklapp ríkti á sérstakri forsýningu Eftirmála á Uppi bar í gær. Í þáttunum rifja fyrrum fréttakonurnar, Þórhildur Þorkelsdóttir og Nadine Guðrún Yaghi, upp áhugaverð fréttamál og fjalla um þau á mannlegum nótum. Bíó og sjónvarp 9. október 2024 20:01
The Guardian fjallar um túrismann sem gleypi íslenska tónleikastaði Tíðindi af fækkun tónlistarstaða í Reykjavík þar sem listamenn á borð við Björk, Sigur Rós og Ólaf Arnalds stigu áður á stokk hafa ratað í heimsfréttirnar. The Guardian fjallar um hina miklu fjölgun ferðamanna og hótela sem hafi hreinlega gleypt minni tónleikastaði. Innlent 9. október 2024 16:13
Geitin er risin fyrr en nokkru sinni IKEA-geitin er risin í Kauptúni og er sérstaklega snemma á ferðinni. Hún hefur undanfarin ár verið tendruð um miðjan október en er nú komin á sinn stað nokkrum dögum fyrr. Lífið 9. október 2024 14:33
„Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Þjóðleikhússtjóri Slóvakíu hefur hætt við sýningu á leikverkinu Mánasteinn sem byggt er á samnefndri bók rithöfundarins Sjón. Til stóð að sýna verkið þann 21. október næstkomandi í tilefni af alþjóðlegu hinsegin menningarhátíðinni Drama Queer festival. Stjórnandinn segir ákvörðunin alþjóðlegan skandal og fela í sér mikla móðgun gagnvart Íslandi. Menning 9. október 2024 13:56
Skelltu sér í rússíbana með James Franco á tískusýningu ársins Fatahönnuðurinn Hildur Yeoman er nýkomin heim úr ævintýralegri ferð til Parísar þar sem hún þræddi tískusýningar franskra tískuhúsa, skellti sér í rússíbana með stórstjörnum, hitti Kylie Jenner og tók púlsinn á helstu straumum tískunnar um þessar mundir. Tíska og hönnun 8. október 2024 15:02
Niðurskurður fjölbreytileikans í íslenskri kvikmyndagerð Ísland var hástökkvari í Evrópu þegar að kom að aukningu á kvenleikstjórum sem leikstýrðu kvikmyndum frá árunum 2018 til 2022 (sjá mynd 1). Hlutfall kvenleikstjóra fór úr rúmum 13% í rúm 35% leikstjóra á Íslandi samkvæmt rannsókn the European Audiovisual Observator. Skoðun 8. október 2024 14:30
Henti listaverkinu í ruslið Uppi varð fótur og fit í nútímalistasafni í Hollandi þegar listaverki var hent í ruslið fyrir slysni. Um var að ræða tvær dósir sem litu út fyrir að vera hefðbundnar bjórdósir en eru í raun handmálaðar dósir eftir franska listamanninn Alexandre Lavet. Menning 8. október 2024 13:48
Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Tónlistarmaðurinn Aron Kristinn Jónasson og viðskiptafræðingurinn Lára Portal fagna tíu ár af ást í dag. Hjúin eru enn ástfangin upp fyrir haus eftir áratug saman og segir Aron að hann fái að vakna með bestu manneskju í heimi á hverjum morgni. Lífið 8. október 2024 11:42
Óskrifuðu Pálínuboðorðin Pálínuboð eru stórkostleg. Allir koma með eitthvað í púkkið, það er ótrúleg fjölbreytni og enginn er fastur í eldhúsinu tímunum saman. Skoðun 8. október 2024 09:30
Móðir Whitney Houston látin Bandaríska söngkonan Cissy Houston, Grammy-verðlaunahafi og móðir tónlistarkonunnar Whitney Houston, er látin, 91 árs að aldri. Hún átti farsælan feril sem söngkona og kom meðal annars fram með stórstjörnunu, Arethu Franklin og Elvis Presley. Lífið 8. október 2024 09:20
Kemur frá Sýrlandi og syngur á íslensku „Mig dreymdi um að verða tónlistarmaður en út af stríðinu gat ég ekki einbeitt mér að því,“ segir hinn 23 ára gamli Rawad Nouman. Rawad flutti til Íslands 2017, talar mjög góða íslensku og gaf nýverið út lagið Veit ekki neitt. Blaðamaður ræddi við hann og fékk að heyra nánar frá lífi hans. Tónlist 8. október 2024 07:02
Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Nýjasta skáldaga Halldórs Armands, Mikilvægt rusl, kemur út fimmtudaginn 10. október. Bókin fjallar um sorphirðumenn í Hruninu og er gefin út af nýstofnaðri útgáfu Halldórs sem heitir Flatkakan útgáfa. Lífið 7. október 2024 22:59
Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Rapparinn Kanye West og arkitektinn Bianca Censori eru sögð vera á barmi skilnaðar eftir tveggja ára hjónaband. Ekki hefur sést til hjónanna saman meðal almennings í tvær vikur. Lífið 7. október 2024 22:20
Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið Það var rífandi stemning í Gallery Port um helgina þegar Dýrfinna Benita og Geoffrey Þ. Huntingdon-Williams opnuðu nýja sýningu. Margt var um manninn og veðrið var upp á sitt allra besta. Menning 7. október 2024 20:03
Hvað vitum við? Á nýafstöðnu málþingi um verðmæti menningar og skapandi greina var kynnt skýrsla sem Ágúst Ólafur Ágústsson tók saman fyrir menningar og viðskiptaráðuneytið. Skýrslan nefnist Framlag menningar og skapandi greina til verðmætasköpunar á Íslandi – Greining og tillögur. Skoðun 7. október 2024 14:01
Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum Í fyrsta þættinum af 1 stjarna skelltu þeir Dóri DNA og Steindi Jr. sér til Amsterdam til að prófa hluti sem fá skelfilega einkunn á vefnum. Ein heimsókn á veitingastað byrjaði vel en svo fóru hlutirnir að gerast. Lífið 7. október 2024 14:01
Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stórstjarnan Madonna birti einlæga færslu á Instagram síðu sinni í gærkvöldi þar sem hún minnist bróður síns Christopher Ciccone sem féll nýverið frá eftir baráttu við krabbamein. Hún segir meðal annars að þau systkinin hafi ekki talað saman í einhver ár en hafi þó náð sáttum eftir að Christopher veiktist. Lífið 7. október 2024 11:02
Nokkrum rangfærslum í málflutningi menningarráðherra svarað Í síðustu viku birtum við greinina „Vegið að íslenskri kvikmyndagerð” þar sem við fórum yfir þau vandamál sem steðja að íslenskri kvikmyndagerð í dag í ljósi bágrar stöðu Kvikmyndasjóðs. Viðbrögðin hafa verið framar okkar björtustu vonum og hefur spunnist mikil umræða í kjölfarið. Skoðun 7. október 2024 09:01
Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Auglýsing Sambíóanna hefur vakið athygli vegna fjölda fimm stjörnu dóma sem myndin Joker: Folie á Deux er sögð fá. Á síðum sem safna saman bíódómum hefur enginn gagnrýnandi gefið henni slíkan dóm. Rekstrarstjóri Sambíóanna veit ekki hvaðan stjörnurnar koma og gat ekki svarað fyrir auglýsinguna. Innlent 6. október 2024 21:32
Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Ljósmyndasýningin „Upprisa“ sem er unnin af sálfræðingnum Evu Gunnarsdóttur og ljósmyndaranum Richard Shutt opnaði í Núllinu í Bankastræti á föstudag og stendur yfir helgina. Lífið 6. október 2024 17:52