Sumarið er tíminn... Átta prósenta hátekjuskattur verður lagður á tekjur umfram sjö hundruð þúsund krónur og 15 prósenta viðbótarskattur á fjármagnstekjur umfram tiltekna fjárhæð, samkvæmt efnahagstillögum ríkisstjórnarinnar sem hún stefnir á að leggja fyrir Alþingi á fimmtudag. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sagði að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun, að hátekjuskatturinn gefi um 2,5 milljarða í tekjur á þessu ári og um fjóra milljarða á ársgrundvelli. Þá mun fjármagnstekjuskatturinn skila um sex milljörðum. Bakþankar 16. júní 2009 00:01
Peningar sem vaxa á trjám Ástæða er til þess að fagna ítarlegri úttekt nefndar sérfræðinga um möguleika þjóðarinnar til þess að úr nettóútstreymi gróðurhúsalofttegunda í mismunandi geirum samfélagsins. Niðurstöður nefndarinnar, sem starfað hefur á vegum umhverfisráðuneytisins frá því á vordögum 2007, voru kynntar síðastliðinn föstudag. Fastir pennar 15. júní 2009 06:00
Tveir sköllóttir Fyrri hluta dags þegar Evrópukosningarnar svokölluðu stóðu yfir leit ég inn í kjördeild í París, og var þar eyðilegt um að lítast. Þegar mjög illa er mætt á einhverjum stað segja Frakkar gjarnan í niðrandi tón að þangað hafi ekki komið nema „tveir sköllóttir og þrír snoðaðir"; það eru þó allavega fimm manns samtals, en í kjördeildinni voru ekki nema þessir tveir sköllóttu komnir til að kjósa, annar á leiðinni út og hinn á leiðinni inn. Þá þótti mér sýnt að þátttakan í þessum kosningum myndi ekki verða yfirmáta mikil, og þó höfðu franskir fjölmiðlar ekkert til þess sparað dagana og vikurnar á undan til að koma þeirri hugmynd inn hjá kjósendum að Evrópuþingið væri lífsnauðsynleg stofnun, þar réðust örlög alheims og veraldarheill væri undir því komin að allir greiddu atkvæði. Fastir pennar 15. júní 2009 06:00
Djúp þörf fyrir kaflaskil Miklu skiptir fyrir íslenskt samfélag að kaflaskil fáist í þrjú stór mál, sem allra fyrst. Það þarf að koma Icesave-samningum frá, sækja um aðild að Evrópusambandinu og ljúka rannsóknum á aðdraganda og eftirköstum bankahrunsins. Fastir pennar 13. júní 2009 06:00
Hugsanlega Pólitískar vísbendingar um möguleika á þjóðstjórn eru ekki sýnilegar eins og sakir standa. Þörfin fyrir skýra framtíðarsýn, vissu um hvað til bragðs skuli taka og breiðari samstöðu um framkvæmd einstakra mála er þó smám saman að verða augljósari og brýnni en áður. Fastir pennar 12. júní 2009 06:00
Pómóbolti Nýlega las ég grein þar sem yfirstandandi efnahagsófarir voru ekki eingöngu skrifaðar á gráðuga bankamenn og andvaralausa stjórnmálamenn, heldur líka á ríkjandi menningarástand undanfarinna ára á Vesturlöndum sem er jafnan kennt við póstmódernisma. Hugmyndafræði sem hafnaði fyrri gildum og reglum, var ekki bundin á klafa fortíðarinnar heldur einkenndist af afstæðishyggju og stuðlaði þannig að áhættusækinni nýjungagirni á fjármálamörkuðum. Módernísk atómskáld viku fyrir póstmódernískum athafnaskáldum. Bakþankar 12. júní 2009 06:00
Reynslusögur frá Rússlandi Þetta var nokkru eftir 1980. Ég var staddur í Leníngrað, hún hét því nafni þá þessi sögufræga og fallega borg austast við Eystrasalt, ég bjó á Hótel Pribaltiskaya, útlendingar voru yfirleitt hafðir þar í hæfilegri fjarlægð frá miðborginni. Ég fór ferða minna með leigubílum og spurði einn bílstjórann hvað ný Lada kostaði út úr búð. Hann sleppti stýrinu og slengdi tíu fingrum tvisvar upp í loftið. Fastir pennar 11. júní 2009 06:00
