Öruggir sigrar hjá Fram og Val Fram og Valur unnu afar örugga sigra er liðin mættu til leiks í B-riðli Reykjavíkurmóts karla í fótbolta í kvöld. Valsmenn unnu 3-0 sigur gegn Leikni og Fram vann 5-1 sigur gegn Fjölni. Fótbolti 19. janúar 2023 21:27
Ristin brotin og Tryggvi úr leik Tryggvi Hrafn Haraldsson, knattspyrnumaður úr Val, vonast til að vera farinn að æfa og geta mögulega spilað fyrsta leik liðsins í Bestu deildinni í vor þrátt fyrir að hafa ristarbrotnað á dögunum. Íslenski boltinn 17. janúar 2023 22:30
Með tvo ólöglega leikmenn en sigurinn stendur Íslandsmeistarar Vals unnu 13-0 sigur gegn Fram í fyrsta leiknum í Reykjavíkurmóti kvenna í fótbolta síðastliðinn föstudag. Sigurinn stendur, þrátt fyrir að Valur hafi teflt fram tveimur ólöglegum leikmönnum. Íslenski boltinn 17. janúar 2023 15:31
Guy Smit lánaður til Eyja og má spila á móti Val Hollenski markvörðurinn Guy Smit spilar með ÍBV í Bestu deild karla í sumar. Íslenski boltinn 17. janúar 2023 14:09
Önnur Cloé Lacasse á leiðinni í ÍBV? Kvennalið ÍBV hefur gert samning við kanadíska framherjann Holly O'Neill sem mun spila með Eyjaliðinu í Bestu deildinni í sumar. Íslenski boltinn 17. janúar 2023 11:00
FH nælir í varnarmann úr Breiðholti Gyrðir Hrafn Guðbrandsson er genginn í raðir FH frá Leikni R. og mun því halda áfram að spila í Bestu deildinni í fótbolta á komandi leiktíð. Íslenski boltinn 17. janúar 2023 09:28
Sverrir Páll genginn í raðir Eyjamanna ÍBV hefur gert samning við sóknarmanninn Sverri Pál Hjaltasted en hann kemur til Vestmannaeyja frá Hlíðarendafélaginu Val. Fótbolti 15. janúar 2023 16:27
Blikar í úrslit Þungavigtarbikarsins eftir stórsigur í grannaslag Breiðablik er komið í úrslit í Þungavigtarbikarnum í fótbolta eftir sigur á grönnum sínum í HK fyrr í dag. Íslenski boltinn 14. janúar 2023 13:56
Fylkismenn lögðu KR-inga í Lautinni Pétur Bjarnason sem gekk nýverið í raðir Fylkis var á skotskónum í 2-0 sigri á KR í Reykjavíkurmótinu í dag. Íslenski boltinn 14. janúar 2023 13:14
Íslandsmeistari tekur sér hvíld frá fótbolta Knattspyrnumaðurinn Sölvi Snær Guðbjargarson sem leikið hefur fyrir Breiðablik undanfarin ár hefur ákveðið að taka sér frí frá boltanum um óákveðinn tíma. Íslenski boltinn 14. janúar 2023 12:46
HK fær einn heitasta leikmann Lengjudeildarinnar Nýliðar HK eru byrjaðir að styrkja sig fyrir komandi átök í Bestu deild karla næsta sumar. Liðið tilkynnti í kvöld að það hefði samið við Marciano Aziz til tveggja ára. Íslenski boltinn 12. janúar 2023 22:45
Fjölnir vann óvæntan sigur á Val | Fram fór létt með Leikni Tveir leikir fóru fram í Reykjavíkurmóti karla í knattspyrnu í kvöld. Fjölnir vann einkar óvæntan sigur á Val að Hlíðarenda á meðan Fram vann öruggan sigur á Leikni Reykjavík. Íslenski boltinn 12. janúar 2023 20:50
Jesper mun ekki spila á Íslandi næsta sumar Danski varnarmaðurinn Jesper Juelsgård hefur samið við B-deildarliðið Fredericia í heimalandinu. Hann mun því ekki spila fótbolta á Íslandi næsta sumar en eftir að samningi hans við Val var rift opinberaði Jesper að hann væri til í að vera áfram hér á landi ef rétt tilboð bærist. Íslenski boltinn 12. janúar 2023 18:00
Íslands- og bikarmeistari semur við kvennalið HK HK-konur ætla sér greinilega upp í Bestu deild kvenna í fótbolta næsta haust en liðið hefur bætt við sig erlendum leikmanni sem varð Íslands- og bikarmeistari með Val síðasta sumar. Íslenski boltinn 11. janúar 2023 16:01
„Þú verður að spyrja Rúnar Kristinsson að því“ Heimir Guðjónsson, þjálfari karlaliðs FH í fótbolta, fagnar nýjustu viðbót Hafnfirðinga við hópinn. Kjartan Henry Finnbogason samdi við liðið í gær. Íslenski boltinn 11. janúar 2023 11:31
„KR í fortíðinni en nútíðin og framtíðin er hérna í Krikanum“ Kjartan Henry Finnbogason kveðst spenntur fyrir næsta kafla á sínum ferli með FH, sem hann mun leika með í Bestu deild karla í fótbolta í sumar. Hann kemur til liðsins frá uppeldisfélaginu KR. Íslenski boltinn 11. janúar 2023 08:31
FH staðfestir komu Kjartans Henrys FH hefur tilkynnt komu Kjartans Henrys Finnbogasonar til liðsins frá KR. Hann mun því spila með liðinu á komandi sumri í Bestu deild karla. Íslenski boltinn 10. janúar 2023 12:29
