Formúla 1

Formúla 1

Fréttir af þekktasta kappakstri í heimi.

Fréttamynd

Silverstone breytt fyrir tæpa 5.2 miljarða

Silverstone brautarstæðinu í Bretlandi hefur verið breytt fyrir 28 miljónir sterlingspunda á milli ára, eða fyrir 5.196 milljarða íslenskra króna. Búið er að reisa ný mannvirki fyrir aðstöðu keppnisliða, sem verður notuð í fyrsta skipti af Formúlu 1 liðum í breska kappakstrinum um helgina.

Formúla 1
Fréttamynd

Mansell hrifinn af frammistöðu Vettel og lét ekki beinbrot stöðva sig

Fyrrum Formúlu 1 ökumaðurinn og Bretinn Nigel Mansell er hrifinn af frammistöðu Sebastian Vettel og hvernig hann hefur náð tökum á nýjum dekkjum í Formúlu 1. Sjálfur varð Mansell meistari 1992 og lét ekki brotin bein í fæti stöðva sig frá takmarki sínu í titilslagnum á sínum tima. Mansell verður meðal dómara á breska kappakstrinum um næstu helgi.

Formúla 1
Fréttamynd

Williams vann fyrsta og 100 sigurinn á Silverstone

Williams liðið er á heimavelli á Silverstone brautinni eins og önnur Formúlu 1 lið, sem eru staðsett í Bretlandi. Níunda umferðin í Formúlu 1 verður á brautinni um helgina. Williams liðið vann sinn fyrsta sigur á brautinni árið 1979 og þann 100 í röðinni árið 1997.

Formúla 1
Fréttamynd

Williams liðið samdi við Renault um samstarf 2012 og 2013

Formúlu 1 lið Williams hefur samið við Renault um að útvega liðinu vélar frá og með næsta keppnistímabili, en meistaralið Red Bull notar Renault vélar, rétt eins og Renault liðið sjálft og Lotus. Williams vann marga titla með Renault á árum áður og keppir í breska kappakstrinum um næstu helgi á Silverstone.

Formúla 1
Fréttamynd

Button dreymir um að sigra á Silverstone brautinni

Jenson Button hjá McLaren er í öðru sæti í stigakeppni ökumanna á eftir Sebastian Vettel á Red Bull. Button, sem er breskur verður á heimavelli á Silverstone brautinni um næstu helgi, rétt eins og liðsfélagi hans Lewis Hamilton.

Formúla 1
Fréttamynd

Vettel stefnir á toppárangur á Silverstone

Formúlu 1 heimsmeistarinn Sebastian Vettel varð 24 ára í gær, en hann er með forystu í stigamóti ökumanna og keppir á Silverstone brautinni i Englandi um næstu helgi með Red Bull liðinu ásamt Mark Webber.

Formúla 1
Fréttamynd

Mercedes mætir með nýjungar á Silverstone

Formúlu 1 lið keppa á Silverstone um næstu helgi í níundu umferð heimsmeistaramótsins í Formúlu 1. Mercedes liðið er meðal þeirra liða sem verða á heimavelli. Bæði bílar og vélar liðsins eru framleiddar í Englandi, þó Mercedes merkið sé þýskt. Höfuðstöðvar Formúlu 1 liðs Mercedes eru í Brackley og vélarnar settar seman í Brixworth.

Formúla 1
Fréttamynd

Vettel og Red Bull í sterkri stöðu í stigamóti ökumanna og bílasmiða

Christian Horner, yfirmaður Red Bull Formúlu 1 liðsins telur að Sebastian Vettel muni halda áfram að stefna á sigur í einstökum mótum, fremur en spá í stöðuna í titilslagnum. Jafnvel þó hann sé kominn með 77 stiga forskot á næstu tvo menn í stigamóti ökumanna, eftir sex sigra á árinu. Vettel vann sjötta sigurinn Í Valencia í gær.

Formúla 1
Fréttamynd

Vettel naut sín vel Í Valencia

Sebastian Vettel vann sjötta sigur sinn í Formúlu 1 á árinu í Valencia á Spáni í dag á Red Bull keppnisbíl. Vettel var meira og minna í forystu í mótinu og er kominn með 77 stiga forskot á næsta ökumann í stigakeppni ökumanna.

Formúla 1
Fréttamynd

Vettel kom fyrstur í mark

Þjóðverjinn Sebastian Vettel hjá Red Bull hefur tekið afgerandi forystu í stigakeppni ökuþóra í Formúlu 1 eftir sigur í evrópska kappakstrinum sem fór fram í Valencia á Spáni.

Formúla 1
Fréttamynd

Vettel: Góður dagur fyrir liðið

Sebastian Vettel tryggði sér fremsta stað á ráslínu fyrir Formúlu 1 mótið í Valencia á morgun í dag í tímatökum. Þetta er í sjöunda skipti sem Vettel verður fremstur á ráslínu á þessu ári, en hann er efstur í stigamóti ökumanna eftir sjö mót.

Formúla 1
Fréttamynd

Vettel fremstur í flokki á lokaæfingunni

Sebastian Vettel á Red Bull var fljótastur á lokaæfingu Formúlu 1 liða á Valencia götubrautinni á Spáni í dag. Fernando Alonso á Ferrari, sem er á heimavelli varð annar og liðfsfélagi hans Felipe Massa þriðji.