Með peninga á heilanum Mannasaur er ævinlega fyrir peningum, því meiri saur, því meiri peningar. Þetta segir á draumaráðningasíðunni draumur.is og varla lýgur hún. Hvernig ætli standi á þessu? Eru draumarnir að segja okkur einhvern hyldjúpan sannleika? Eru peningar, þegar betur er að gáð, bara jafn ómerkilegt fyrirbæri og úrgangurinn úr okkur? Er þá fólk sem lifir í stanslausum eltingaleik við peninga í raun bara að veltast upp úr eigin saur? Bakþankar 11. júní 2009 06:00
Að axla ábyrgð Samkomulag við Breta um lausn Icesave-deilunnar er fagnaðarefni og hluti af úrlausn þeirra mörgu vandamála sem við blasa í endurreisn landsins eftir efnahagshörmungar. Fastir pennar 10. júní 2009 08:00
Tragikómískar u-beygjur Umræðan á Alþingi um Iesave-samninginn hefur verið lærdómsríkt hraðnámskeið fyrir fólkið í landinu, á að minnsta kosti tvo vegu. Fyrri hlutinn snýr að því hversu rígfastir margir þingmannanna okkar eru í þeim gömlu stellingum að freista þess að bregða fæti fyrir pólitíska andstæðinga með öllum tiltækum ráðum. Fastir pennar 10. júní 2009 06:00
Icesave á forngrísku Í Grikklandi hinu forna voru eftirmál ósigra býsna hörð en að sama skapi skýr. Þá voru ekki settar saman samninganefndir sem skröfuðu á leynilegum fundum uns komin var flókin niðurstaða sem allir gætu sætt sig við…nema Íslendingar. Bakþankar 10. júní 2009 06:00
Ósagða ræðan Á sjómannadaginn töluðu flestir eðli máls samkvæmt um nýju stjórnarstefnuna um sviptingu veiðiheimilda. Þar á var þó ein undantekning: Ræða sjávarútvegsráðherrans um það efni er enn ósögð. Hvernig má það vera? Fastir pennar 9. júní 2009 06:00
Allt í fári Þeir segja sumir að við plummum okkur best í fári, einhverjum djöfulgangi þegar allar hendur eru kallaðar á dekk og hver maður dreginn í aðgerð. Þetta er vitaskuld erfðabundinn fjandi fólki sem varð að vinna í törnum og hamaðist í kappi við tímann: þurrkurinn var úti, sól farin bak við ský, vindátt að breytast. Hvort sem það var hey á velli, kös á bryggju, það varð að koma heyjum í hús, fiski í salt, fé af fjalli. Lífsafkoman var undir því komin að unnið væri hratt og allir hjálpuðust að. Svo mátti dóla sér við rólegri verkefni vetrarlangt. Vefa, prjóna sokkaplögg, annað smálegt. Við erum hrotufólk. Bakþankar 9. júní 2009 06:00
Börn og annað fólk Árla dags í október 1997 sat ég í skólastofu í úthverfi Hamborgar í Þýskalandi og fylgdist með Olgu Guðrúnu Árnadóttur spjalla við börnin í bekknum, sem voru á fermingaraldri, og lesa fyrir þau úr bók sinni „Peð á plánetunni Jörð". Tíminn hófst með því að kennari unglinganna kynnti góðan gest, rithöfund frá Íslandi, sem hefði skrifað vinsæla unglingabók og ætlaði að lesa úr henni fyrir þau. Síðan settist hann hjá mér, en Olga Guðrún tók sér stöðu framan við kennaraborðið og ávarpaði bekkinn. Nokkrir strákar áttu erfitt með að sitja kyrrir og voru bersýnilega að spegla sig hver í öðrum, flissuðu, iðuðu í sætunum og skimuðu látlaust í kringum sig, en að öðru leyti virtust þessir krakkar forvitnir fremur en áhugasamir um þessa óvæntu heimsókn. Fastir pennar 9. júní 2009 06:00
