Segir miður að ekki allir ferðamenn hafi verið upplýstir um jarðhræringar Skjálftavirkni jókst á ný í nótt og landris heldur áfram á sama hraða við Þorbjörn. Framkvæmdastjóri Bláa lónsins segir miður að ekki allir ferðamenn hafi verið upplýstir um jarðhræringar á svæðinu við komuna í lónið í gær. Innlent 5. nóvember 2023 12:01
Landris heldur áfram Landris heldur áfram á sama hraða við Þorbjörn og engin skýr merki eru um að kvika sé að færast nær yfirborði. Gera má ráð fyrir áframhaldandi jarðskjálftavirkni vegna kvikuinnskotsins, sem veldur aukinni spennu á svæðinu. Innlent 5. nóvember 2023 10:58
Snarpur skjálfti í morgun Skjálftavirkni jókst upp úr klukkan fimm í morgun við Eldvörp á Reykjanesskaga. Stærsti skjálftinn mældist 4,2 að stærð, rétt fyrir klukkan 6.00 í morgun. Yfir 130 skjálftar hafa mælst síðasta klukkutímann, flestir á um 3-5 kílómetra dýpi. Enginn gosórói er á svæðinu. Innlent 5. nóvember 2023 07:17
Bein útsending: Vefmyndavélar í beinni frá Þorbirni Mikil skjálftavirkni og jarðhræringar hafa staðið yfir á Reykjanesi að undanförnu og hefur töluverður hraði verið á landrisi við Þorbjörn. Vísir er með vefmyndavélar á svæðinu, þar sem sjá má útsýnið af Þorbirni, yfir Bláa lónið og Reykjanesskagann annars vegar og svo Grindavík hinsvegar. Innlent 4. nóvember 2023 19:40
Ferðamenn ekki upplýstir um jarðhræringar við komuna í Bláa lónið: „Nei, alls ekki“ Ferðamenn sem voru ný komnir úr Bláa lóninu virtust mis vel upplýstir um jarðhræringarnar á Reykjanesi þegar fréttastofa ræddi við þá í dag. Fáir segjast hafa verið látnir vita af stöðunni við komuna í lónið. Innlent 4. nóvember 2023 19:11
Mögulega aukinn hraði í tilfærslum Síritandi GPS mælar í grennd við fjallið Þorbjörn virðast sýna töluvert stökk í tilfærslum í dag. Mælir við Eldvörp sýnir rúmlega eins sentimetra tilfærslu til vesturs á milli mælinga, yfir átta klukkustunda tímabil, sem er veruleg hröðun frá síðustu dögum. Þetta stökk er sjáanlegt á öllum mælum í kringum landrisið sem nú á sér stað, þó mismikið. Innlent 4. nóvember 2023 17:56
Ekki í stöðunni að loka Bláa lóninu: „Við fylgjum alfarið ráðleggingum sérfræðinganna“ Umhverfisverkfræðingur skorar á yfirvöld að Bláa lóninu verði gert að loka Bláa lóninu tímabundið, en óvissustig almannavarna er þar í gildi vegna jarðhræringa. Framkvæmdastjóri Bláa lónsins segir forsvarsmenn lónsins fylgja sérfræðingum Veðurstofunnar og Almannavarna í einu og öllu og samkvæmt þeim sé ekki tilefni til lokunar sem stendur. Innlent 4. nóvember 2023 14:56
Skjálftavirkni minnkað en búist við að hún aukist aftur Nokkuð hefur dregið úr jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaga síðan á sjötta tímanum í gær. Jarðskjálftar sem mælst hafa eru að sögn náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands minni en áður en gera megi ráð fyrir að jarðskjálftavirkni aukist aftur. Innlent 4. nóvember 2023 12:11
Dregið úr jarðskjálftavirkni Nokkuð hefur dregið úr jarðskjálftavirkni á Reykjanesi síðan klukkan 18 í kvöld og skjálftarnir sem nú mælast eru minni. Virknin er þó enn töluverð og um 450 skjálftar hafa mælst á svæðinu í kringum Þorbjörn frá klukkan 15 í dag. Engin merki eru um að kvika sé að brjóta sér leið upp á yfirborð. Innlent 3. nóvember 2023 20:48
