Þessar sóttvarnareglur tóku gildi á miðnætti Ný reglugerð heilbrigðisráðherra um sóttvarnaráðstafanir tók gildi á miðnætti. Reglur haldast að mestu óbreyttar frá því sem fyrir var, utan þess að skerpt er á skráningu gesta á viðburði, veitingar eru bannaðar í hléi og gæta þarf betur að sóttvörnum við hlaðborð. Innlent 18. mars 2021 08:52
Sóttvarnaaðgerðir ráðist ekki af veðri og vindum Stjórnvöld ættu ekki að nota árstíðarskipti og hlýnandi veðurfar sem ástæðu til að slaka á sóttvarnaaðgerðum sem eiga að hefta útbreiðslu kórónuveirufaraldursins. Sérfræðingar segja að smitvarnir yfirvalda hafi mun meiri áhrif á útbreiðslu veirunnar en veður eða loftgæði. Erlent 18. mars 2021 08:02
Reyna að brjóta upp á fábreyttan hversdagsleikann Strangar sóttvarnaraðgerðir eru enn í gildi í Danmörku þótt nokkur skref hafi verið stigin til afléttingar. Íslendingar í Kaupmannahöfn sakna þess meðal annars hvað helst að komast á barinn, á veitingastaði og vona að landamæri verði opnuð sem fyrst. Innlent 17. mars 2021 22:03
Nýjar landamærareglur á Íslandi einsdæmi í Evrópu Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins leggur til að gefið verði út samevrópskt rafrænt grænt vottorð fyrir alla íbúa evrópska efnahagssvæðisins sem staðfesti stöðu þeirra gagnvart COVID-19. Nýjar reglur varðandi vottorð ferðamanna utan Schengens sem taka gildi á morgun eru einsdæmi innan Evrópska efnahagssvæðisins. Innlent 17. mars 2021 19:21
Jón Guðni einn af sextán leikmönnum með kórónuveiruna: „Finn enga lykt og ekkert bragð“ Sextán leikmenn og fimm starfsfólk sænska úrvalsdeildarfélagsins Hammarby eru með kórónuveiruna. Jón Guðni Fjóluson er einn leikmannanna með veiruna. Fótbolti 17. mars 2021 18:31
ESB íhugar að banna útflutning á bóluefni til Bretlands Evrópusambandið hótaði því að banna útflutning á bóluefni gegn kórónuveirunni til Bretlands til að tryggja sem flesta skammta fyrir sína eigin þegna. Sambandið er ósátt við hversu fáir skammtar af bóluefni AstraZeneca sem samið var um hafa verið afhentir til þessa. Erlent 17. mars 2021 16:03
Rósa Björk: Ætlum við að klúðra stöðunni? Svandís Svavarsdóttir segir löngu tímabært að Íslendingar fái upplýsingar um afhendingaráætlun bóluefna fyrir næsta ársfjórðung. Gert er ráð fyrir að fjörutíu og þrjú þúsund manns verði bólusettir í lok mánaðarins. Innlent 17. mars 2021 14:48
Einn lagður inn með Covid í nótt Einn var lagður inn á Landspítala vegna Covid-sýkingar í nótt. Innlögnin er sú fyrsta vegna Covid í nokkrar vikur, að sögn yfirlæknis. Enginn lá inni á spítalanum með Covid í gær. Innlent 17. mars 2021 14:47
Suður-Súdan aðeins skreflengd frá hungursneyð Blanda af átökum, loftslagsbreytingum og COVID-19 hefur leitt til þess að matarskortur fer vaxandi í Suður - Súdan. Heimsmarkmiðin 17. mars 2021 13:02
Eftirlit tekið upp á innri landamærum Íslands Eftirlit verður tekið upp á innri landamærum Íslands eftir að fólki utan Schengen svæðisins sem hefur verið bólusett gegn Covid 19 verður leyft að koma til landsins. Yfirlögregluþjónn segir þetta auðvelda eftirlit með þeim sem koma til Íslands og frávísun þeirra sem ekki megi koma hingað. Innlent 17. mars 2021 11:48
