Færa gesti á önnur hótel til að ráða við verkföllin Forstjóri Íslandshótela, þar sem Eflingarliðar hafa lagt niður störf, segir að hótelin hafi þurft að færa gesti á önnur hótel. Hann sér ekki fyrir sér að öll sjö hótel Íslandshótela á höfuðborgarsvæðinu geti verið opin ef verkföllin vara í nokkra daga. Innlent 7. febrúar 2023 15:28
Hefur lagt fram aðfararbeiðni hjá sýslumanni til að fá kjörskrána Ríkissáttasemjari segist ekki líta svo á að hann sé vanhæfur um að miðla málum milli Eflingar og Samtaka atvinnulífsins í yfirstandandi kjaradeilu. Efling lýsti í morgun yfir vantrausti á sáttasemjara vegna miðlunartillögunnar se hann hefur sett fram. Innlent 7. febrúar 2023 13:52
Segir SA líta svo á að verkafólk eigi hvorki betri laun né líf skilið Starfsmenn Íslandshótela sem hófu verkfall klukkan 12 á hádegi hafa safnast saman í Iðnó á baráttufundi Eflingar. Meðlimur í samninganefnd Eflingar segir Samtök atvinnulífsins ekki vilja ræða málin og líta svo á að félagsmenn Eflingar eigi hvorki betri laun, vinnuaðstöðu né líf skilið. Innlent 7. febrúar 2023 13:24
Verkfall er hafið á Íslandshótelum Verkföll eru hafin hjá Eflingarfélögum á Íslandshótelum. Tæplega þrjú hundruð starfsmenn hótelanna lögðu niður störf klukkan tólf á hádegi og hafa þeir safnast saman í Iðnó. Innlent 7. febrúar 2023 12:30
Segir kjörskrána ekki vera til Verkfallsaðgerðir hjá félögum Eflingar á Íslandshótelum hefjast á hádegi í dag. Formaður Eflingar segir stemninguna í hópnum vera góða. Hún ætlar ekki að afhenda kjörskrána og segir hana ekki vera til. Innlent 7. febrúar 2023 11:27
Segir Eflingu brjóta lög og hagnast á ólögmætu ástandi Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir óboðlegt að Efling hyggist ekki afhenda ríkissáttasemjara kjörskrá sína þrátt fyrir úrskurð héraðsdóms þess efnis. Afhendi Efling hana ekki sé sú staða komin upp að lög gildi ekki í landinu. Innlent 7. febrúar 2023 10:46
Vonbrigði að Efling hafi ekki mætt til fundar Aðalsteinn Leifsson, ríkissáttasemjari, segir vonbrigði að samninganefnd Eflingar hafi ekki mætt til fundar sem hann boðaði hana á í morgun. Samninganefnd Samtaka atvinnulífsins mætti á fundinn, þar sem atkvæðagreiðsla vegna miðlunartillögu sáttasemjara, var til umræðu. Innlent 7. febrúar 2023 10:22
Segja Aðalstein vanhæfan og krefjast þess formlega að hann víki Efling - stéttarfélag sendi í morgun kröfu til embættis ríkissáttasemjara um að Aðalsteinn Leifsson víki sæti sökum vanhæfis í kjaradeilu Eflingar við Samtök atvinnulífsins. Er þess krafist að skipaður verði staðgengill hans til að fara með málið. Innlent 7. febrúar 2023 10:13
Óvissa um fundi hjá ríkissáttasemjara Ekki hefur verið hægt að halda fund beggja deiluaðila með ríkissáttasemjara um atkvæðagreiðslu hans um miðlunartillögu. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að tölvusamskipti hafi átt sér stað í gær milli hennar og ríkissáttasemjara um mögulegan fundartíma og síðast rætt að hann gæti orðið klukkan 14. Ekkert formlegt fundarboð hafi hins vegar komið til ríkissáttasemjara. Innlent 7. febrúar 2023 08:59
Hvar eru varðhundar markaðsfrelsis nú? Erjur Eflingar og SA hafa verið mikið í fjölmiðlum en ég hef ekki enn rekist á sanna hægri frelsissinna eða talsmenn hins frjálsa markaðar leggja orð í belg. Vissulega hefur SA farið mikinn í að reyna höfða til tilfinninga fólks, talandi um heildarmyndina og að það verði að gæta að höfrungahlaupi, verðbólgu og ýmsu fleiru. Skoðun 7. febrúar 2023 08:30
