Enginn eytt meiru í breytingar á Hvíta húsinu Enginn forseti Bandaríkjanna hefur eytt meiri pening í því að endurhanna Hvíta húsið en Donald Trump. Forsetar Bandaríkjanna hafa leyfi til þess að breyta innanhússhönnuninni í húsinu þegar þeir taka við embætti. Lífið 20. janúar 2021 07:01
Trump náðaði Steve Bannon Eitt af síðustu embættisverkum Donalds Trumps sem forseti Bandaríkjanna var að náða Steve Bannon sem var einn helsti ráðgjafi Trumps í kosningabaráttunni 2016 og á fyrstu mánuðum hans í Hvíta húsinu. Erlent 20. janúar 2021 06:45
Nefndi Biden aldrei á nafn í síðasta ávarpinu sem forseti Donald Trump, sem lætur af embætti forseta Bandaríkjanna á morgun, segist munu „biðja fyrir velgengni“ Joes Biden, sem tekur við embættinu af honum á morgun. Hvíta húsið birti kveðjuávarp Trumps nú fyrir skömmu. Erlent 19. janúar 2021 21:57
Washington „eins og herstöð“ í aðdraganda embættistöku Washington svipar til herstöðvar vegna aukinnar öryggisgæslu, segir íslensk kona sem er búsett í borginni. 25 þúsund þjóðvarðliðar eru þar við störf vegna embættistöku Joes Biden á morgun. Erlent 19. janúar 2021 18:31
Skilur eftir sig „djúpríki“ Trump-liða Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, mun skilja eftir sig mikinn fjölda opinberra starfsmanna sem voru upprunalega pólitískt skipaðir í störf sín. Erfitt mun vera fyrir ríkisstjórn Joe Biden að koma þessum mönnum frá. Erlent 19. janúar 2021 12:20
Biden hyggst framlengja ferðabannið Joe Biden verðandi Bandaríkjaforseti ætlar að framlengja ferðabann sem hefur hindrað komu nærri allra farþega án bandarísks ríkisfangs sem hafa á síðustu 14 dögum verið í Brasilíu, Bretlandi, Írlandi eða þeim 26 ríkjum sem tilheyra Schengen-svæðinu. Ísland er þeirra á meðal. Erlent 19. janúar 2021 06:35
Selja aðgang að Trump til auðugra glæpamanna sem vilja náðun Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, er að íhuga að náða eða fella niður dóma rúmlega hundrað manns á síðustu klukkustundum forsetatíðar sinnar. Meðal annarra er forsetinn sagður íhuga að veita sjálfum sér, börnum sínum og ráðgjöfum náðanir. Erlent 18. janúar 2021 10:09
Rannsaka bakgrunn þúsunda þjóðvarðliða Bandaríska alríkislögreglan, FBI, rannsakar nú bakgrunn þeirra 25 þúsund þjóðvarðliða sem væntanlegir eru til Washington-borgar í vikunni til þess að gæta öryggis þegar Joe Biden sver embættiseið sinn sem forseti Bandaríkjanna. Innsetningin verður á miðvikudag. Erlent 18. janúar 2021 09:05
Vill vinda ofan af embættisverkum Trumps sem fyrst Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna, virðist ætla að hefjast handa við það að vinda ofan af ýmsum stefnumálum Donalds Trump, fráfarandi forseta, um leið og hann tekur við embættinu, þann 20. janúar næstkomandi. Erlent 17. janúar 2021 13:38
Bókaútgáfu og viðburði þingmanns sem barðist gegn sigri Bidens aflýst Bandaríska hótelkeðjan Loews hefur tilkynnt að hún muni ekki hýsa fjáröflunarsamkomu fyrir bandaríska öldungadeildarþingmanninn Josh Hawley. Hann er einn þeirra þingmanna sem hefur barist hvað harðast gegn því að sigur Joes Biden í forsetakosningunum í nóvember á síðasta ári yrði staðfestur. Erlent 17. janúar 2021 09:23
Lífverðirnir máttu ekki gera þarfir sínar hjá Ivönku og Jared Lífvarðasveit forseta Bandaríkjanna hefur greitt þrjú þúsund dali á mánuði í leigu lítillar kjallaraíbúðar nærri heimili Ivönku Trump, dóttur Donalds Trump forseta, og Jared Kushner í Washington DC svo þeir geti farið á klósettið. Erlent 14. janúar 2021 22:45
Reiður yfir því að enginn komi honum til varnar Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, er sagður vera reiður út í starfsmenn sína og bandamenn á lokadögum forsetatíðar sinnar. Hann er sérstaklega reiður yfir því hve fáir hafa komið honum til varnar í tengslum við það að í gær var hann í annað sinn ákærður fyrir embættisbrot. Erlent 14. janúar 2021 21:10