Formúla 1
Fréttamynd

Alonso fljótastur á Ferrari

Fernando Alonso á Ferrari náði besta aksturstíma á seinni æfingu Formúlu 1 liða á Valencia götubrautinni á Spáni í dag. Hann varð á undan Lewis Hamilton á McLaren, Sebastian Vettel á Red Bull varð þriðji og Michael Schumacher á Mercedes fjórði samkvæmt frétt á autosport.com.

Formúla 1
Fréttamynd

Webber fljótastur á Spáni

Mark Webber á Red Bull var fljótastur á fyrstu æfingu Formúlu 1 liða á Valencia götubrautinni á Spáni í dag. Hann varð 0.824 úr sekúndu á undan Vitaly Petrov á Renault samkvæmt frétt á autosport.com.

Formúla 1
Fréttamynd

Vettel telur vandasamt að aka í Valencia

Formúlu 1 ökumennirnir Sebastain Vettel og Mark Webber keppa fyrir hönd Red Bull í Valencia á Spáni á sunnudaginn. Vettel líkir brautarstæðinu við Mónakó, en ekið er um hafnarsvæði á brautinni. Mótið er það annað sem fer fram á Spáni í árinu, en fyrr á árinu var keppt á Katalóníu brautinni í grennd við Barcelona.

Formúla 1
Fréttamynd

Engin uppgjöf hjá Alonso

Fernando Alonso hjá Ferrari hefur ekki gefist upp á titilbaráttunni í Formúlu 1 þó hann sé orðinn 92 stigum á eftir Sebastian Vettel hjá Red Bull í stigakeppni ökumenna. Alonso féll úr leik í kanadíska kappakstrinum í Montreal á sunnudaginn, eftir samstuð við Jenson Button hjá McLaren sem vann mótið.

Formúla 1
Fréttamynd

Button: Besti sigurinn á ferlinum

Jenson Button telur að sigur hans á Gilles Villeneuve Formúlu 1 brautinni í Montreal í Kanada á sunnudag hafi verið sá besti sem hann hefur náð að landa á ferlinum. Hann komst framúr Sebastian Vettel í síðasta hring, eftir að hafa verið síðastur í mótinu um tíma.

Formúla 1
Fréttamynd

Button vann dramatíska keppni í Kanada

Bretinn Jenson Button hjá McLaren vann tilþrifamikla keppni í Formúlu 1 mótinu í Montreal í dag, en hann komst framúr Sebastian Vettel hjá Red Bull í síðasta hring. Miklar tafir urðu á mótinu vegna rigningar og fóru ökumenn úr bílum sínum um tíma vegna þessa.

Formúla 1
Fréttamynd

Vettel: Við erum tilbúnir að berjast

Sebastian Vettel hjá Red Bull verður fremstur á ráslínu í kanadíska kappakstrinum í Montreal á morgun. Fyrirfram var ekki talið að bíll hans yrði sá öflugasti á Gilles Villeneuve brautinni, en það reyndist staðreynd í sjöttu tímatökunni af sjö á þessu ári.

Formúla 1
Fréttamynd

Vettel fremstur á ráslínu í sjötta skipti á árinu

Sebastian Vettel hjá Red Bull náði besta tíma í Formúlu 1 tímatökum í sjötta skipti á árinu, þegar hann náði besta tíma á Gilles Villeneuve brautinni í Montreal í Kanada í dag. Vettel verður því fremstur á ráslínu í kanadíska kappakstrinum sem fer fram á morgun.

Formúla 1
Fréttamynd

Vettel fljótastur á lokaæfingunni

Sebastian Vettel á Red Bull var fljótastur Formúlu 1 ökumanna í Montreal á síðustu æfingu fyrir tímatökuna sem er í dag, en tímatakan verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og er útsending á dagskrá kl. 16.45.

Formúla 1
Fréttamynd

Alonso náði besta tíma dagsins

Fernando Alonso á Ferrari náði besta tíma á seinni æfingu Formúlu 1 liða á Gilles Villeneuve brautinni í Montreal í Kanada í dag. Hann varð 0.369 úr sekúndu á undan Sebastian Vettel á Red Bull, en Felipe Massa á Ferrari varð þriðji, 0.494 á eftir Alonso. Alonso náði besta tíma dagsins, en Nico Rosberg var fljótastur á fyrri æfingunni i dag.

Formúla 1
Fréttamynd

Rosberg á Mercedes fljótastur í Montreal, en Vettel ók á vegg

Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á fyrri æfingu Formúlu 1 liða á Gilles Villeneuve brautinni í Montreal í Kanada í dag. Fernando Alonso á Ferrari varð annar, en hann var rúmlega hálfri sekúndu á eftir Rosberg og Michael Schumacher á Mercedes náði þriðja besta tíma. Önnur æfing verður síðar í dag.

Formúla 1
Fréttamynd

Hætt við mótshald í Barein

Mótshaldarar í Barein hafa hætt við að halda Formúlu 1 mót, en FIA tilkynnti í síðustu viku á mót yrði í Barein 30. október. En í frétt á autosport.com í dag segir að mótið muni ekki fara fram samkvæmt tilkynningu frá skipuleggjendum mótins. Upphaflega átti mótið að fara fram 13. mars, en var frestað vegna pólitísks ástands í landinu.

Formúla 1
Fréttamynd

Perez fær að keppa í Kanada

Sergio Perez hjá Sauber liðinu hefur fengið leyfi frá FIA til að keppa í Formúlu 1 mótinu í Kanada um helgina, en hann fékk heilahristing í óhappi í tímatökunni í Mónakó á dögunum og tók ekki þátt í kappakstrinum.

Formúla 1