Enginn greindist með Covid innanlands Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Fjórir greindust á landamærum, þar af tveir með virkt smit en beðið er eftir niðurstöðu úr mótefnamælingu hjá hinum tveimur. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á Covid.is. Innlent 17. mars 2021 10:50
Átta þúsund viðbótarskammtar væntanlegir frá Pfizer Ísland fær átta þúsund viðbótarskammta af bóluefni lyfjaframleiðandans Pfizer á öðrum ársfjórðungi frá því sem áður var gert ráð fyrir, samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisráðuneytinu. Innlent 17. mars 2021 10:33
Stöðva tímabundið innlagnir nýrra sjúklinga í endurhæfingu Reykjalundur hefur stöðvað tímabundið innlagnir nýrra sjúklinga í endurhæfingu vegna eftirkasta Covid-19. Innlent 17. mars 2021 08:01
„Miðað við hvernig staðan er í Evrópu held ég að Íslendingar geti verið sáttir“ Emil Hallfreðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu og leikmaður Padova í C-deildinni á Ítalíu, ræddi við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær um stöðuna á Ítalíu vegna kórónuveirunnar. Emil býr í Verona með fjölskyldu sinni og eðlilega hefur þetta mikil áhrif á líf þeirra allra. Fótbolti 17. mars 2021 07:01
Bóluefni AstraZeneca veitir einungis tíu prósenta vernd gegn suðurafríska afbrigðinu Bóluefni AstraZeneca við Covid-19 veitir mjög takmarkaða vörn gegn vægum veikindum af völdum suðurafríska afbrigðis kórónuveirunnar, ef marka má rannsókn sem birt var í dag. Erlent 16. mars 2021 23:41
Skoða hvort erfiðara sé að greina nýtt afbrigði sem fannst í Frakklandi Nýtt afbrigði kórónuveirunnar hefur verið uppgötvað í Frakklandi. Afbrigðið er ekki talið meira smitandi eða valda alvarlegri veikindum en önnur, en kann að greinast illa í PCR-prófum. Erlent 16. mars 2021 23:05
Moderna rannsakar áhrif bóluefnis síns á ung börn Bandaríska lyfjafyrirtækið Moderna hefur hafið rannsóknir á bóluefni við Covid-19 sínu á hálfs árs til ellefu ára börnum. Frá þessu greindi fyrirtækið í tilkynningu. Erlent 16. mars 2021 22:31
Norðmenn og Danir þyrftu ekki að fara í sóttkví tæki litakóðakerfi gildi í dag Heilbrigðisráðherra staðfestir að litakóðakerfi verði tekið upp á landamærum 1. maí. Þá fá Evrópulönd grænan, gulan eða rauðan lit eftir fjölda smita í landinu. Innlent 16. mars 2021 20:00
Mikill áhugi á Íslandi og markaðsherferðir hafnar Forstjóri Icelandair segir afar jákvætt að farþegar utan Schengen fái að koma til landsins með gild bólusetningar-eða mótefnavottorð. Mikilvægustu markaðir félagsins séu þar. Íslandsstofa hefur þegar hafið markaðssátak í Bretlandi og skynjar mikinn áhuga á Íslandi. Innlent 16. mars 2021 20:00
Landspítalinn þurfti að farga rúmlega hundrað skömmtum af bóluefni Landspítalinn þurfti að farga rúmlega hundrað skömmtum af bóluefni AstraZeneca við kórónuveirunni, eftir að tekin var ákvörðun um að stöðva tímabundið bólusetningu með bóluefninu í síðustu viku. Búið var að blanda skammtana og bólusetning á starfsmönnum spítalans hafin þann daginn. Innlent 16. mars 2021 19:50