Verkföllum haldið til streitu eftir viðburðaríkan dag Efling mun hefja verkfallsaðgerðir í hádeginu a morgun eftir úrskurð Félagsdóms um að verkfallsboðun félagsins hafi verið lögleg. Fyrr í dag úrskurðaði Héraðsdómur Reykjavíkur að ríkissáttasemjari fái aðgang að kjörskrá Eflingar. Innlent 6. febrúar 2023 23:43
Trúir því ekki að ríkissáttasemjari ætli að þvinga fram aðför Formaður Eflingar hefur ritað ríkissáttasemjara bréf vegna fundarboðs hans á morgun. Hann segir niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur, um heimila aðför til þess að fá kjörskrá Eflingar afhenta, óumdeilanlega kæranlega. Efling trúir því ekki að ríkissáttasemjari ætli að þvinga fram aðför á grundvelli niðurstöðu lægra dómstigs á meðan beðið er eftir endanlegri niðurstöðu æðri dómstóla. Innlent 6. febrúar 2023 20:49
Skora á Eflingu að fresta og áskilja sér rétt til bótakrafna Samtök atvinnulífsins hafa skorað á Eflingu að fresta vinnustöðvun, sem félagið hefur boðað á morgun. Þá segir að samtökin áskilji aðildarfélögum sínum bótarétt vegna alls tjóns sem af ólögmætum aðgerðum Eflingar kunni að hljótast. Innlent 6. febrúar 2023 19:55
„Ég neita að trúa því að Efling fylgi ekki lögum“ Ríkissáttasemjari segir úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur ákaflega skýran um það að miðlunartillaga hans í deilu Eflingar og SA hafi verið löglega fram sett og að Eflingu beri að framvísa félagatali. Innlent 6. febrúar 2023 18:49
Who mediates the mediator? I write this article as a direct response by the courts, forcing Efling to hand over their membership lists to the state mediator, in order for him to facilitate a union-wide vote on a contract. Skoðun 6. febrúar 2023 16:31
Nú hljóti félagatalið að nást úr krumlum forystu Eflingar Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins býst við því að þar til bærir embættismenn muni einhenda sér í það verkefni að „ná atkvæðaskránni úr krumlum forystu Eflingar.“ Innlent 6. febrúar 2023 15:45
Verkfall Eflingar fær grænt ljós og Sólveig heldur fast í kjörskrána Félagsdómur fellst ekki á kröfur Samtaka atvinnulífsins að boðað verkfall hjá félagsmönnum Eflingar hafi verið ólögmætt. Verkfallsaðgerðir Eflingar á Íslandshótelum hefjast að óbreyttu á hádegi á morgun. Formaður Eflingar fagnar sigri og ætlar ekki að afhenda sáttasemjara kjörskrá Eflingarfélaga strax. Innlent 6. febrúar 2023 14:34
Héraðsdómur segir Eflingu að afhenda sáttasemjara félagatalið Ríkissáttasemjari á að fá félagatal Eflingar afhent til að hægt sé að greiða atkvæði um miðlunartillögu hans í kjaradeilu Samtaka atvinnulífsins og Eflingar. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem úrskurðaði í málinu á öðrum tímanum. Innlent 6. febrúar 2023 13:17
Í beinni: Dómstólar kveða upp dóma sína í kjaradeilunni Von er á því að bæði Héraðsdómur Reykjavíkur og Félagsdómur komist að niðurstöðu varðandi það annars vegar hvort Efling þurfi að afhenda sáttasemjara félagatal sitt og hins vegar hvort boðað verkfall tæplega þrjú hundruð félagsmanna Eflingar á morgun standist lög. Innlent 6. febrúar 2023 12:37
Félagsdómur úrskurðar í dag Félagsdómur mun klukkan 14:30 í dag úrskurða um lögmæti verkfallsboðunar Eflingarfólks sem starfar hjá Íslandshótelum. Að öllu óbreyttu hefst verkfallið á hádegi á morgun, þriðjudag. Innlent 6. febrúar 2023 09:57
