Maður leiksins fékk lifandi lamb í verðlaun Forráðamenn norska fótboltafélagsins Bryne eru mjög stoltir af því að vera landbúnaðarlið norsku úrvalsdeildarinnar. Félagið notar líka hvert tækifæri til að vekja athygli á því. Fótbolti 22. apríl 2025 08:32
Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Victor Lindelöf hvarf skyndilega í miðjum leik Manchester United og Lyon í Evrópudeildinni í síðustu viku en núna vitum við meira um hvað var í gangi hjá fjölskyldu hans. Enski boltinn 22. apríl 2025 07:30
Biður stuðningsfólk afsökunar á skítnum Jamie Vardy, framherji Leicester City, hefur beðið stuðningsfólk félagsins afsökunar eftir að ljóst var að Refirnir eru fallnir úr ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 22. apríl 2025 07:00
Reyndi að stela nærfatnaði leikmanna Margir hafa áhyggjur af öryggi knattspyrnukvenna í Frakklandi eftir nýjustu fréttir og það sem gekk á bak við tjöldin á dögunum í leik Dijon og Saint-Étienne í efstu deild kvenna. Fótbolti 22. apríl 2025 06:32
„Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Matz Sels, markvörður Nottingham Forest, sagði að gríðarlega mikilvægt að liðið hafi náð í sigur gegn Tottenham Hotspur eftir tvö töp í röð í ensku úrvalsdeildarinnar. Forest er óvænt í bullandi Meistaradeildarbaráttu þegar fimm umferðir eru eftir. Enski boltinn 21. apríl 2025 23:33
Þjálfari Nóels Atla rekinn eftir tapið gegn Íslendingaliði Sönderjyske Segja má að Daníel Leó Grétarsson hafi rekið síðasta naglann í kistu Menno van Dam, þjálfara Álaborgar í efstu deild danska fótboltans. Markið tryggði Sönderjyske sigur á Álaborg um helgina og nú er Van Dam atvinnulaus. Fótbolti 21. apríl 2025 22:45
„Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” Halldór Jón Sigurðsson, eða Donni eins og hann er jafnan kallaður, þjálfari Tindastóls, segir það svo sannarlega svíða að liðið fari tómhent heim á Sauðárkrók eftir 2-1 tap gegn Þór/KA. Íslenski boltinn 21. apríl 2025 20:17
„Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” Þór/KA vann 2-1 sigur á Tindastóli í 2. umferð Bestu deildar kvenna í Boganum á Akureyri í dag. Tindastóll komst snemma yfir en Þór/KA jafnaði í síðari hálfleik og skoraði skrautlegt sigurmark á lokamínútum leiksins. Íslenski boltinn 21. apríl 2025 19:15
„Við stóðum af okkur storminn“ Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði Vals, tók undir með þjálfara sínum Matthíasi Guðmundssyni eftir sigur liðsins á nýliðum FHL í 2. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Íslenski boltinn 21. apríl 2025 19:01
Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Eftir fall úr ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu á síðustu leiktíð þá stoppuðu Burnley og Leeds United stutt við í B-deildinni. Þegar tvær umferðir eru eftir eru bæði lið búin að tryggja sér sæti í úrvalsdeildinni á nýjan leik. Enski boltinn 21. apríl 2025 18:47
Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham Eftir tvö töp í röð vann Nottingham Forest 2-1 útisigur á Tottenham Hotspur í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Sigurinn lyftir Forest upp í 3. sætið á meðan Tottenham er áfram í 16. sæti. Enski boltinn 21. apríl 2025 18:31
FCK tímabundið á toppinn FC Kaupmannahöfn lagði AGF 3-1 í síðasta leik dagsins i efstu deild karla í danska fótboltanum. Landsliðsmaðurinn Mikael Neville Anderson lék allan leikinn á miðjunni hjá AGF á meðan markvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson sat á varamannabekk FCK. Fótbolti 21. apríl 2025 18:23
Alfons með sitt fyrsta mark fyrir Birmingham Hægri bakvörðurinn Alfons Sampsted skoraði sitt fyrsta mark í treyju Birmingham City þegar liðið vann Burton Albion 2-0 á útivelli í ensku C-deildinni á Englandi. Enski boltinn 21. apríl 2025 16:12
Uppgjörið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Eftir að lenda undir snemma leiks kom Þór/KA til baka og vann 2-1 sigur á Tindastóli í Norðurlandaslag Bestu deildar kvenna í knattspyrnu. Akureyringar hafa nú unnið fyrstu tvo deildarleiki sína á tímabilinu. Íslenski boltinn 21. apríl 2025 15:18
Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur Valur vann sinn fyrsta leik í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu á þessari leiktíð þegar liðið vann FHL í Fjarðabyggðarhöllinni í dag. Valur sótti í byrjun og uppskar mörkin snemma en leikurinn jafnaðist þegar á leið. Íslenski boltinn 21. apríl 2025 15:18
Guðrún og Katla með stoðsendingar í Íslendingaslag Tvær íslenskar stoðsendingar litu dagsins ljós í Íslendingaslag Rosengård og Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 21. apríl 2025 15:13
Lewandowski frá næstu vikurnar og missir af stórleikjum Robert Lewandowski, framherji Barcelona, missir af bikarúrslitaleiknum gegn Real Madrid um næstu helgi vegna meiðsla. Fótbolti 21. apríl 2025 14:17
Enn eitt jafnteflið hjá Lyngby Sævar Atli Magnússon lék allan leikinn fyrir Lyngby sem gerði 1-1 jafntefli við Viborg í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Fótbolti 21. apríl 2025 14:00
Fimmtán ára bjargaði stigi fyrir Brøndby Brøndby gerði 1-1 jafntefli við OB í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Fótbolti 21. apríl 2025 13:05
„Vonandi fáum við fulla stúku í dag“ Söguleg stund mun eiga sér stað síðar í dag þegar FHL tekur á móti Val. Verður það í fyrsta sinn sem úrvalsdeildar fótboltaleikur fer fram á Austurlandi síðan 1994, fimm árum áður en elsti leikmaður liðsins fæddist. Íslenski boltinn 21. apríl 2025 12:31
Fjörutíu mínútna hlé eftir að peningi var kastað í dómara Gera þurfti fjörutíu mínútna hlé á leik Saint-Étienne og Lyon í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir að peningi var kastað í aðstoðardómara. Fótbolti 21. apríl 2025 12:01
Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna andláts páfa Öllum fótboltaleikjum sem áttu að fara fram á Ítalíu í dag hefur verið frestað vegna andláts Frans páfa. Fótbolti 21. apríl 2025 10:01
Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Jamie Carragher segir að Trent Alexander-Arnold eigi ekki að vera í byrjunarliði Liverpool ef hann hefur sagt félaginu að hann ætli að fara frá því í sumar. Enski boltinn 21. apríl 2025 09:32
Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Framkvæmdir við nýjan aðalvöll KR hafa gengið hægar en vonast var til og fyrstu tveir heimaleikir liðsins voru færðir á annan völl. Samkvæmt núverandi plani á sá þriðji að fara fram á nýjum aðalvelli en framkvæmdastjóri félagsins telur það þó ólíklegt. Stefnt er frekar á að vígja völlinn í lok maí eða byrjun júní, en hann slær einnig varnagla við þær dagsetningar. Íslenski boltinn 21. apríl 2025 09:01
Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Það er aðeins tímaspursmál hvenær Liverpool verður Englandsmeistari karla í knattspyrnu í 20. skiptið. Það gæti gerst strax á miðvikudaginn. Enski boltinn 21. apríl 2025 08:01
Saka ekki alvarlega meiddur Bukayo Saka er ekki alvarlega meiddur segir Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, eftir að vængmaðurinn fór af velli í 4-0 sigri liðsins á fallkandídötum Ipswich Town. Enski boltinn 21. apríl 2025 07:02
„Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ Oday Dabbagh skaut Aberdeen í úrslit skosku bikarkeppninnar í knattspyrnu þegar hann skoraði sigurmarkið gegn Hearts á lokamínútu framlengingar þegar liðin mættust um helgina. Sigurmarkið má finna hér að neðan í fréttinni. Fótbolti 20. apríl 2025 23:31
„Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Knattspyrnudeild Fylkis hefur gefið frá sér yfirlýsingu þar sem farið er yfir af hverju félagið seldi Stefán Gísla Stefánsson til Vals. Íslenski boltinn 20. apríl 2025 23:01
Ástbjörn missir af næstu leikjum KR Ástbjörn Þórðarson verður frá í einhvern tíma eftir að verða fyrir meiðslum í leik KR og Vals í Bestu deild karla á dögunum. Fjölmargir leikmenn KR hafa verið frá vegna meiðsla en það ættu nokkrir að vera snúnir aftur fyrir leik liðsins gegn FH í miðri viku. Íslenski boltinn 20. apríl 2025 22:32
Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Liverpool er hársbreidd frá því að vinna ensku úrvalsdeildina eftir 1-0 útisigur á Leicester City í dag. Refirnir eru fallnir eftir leik dagsins þar sem varamaðurinn Trent Alexander-Arnold reyndist hetja gestanna. Enski boltinn 20. apríl 2025 21:47