Krafði ríkisstjórnina um kröftugri aðgerðir fyrir atvinnulausa Þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir stjórnvöld þurfa að hreyfa sig hraðar og koma þeim sem hefðu verið atvinnulausir lengi til mun meiri aðstoðar en hingað til. Félagsmálaráðherra segir allar aðgerðir stjórnvalda miða við þetta og sú nýjasta sé sú viðamesta til sköpunar starfa. Innlent 16. mars 2021 19:20
Vill heldur að fyrirkomulag á landamærum taki mið af þróun faraldurs Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segist aðspurður í samtali við fréttastofu að hann hefði heldur viljað taka mið af þróun faraldursins áður en nokkru væri slegið föstu um fyrirkomulag á landamærunum. Innlent 16. mars 2021 18:09
Eykur líkurnar á að „metnaðarfull“ sumaráætlunin gangi eftir „Þetta eru mjög jákvæðar fréttir. Við höfum verið með mjög metnaðarfulla áætlun í sölu í sumar, bæði til Evrópu, Bretlands og síðan Bandaríkjanna, og þetta eykur líkurnar á því að hún gangi eftir.“ Innlent 16. mars 2021 16:49
Töldu svigrúm til að hinkra með AstraZeneca-bóluefni í ljósi fárra smita Fá ný innanlandssmit voru talin gefa íslenskum sóttvarnayfirvöldum svigrúm til að bíða með bólusetningar með bóluefni AstraZeneca þar til tilkynningar um fólk sem hefur fengið blóðtappa hafa verið rannsakaðar, að sögn forstjóra Lyfjastofnunar. Innlent 16. mars 2021 16:43
Íslendingasumar og allt í blóma? Þeir eru fjölmargir sem tala af miklum sannfæringarkrafti, með rómantískt blik í auga, að fráleitt sé að breyta fyrirkomulagi á landamærum Íslands, til að erlendir ferðamenn geti heimsótt okkur á ný. Skoðun 16. mars 2021 15:00
Svæsin útbrot eftir að hafa verið sprautuð með AstraZeneca Stella Jórunn A. Levy sjúkraliði fékk vel upphleypt útbrot um bringu og háls með tilheyrandi verk, kláða og sviða eftir bólusetningu. Hún telur víst að bóluefnið hafi vakið vírusinn. Innlent 16. mars 2021 15:00
Bætir stöðuna gagnvart mikilvægum mörkuðum í Bretlandi og Bandaríkjunum Ferðamálaráðherra telur að nýjar reglur um bólusetningar- og mótefnavottorð utan Schengen-ríkja breyti stöðu ferðaþjónustunnar talsvert til hins betra. Þetta gefi greininni tækifæri til að markaðssetja sig fyrir ferðamenn frá Bretlandi, Bandaríkjunum og Asíu. Innlent 16. mars 2021 14:46
Hrósar ríkisstjórninni og segir ferðaþjónustuna fagna „Það er fagnað mjög og mikil gleði er á meðal ferðaþjónustufyrirtækja og ferðaþjónustunnar almennt.“ Innlent 16. mars 2021 14:36
Bréf í Icelandair hækka eftir tíðindi af vottorðum Gengi hlutabréfa í flugfélaginu Icelandair tóku vænan kipp upp á við um hádegisbil eftir að tilkynnt var að farþegar með bólusetningarvottorð frá ríkjum utan Schengen yrðu tekin gild. Þar með má meðal annars hleypa Bretum og Bandaríkjamönnum inn í landið sem hafa verið bólusettir gegn kórónuveirunni. Viðskipti innlent 16. mars 2021 14:35
Þessar breytingar á sóttvarnareglum taka gildi 18. mars Skrá þarf alla gesti á viðburðum og óheimilt er að bjóða upp á veitingar í hléi þegar ný reglugerð heilbrigðisráðherra um sóttvarnaráðstafanir tekur gildi. Þá þarf að passa betur upp á sóttvarnir á stöðum þar sem boðið er upp á hlaðborð. Reglugerðin tekur gildi 18. mars og gildir til 9. apríl. Innlent 16. mars 2021 12:43