Keflavík byrjað að safna liði Eftir að hafa statt og stöðugt misst leikmenn úr leikmannahópi sínum hefur Keflavík loks sótt liðsstyrk fyrir komandi tímabil í Bestu deild karla í fótbolta. Sá heitir Gunnlaugur Fannar Guðmundsson og lék síðast með Kórdrengjum í Lengjudeildinni. Íslenski boltinn 9. janúar 2023 22:30
Kjartan Henry í þann mund að semja við FH Samkvæmt heimildum hlaðvarpsins Dr. Football mun FH tilkynna að framherjinn Kjartan Henry Finnbogason sé genginn í raðir félagsins og muni spila með því í Bestu deild karla í fótbolta næsta sumar. Íslenski boltinn 9. janúar 2023 20:45
Blikar hófu Þungavigtarbikarinn á stórsigri og FH gerði góða ferð til Keflavíkur Þungavigtarbikarinn fór af stað um helgina með tveimur leikjum þar sem FH hafði betur gegn Keflavík 2-1 og Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu stórsigur gegn Stjörnunni 5-1. Fótbolti 8. janúar 2023 20:01
Nýliðar HK ná sér í 22 marka mann úr 4. deildinni Atli er frábær viðbót í sterkt HK lið segir á miðlum HK-liðsins sem býður hann hjartanlega velkominn til félagsins. Íslenski boltinn 4. janúar 2023 16:30
Fagn ársins valið: „Þetta var mjög stórt í fótboltasamfélaginu“ Karlalið Víkings í fótbolta var til umræðu í Sportsíldinni á gamlársdag, þar sem íþróttaárið var gert upp. Einn leikmanna liðsins átti fagn ársins. Íslenski boltinn 3. janúar 2023 17:30
Ljóða-Jói orti um Bestu deild kvenna Jóhanni Gunnari Einarssyni er ýmislegt til lista lagt. Hann greinir ekki bara leikina í Olís-deild karla í handbolta fyrir áhorfendum Stöðvar 2 Sports og kennir börnum heldur er hann einnig ljóðskáld. Íslenski boltinn 3. janúar 2023 14:30
„Kom skýrt fram arfinum ætti að veita jafn til karla og kvenna“ Guðmundur Eggert Óskarsson, húsvörður og bílstjóri arfleiddi knattspyrnudeild Breiðabliks að 200 milljónum króna. Guðmundur Eggert féll frá í febrúar á síðasta ári. Forráðamenn félagsins setti hljóða þegar þeir fengu tíðindin. Íslenski boltinn 2. janúar 2023 21:05
Annáll Bestu deildar kvenna: Ekkert fékk Val stöðvað Valur kom, sá og sigraði í Bestu deild kvenna í sumar. Eftir óvænt tap gegn Þór/KA á Akureyri í 2. umferð var sett í fimmta gír og spólað yfir önnur lið, í deild og bikar. Íslenski boltinn 2. janúar 2023 20:31
Annáll Bestu deildar karla: Grænn var litur sumarsins 2022 Besta deild karla var gerð upp í Íþróttasíld Stöðvar 2 á gamlársdag. Segja má að Breiðablik hafi stolið senunni árið 2022 en eftir að missa titilinn úr greipum sér árið 2021 kom ekkert annað til greina en að landa þeim stóra. Sumarið 2022 var grænt svo vægt sé tekið til orða. Íslenski boltinn 2. janúar 2023 20:00
Hugleiðingar Grétars Rafns í heild sinni: „Áhyggjuefni hve fáir leikmenn skila sér í efstu deildir Evrópu“ Grétar Rafn Steinsson starfar í dag fyrir enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspur en starfaði hluta árs 2022 fyrir Knattspyrnusamband Íslands. Þegar starfi hans þar lauk ritaði hann niður hugleiðingar sínar og birti í kjölfarið. Mikið hefur verið rætt og ritað um þær að undanförnu en þó Grétar Rafn segir KSÍ vinna gott starf þá má betur ef duga skal. Íslenski boltinn 1. janúar 2023 08:01
Óskar Hrafn var á blaði hjá Kalmar Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks í fótbolta, var á blaði hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Kalmar FF þegar liðið var í þjálfaraleit á dögunum. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem Óskar Hrafn er orðaður við lið í Svíþjóð. Íslenski boltinn 31. desember 2022 12:01
Áramótabomba í Breiðholtinu Gambíski framherjinn Omar Sowe er genginn í raðir Lengjudeildarliðs Leiknis R. Hann kemur frá Íslandsmeisturum Breiðabliks. Íslenski boltinn 29. desember 2022 16:17
Jörundur Áki og Vanda um skýrslu Grétars Rafns: „Við treystum okkar félögum“ „Þessi vinna sem Grétar Rafn [Steinsson] lagði á sig skilur eftir sig samantekt á hans starfi. Þar fer hann yfir bæði starf okkar í KSÍ og aðeins inn í starf félaganna,“ segir Jörundur Áki Sveinsson, sviðsstjóri Knattspyrnusviðs KSÍ. Hann og Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, mættu í Bítið á Bylgjunni á morgun og ræddu skýrslu Grétars Rafns og málefni tengd KSÍ. Íslenski boltinn 28. desember 2022 11:45