Hin tæra snilld Tær snilld voru þau orð sem fyrrverandi bankastjóri Landsbankans notaði um Icesave-innlánsreikningana sem þá voru farnir að afla milljóna og milljarða í innlán til Landsbankans. En Adam var ekki lengi í Paradís og einungis liðu fáeinir mánuðir þar til þessi tæra snilld hafði kallað hryðjuverkalög yfir starfsemi þessa sama banka í Bretlandi. Fastir pennar 8. júní 2009 06:00
Stríðið hans pabba Hverjum þeim sem heillast af bók ber skylda til að segja frá henni," segir í lögum bókaáhugafólks og nú hef ég hnotið um eina slíka. Fars krig heitir hún og er eftir Norðmanninn Bjørn Westlie. Landar hans voru svo hrifnir af henni að þeir veittu honum Brageprisen í fyrra. Fars krig er sannsöguleg bók þar sem Bjørn segir frá föður sínum, Petter, sem skráði sig í Waffen-SS í Seinna stríði og var sendur á vígstöðvarnar í Úkraínu. Hrifning hans á Þjóðverjum var slík að hann breytti ættarnafninu Vestli í Westlie. Bakþankar 8. júní 2009 06:00
Hin hliðin Ríkisstjórn Íslands átti í meiri vandræðum með heimsókn Dalai Lama en nágrannaþjóðirnar eins og Danmörk til að mynda. Ástæðan er ekki ósnoturt hjartalag ráðherranna. Þvert á móti má vitna til margra yfirlýsinga þeirra frá stjórnarandstöðutímanum sem bera vott um sterka samstöðu með undirokuðum minnihlutahópum. Fastir pennar 5. júní 2009 06:00
Afar ánægjuleg máltíð Við vorum hálfnaðir með vindlana og höfðum drukkið ein fimm koníaksglös þegar þjónninn kom og Viktor afhenti honum blaðið sem hann hafði hripað eitthvað á og leit út eins og útfyllt ávísun. Þjónninn tók blaðið upp eins og hann byggist við að sjá ávísun. Svo sá ég að hann stirðnaði og augu hans hringsnerust. [...] Á blaðið hafði Viktor skrifað: „Við erum allir vistmenn á Kleppi. Verið svo vinsamlegir að hringja á lögregluna strax. Þetta var afar ánægjuleg máltíð."" Þannig lyktaði frægu bæjarleyfi í bók Einars Más Guðmundssonar, Englar alheimsins, og samnefndri kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar. Fastir pennar 4. júní 2009 06:00
Að trúa á góðvild Það er sterk upplifun að vera í návígi við mann sem þekktur er í gegnum fjölmiðla og hefur á þann hátt verið hluti af lífi manns í áratugi. Það reyndu nokkur þúsund Íslendingar sem hlýddu á Dalai Lama í Laugardalshöll á þriðjudag og væntanlega ekki síður þeir sem tóku þátt í samtrúarlegri friðarstund í Hallgrímskirkju á öðrum degi hvítasunnu. Fastir pennar 4. júní 2009 06:00
Fer hver að verða sér næstur? BMX reiðhjóli húsbóndans var stolið úr garðinum um daginn. Þetta er þriðja hjólið í hans eigu sem einhver óprúttinn hefur á brott með sér í skjóli nætur. Eins var hjólinu mínu stolið fyrir nokkru síðan, með áföstum barnastól! Ég kenni kreppunni um. Þegar harðnar á dalnum er fólk til alls víst. Bakþankar 4. júní 2009 06:00
Upplýsandi ákvörðun Á morgun kynnir peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvörðun sína um stýrivexti. Ákvörðunin er um margt söguleg. Vöxtum var síðast breytt fyrir mánuði síðan og peningastefnunefndin gaf út þá fyrirætlan sína að vextir yrðu lækkaðir umtalsvert við næstu ákvörðun, sem er á morgun, og í minni skrefum eftir það. Fastir pennar 3. júní 2009 06:45