Skjálfti af stærðinni 4,3 Jarðskjálfti af stærðinni 4,3 mældist norðaustur af Grindavík klukkan 13:14 í dag. Um er að ræða einn stærsta skjálfta sem mælst hefur í yfirstandandi hrinu. Innlent 3. nóvember 2023 14:34
Skjálftavirknin viðbúin þegar land rís svona hratt Stærðarinnar skjálftar hafa riðið yfir norðvestur af Grindavík frá miðnætti, þrír hafa verið yfir fjórum að stærð. Jarðeðlisfræðingur segir eðlilegt að stærri skjálftar ríði yfir þegar landris verður eins hratt og raunin er við fjallið Þorbjörn. Það þurfi þó ekki að þýði að von sé á gosi. Innlent 3. nóvember 2023 12:06
Lokum Bláa lóninu Þann 9. desember 2019 hófst sprengigos á eyjunni Whakaari úti fyrir ströndum Nýja Sjálands. Gosið kom nokkuð á óvart og var töluvert af ferðamönnum á eyjunni. Fólkið á svæðinu hafði enga undankomuleið og alls létust 22 á eyjunni þennan dag. Skoðun 3. nóvember 2023 12:01
750 skjálftar frá miðnætti Alls hafa 750 jarðskjálftar mælst á Reykjanesinu frá miðnætti og segir sérfræðingur að virknin hafi aukist aðeins í nótt. Innlent 3. nóvember 2023 07:23
„Þetta er í fyrsta sinn sem manni er svolítið órótt“ „Ég vaknaði bara strax við þann fyrsta sem kom eftir miðnætti. Og vaknaði aftur um klukkan þrjú og hef ekki sofnað síðan. Þetta er bara búið að vera viðvarandi; stórir skjálftar. Maður sér á vefnum að þeir eru yfir þrír meira og minna.“ Innlent 3. nóvember 2023 06:42
Skjálfti 4,2 að stærð rétt vestur af Bláa lóninu Skjálfti 4,2 að stærð varð um 1,2 kílómetra vestur af Bláa lóninu á Reykjanesskaga klukkan 3:51 í nótt. Sjö skjálftar sem hafa verið stærri en 3 að stærð, hafa mælst frá miðnætti, en skjálftanir hafa fundist víða á suðvesturhorni landsins. Innlent 3. nóvember 2023 05:41
Heitt vatn og rafmagn undir: „Allt kapp lagt á það að verja virkjunina“ Framkvæmdastjóri framleiðslu hjá HS Orku segir virkjun fyrirtækisins í Svartsengi gríðarlega mikilvæga, enda sjái hún íbúum á Reykjanesi fyrir heitu og köldu vatni og rafmagni. Verði eldgos á vondum stað verði erfiðast að koma heitu vatni til íbúa. Innlent 2. nóvember 2023 23:00
Þensla undir Þorbirni og öflugra merki um landris Kristín Jónsdóttir, deildarstjóri eldvirkni, jarðskjálfta og í jarðhniki hjá Veðurstofu Íslands, segir að þensla á fimm kílómetra dýpi undir Þorbirni sé til marks um kvikusöfnun. „Kvikukoddi“ sé að myndast undir Þorbirni og öflugra merki sé um landris. Innlent 2. nóvember 2023 18:52
Staðfest að kvika sé á fjögurra til fimm kílómetra dýpi Ítarleg greining á nýjum GPS gögnum og myndum frá gervitunglum staðfesta að kvikuinnskot sé að myndast á fjögurra til fimm kílómetra dýpi undir svæðinu norðvestan við Þorbjörn. Landris heldur áfram á svæðinu. Innlent 2. nóvember 2023 13:51
Jarðskjálftavirkni heldur áfram Jarðskjálftavirkni heldur áfram við Þorbjörn og Svartsengi á Reykjanesskaga. Rúmlega tvö hundruð skjálftar hafa mælst frá miðnætti en engar stórar breytingar eru á virkninni síðan í gær. Síðasta sólarhring hafa aðalega smáskjálftar mælst á svæðinu en enn má gera ráð fyrir stærri skjálftum. Innlent 2. nóvember 2023 08:49