Skjóti skökku við að tefla fram „karlastétt með frekar há laun“ Tíðinda er að vænta í vikunni í kjaradeilu Eflingar en að óbreyttu hefjast verkföll á þriðjudag. Sömuleiðis hefur verkfall verið boðað meðal flutningabílstjóra, sem Samtök atvinnulífsins hafa kallað hálaunastétt. Efnahagsráðgjafi SA stendur við það og segir það skjóta skökku við að hálaunaðri karlastétt sé teflt fram í baráttunni. Innlent 5. febrúar 2023 22:00
Mun áfrýja áður en hún afhendir Ætla má að tíðindi muni berast á morgun í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins en óhætt er að segja að deilan sé í hnút. Innlent 5. febrúar 2023 15:04
Framvísar launaseðlum olíubílstjóra: „Við erum ekki hálaunuð“ Trúnaðarmaður Eflingar hjá Olíudreifingu hefur safnað saman launaseðlum bílstjóra hjá Olíudreifingu, Samskipum og Skeljungi. Hann segir fullyrðingar framkvæmdastjóra SA um há laun olíubílstjóra ekki standast skoðun. Innlent 4. febrúar 2023 23:34
Harðræði ríkisins gegn Eflingu - epli Aðalsteins og afstaða VG „Vinstri græn standa með launafólki og stéttarfélögum þeirra í baráttunni fyrir réttindum og bættum kjörum“. Þessi stutti texti í stefnuskrá Vinstri grænna ætti að vera vitnisburður um það að láglaunafólk megi geta treyst á liðsinni þessa ríkisstjórnarflokks þó vægi hans í ríkisstjórn sé með því minnsta, sem þekkist í lýðræðisríki. En svo er ekki. Skoðun 4. febrúar 2023 15:00
SA segja stöðuna í kjaradeilunni skelfilega Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir skelfilegt að verið sé að boða til enn frekari verkfalla á sama tíma og málaferli standi yfir bæði fyrir héraðsdómi og Félagsdómi. Hann og formaður Eflingar eru hins vegar bæði viss um sigur fyrir Félagsdómi þar sem málflutningur fór fram síðdegis. Innlent 3. febrúar 2023 19:30
Bæði fullviss um sigur í Félagsdómi Bæði Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins eru fullviss um sigur í deilu SA og Eflingar fyrir Félagsdómi. Dómurinn kemur saman klukkan fjögur í dag til að skera úr um hvort boðuð verkföll Eflingar séu lögmæt í ljósi þess að miðlunartillaga frá ríkissáttasemjara liggur fyrir. Innlent 3. febrúar 2023 14:49
Ráðuneytið vísar frá kærunni sem Efling dró til baka Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur vísað frá stjórnsýslukæru Eflingar vegna miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Efling skaut kærunni í gær til héraðsdóms vegna þess hve félagið taldi ráðuneytið lengi að afgreiða kæruna. Innlent 3. febrúar 2023 09:44
Örlagaríkur dagur runninn upp í sögulegri deilu Spennan er farin að magnast í kjaradeilu Eflingar við Samtök atvinnulífsins. Beðið er eftir að atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun tvö hefjist, beðið er eftir málflutningi í máli Eflingar og ríkissáttasemjara fyrir héraðsdómi og sömuleiðis málflutnings í máli Eflingar og SA fyrir félagsdómi. Þá liggur fyrir dómstólum að úrskurða hvort umdeild miðlunartillaga sáttasemjara standist lög. Innlent 3. febrúar 2023 06:22
Efling vill að skipaður verði nýr sáttasemjari Formaður Eflingar segir félagið ekki treysta ríkissáttasemjara til að leiða frekari viðræður við Samtök atvinnulífsins og vill að nýr einstaklingur verði fundinn í hans stað. Félagið gafst einnig upp á biðinni eftir úrskurði vinnumarkaðsráðherra á stjórnsýslukæru vegna miðlunartillögu ríkissáttasemjara og kærði tillöguna til Héraðsdóms í dag. Innlent 2. febrúar 2023 19:30
Helvítis geðveikin Afsakið orðbragðið, ég held bara alltaf að skrif fái meiri athygli ef þau eru sett í svona fyrirsögn. Skoðun 2. febrúar 2023 18:01