Hænufetið Fjármálaráðherrann hefur sætt nokkuð harðri gagnrýni vegna nýrra skatta á bensín og áfengi. Fæstum kemur það á óvart. Þessa ákvörðun verður hins vegar að skoða í ljósi aðstæðna. Fastir pennar 3. júní 2009 06:00
Slóðir rabarbarans Í garði foreldra minna fyrir austan fjall sneiddi ég tíu kíló af rabarbara um hvítasunnuna og sá vel spírað kartöfluútsæði af ýmsum gerðum hverfa ofan í mjúka sunnlenska mold. Sólin skein inn á milli hárra aspanna í garðinum og á pallinn þar sem ég stóð og skar súruna; úr heitum potti við hlið mér rauk úr hlýju og ilmandi hreinu vatni. Skyndilega varð ég andaktug yfir rabarbaranum og fannst aldingarður ekkert of fínt nafn fyrir þessa paradís foreldra minna, svona jafnvel þótt rabarbari sé í raun grænmeti fremur en ávöxtur og svo súr að það þarf víst ekki að innbyrða sérlega mikið af honum til að hann hafi truflandi áhrif á nýrun. Bakþankar 2. júní 2009 06:00
Þeir klárustu klikkuðu Víðar en á Íslandi þykir snerpa stjórnmálamanna hafa mátt vera meiri í aðdraganda og kjölfar hruns fjármálamarkaða. Þetta sjónarmið kemur til dæmis fram í merkilegri forsíðugrein júníheftis timaritsins The New York Review of Books. Greinin er endurrit af pallboðsumræðum nokkurra helstu þungavigtarmanna heims á sviði hagsögu, hagfræði og viðskipta, þar á meðal Nialls Ferguson, Pauls Krugman, George Soros og Nouriels Roubini. Fastir pennar 2. júní 2009 06:00
Endurmat í skugga kreppu Haustið 2008, skömmu eftir að kreppan kom til Íslands af fullum þunga, kom út bók eftir Guðmund Magnússon, sem kallaðist Nýja Ísland. Í því riti, sem væntanlega var að stórum hluta ritað áður en áhrif kreppunnar komu fram, kemur fram hörð gagnrýni á hugmyndafræði „útrásarinnar" og misskiptingu auðs á Íslandi undir stjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks. Einnig tekst höfundur á við klisjuna um að íslenskt samfélag hafi losnað úr einhverjum læðingi undanfarna áratugi. Fyrir 1990 hafi allt verið hér í niðurníðslu en síðan höfum við orðið frjáls í skjóli duglegra athafnamanna sem hafi sett punktinn yfir i-ið með hinni margmærðu útrás. Gagnrýni Guðmundar var athyglisverð fyrir þær sakir að hún var sett fram frá sjónarhóli hægrimanns, en vinstrimenn höfðu þá um nokkurt skeið sagt það sama. Undirritaður ritaði m.a. á vefritið Múrinn við áramót og 2005 og sagði þá: „Vel má vera að þessi klisja fái snöggan endi ef braskið á hinum erlendu mörkuðum ber ekki þann árangur sem að er stemmt." Það þurfti svo sem ekki mikla athyglisgáfu til að geta haft áhyggjur af því hvert stefndi. Þar nægði að vísa til reynslunnar af verðbréfaloftbólunni sem náði hámarki á árunum 1999-2000 og hruninu í kjölfarið. Fastir pennar 2. júní 2009 06:00
Mannréttindamál mega ekki týnast Efnahagskreppan sem nú skekur heiminn allan setur víða mark sitt. Í ársskýrslu mannréttindasamtakanna Amnesty International sem kynnt var í vikunni kemur fram að í efnahagsþrengingum eins og nú ríkja sé hætta á að mannréttindabrotum fjölgi. Á sama tíma sé mannréttindamálum nú skipað aftar á forgangslista og hljóti jafnvel minni athygli en áður vegna hinnar miklu athygli sem beinist að efnahagsmálum. Fastir pennar 30. maí 2009 06:00