Öflugt landris en engin merki um að eldgos sé yfirvofandi Engin skýr merki eru um að kvika sé að brjóta sér leið upp til yfirborðs á Reykjanesi. Landris við fjallið Þorbjörn heldur þó áfram af krafti. Innlent 1. nóvember 2023 22:00
Stærsti skjálftinn í nótt 3,7 stig Tæplega hundrað skjálftar hafa riðið yfir á Reykjanesinu frá miðnætti, sá stærsti upp á 3,7 stig. Sá kom rétt fyrir klukkan eitt í nótt og var á fimm kílómetra dýpi, 4,6 kílómetra norðvestur af Grindavík. Innlent 1. nóvember 2023 07:29
„Maður hrekkur upp eins og húsið sé að farast hjá manni“ Íbúar í Grindavík eru löngu orðnir vanir skjálftum eftir tíðar hrynur síðustu ár. Þrátt fyrir það taka þeir skjálftunum ekki fagnandi. Margir hrökkva ítrekað við á nóttunni vegna skjálftanna. Innlent 31. október 2023 23:01
Vel undirbúin fari að gjósa Sérfræðingar Veðurstofunnar telja ekki útilokað að kvika nái að brjóta sér leið upp í jarðskorpuna norðvestur af Þorbirni skammt frá Bláa lóninu. Framkvæmdastjóri lónsins segir starfsmenn þess reiðubúna ef það fer að gjósa. Jarðskjálftahrina á svæðinu í dag þykir skýrt merki um kvikuhlaup. Innlent 31. október 2023 20:00
Tveir stórir skjálftar norður af Grindavík Laust fyrir klukkan níu í morgun reið yfir skjálfti sem mældist 3,1 að stærð um 3,6 km norður af Grindavík en litlu seinna reið annar og stærri yfir á sama stað en sá mældist 3,4 að stærð. Innlent 31. október 2023 10:19
Með áætlanir gjósi í Svartsengi Kvikusöfnun heldur áfram nærri Svartsengi og Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, segir fyrirtækið með viðbragðsáætlun komi til eldgoss. Stjórnendur funduðu með almannavörnum í dag. Innlent 30. október 2023 23:53
Langvarandi landris gæti þýtt kröftugra eldgos Eldfjallafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands segir ört landris við Svartsengi og Þorbjörn ekki góðar fréttir í ljósi staðsetningar. Langvarandi landris sé til marks um að töluvert hafi safnast af kviku á svæðinu og því ætti eldgos þar að vera aðeins kraftmeira en síðustu tvö. Hann segir farsælla að viðbragðsaðilar geri í undirbúningi sínum ráð fyrir slæmri útkomu til að þeir séu betur í stakk búnir að leysa málin skjótt og örugglega. Innlent 30. október 2023 11:59
Áframhaldandi þensla við Þorbjörn Land heldur áfram að rísa umhverfis Þorbjörn og Svartsengi. Þetta staðfesta nýjustu gögn Veðustofunnar. Von er á nýjum gervihnattamyndum síðar í dag sem þó verður líklega ekki hægt að lesa úr fyrr en á morgun. Innlent 29. október 2023 14:56
Staðan skýrist betur á morgun Náttúruvársérfræðingur segir að staðan á Reykjanesskaga muni skýrast betur á morgun þegar nýjar myndir berast frá SENTINEL, gervitungli Evrópsku geimstofnunarinnar. Landris hófst við Svartsengi í gær og merki eru um aflögun við Fagradalsfjall. Ekki er talið að kvika sé að brjóta sér leið upp á yfirborð að svo stöddu. Innlent 28. október 2023 23:35
Landris mælist norðvestan við Þorbjörn GPS gögn og myndir frá gervitunglum sýna skýr merki um landris nærri Svartengi sem virðist hafa hafist í gær. Innlent 28. október 2023 14:04
Enn skelfur jörð á Reykjanesi Jörð skelfur enn á Reykjanesi og frá miðnætti hafa tveir skjálftar mælst yfir þremur stigum að stærð. Innlent 27. október 2023 07:39