Hvatti stuðningsmenn sína til að sýna stillingu Donald Trump Bandaríkjaforseti birti í gær sjónvarpsávarp þar sem hann hvatti stuðningsmenn sína til þess að sýna stillingu og grípa ekki til ofbeldis í aðdraganda embættistöku Joes Biden í næstu viku. Erlent 14. janúar 2021 07:11
Hæstiréttur skikkar konur til að mæta á staðinn til að sækja þungunarrofslyf Hæstiréttur Bandaríkjanna ákvað í gær að skikka konur aftur til að mæta sjálfar á heilbrigðisstofnun eða í lyfjaverslun til að fá afhent lyf sem notað er til að framkvæma þungunarrof. Alríkisdómari hafði fellt regluna úr gildi vegna Covid-19 faraldursins og taldi yfirvöldum ekki stætt á því að krefjast þess að konur hættu heilsu sinni til að eiga kost á þungunarrofi. Erlent 13. janúar 2021 23:03
Trump ákærður fyrir embættisbrot öðru sinni Meirihluti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings samþykkti í kvöld að ákæra Donald Trump, fráfarandi forseta, fyrir embættisbrot vegna aðkomu hans að árásinni á þinghúsið í síðustu viku. Nokkrir þingmenn Repúblikanaflokksins gengu til liðs við Demókrata í atkvæðagreiðslunni. Erlent 13. janúar 2021 21:24
YouTube lokar tímabundið á Donald Trump Myndbandssíðan YouTube, sem er í eigu tæknirisans Google, hefur ákveðið að loka tímabundið á það að Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseti, geti hlaðið upp efni á síðuna. Trump getur þannig hvorki hlaðið upp myndböndum né verið í beinu streymi á YouTube. Erlent 13. janúar 2021 08:49
Þingmenn Repúblikana snúast gegn Trump Kapphlaup Demókrata á Bandaríkjaþingi til að koma Donald Trump forseta frá völdum með ákæru fyrir brot í starfi virðist vera að fá nokkurn byr í seglin en nú þegar hafa þó nokkrir Repúblikanar sagst ætla að samþykkja tillöguna. Erlent 13. janúar 2021 07:14
Evrópskir ráðamenn neituðu að hitta Pompeo Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hætti í skyndi við síðustu embættisferð sína í dag, eftir að ráðamenn og embættismenn í Evrópusambandsinu neituðu að hitta hann. Ástæðan er sögð vera árásin á þinghús Bandaríkjanna í síðustu viku og aðkoma Donalds Trump, forseta, að henni. Erlent 12. janúar 2021 20:34
Munu ekki þrýsta á þingmenn að segja nei við ákærum á hendur Trump Leiðtogar Repúblikanaflokksins í fulltrúadeild bandaríska þingsins hafa ákveðið að þrýsta ekki á flokksfélaga sína um að greiða atkvæði gegn því að Donald Trump Bandaríkjaforseti verði ákærður fyrir embættisbrot. Erlent 12. janúar 2021 20:16
Segist enga ábyrgð bera Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir gífurlega reiði í Bandaríkjunum vegna þess að fulltrúadeild þingsins undirbúi að kæra hann aftur fyrir embættisbrot. Að þessu sinni er verið að kæra hann fyrir að hvetja fólk til uppreisnar. Erlent 12. janúar 2021 18:05
Þjálfari Patriots sagði nei takk þegar Trump bauð honum Frelsisorðuna Bill Belichick, þjálfari New England Patriots, gaf það út í gær að hann ætli ekki að taka við Frelsisorðu Bandaríkjaforseta af Donald Trump. Sport 12. janúar 2021 08:30
FBI varar við mótmælum og ofbeldi víða um Bandaríkin Starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna hafa áhyggjur af því að hópar vopnaðra manna ætli sér að mótmæla embættistöku Joe Bidens, verðandi forseta Bandaríkjanna, þann 20 janúar. Mótmælin eru sögð eiga að hefjast seinna í þessari viku og standa yfir þar til Biden tekur við embætti og jafnvel lengur. Erlent 11. janúar 2021 22:30
Parler ætlar í hart við Amazon Samfélagsmiðillinn Parler ætlar að höfða mál gegn Amazon eftir að fyrirtækið neitaði að hýsa vefsíðu miðilsins áfram. Ákvörðun Amazon kom í kjölfar þess að bæði Google og Apple ákváðu að fjarlægja Parler úr smáforritaverslunum sínum. Viðskipti erlent 11. janúar 2021 22:04
Lögðu fram frumvarp um aðra kæru gegn Trump Demókratar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings hafa lagt formlega fram frumvarp um að kæra Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, í annað sinn fyrir embættisbrot. Það felur í sér að kæra hann sérstaklega fyrir að hvetja fólk til uppreisnar og þá fyrir hlutverk hans í því að æsa fólk upp, sem á endanum braut sér leið inn í þinghús Bandaríkjanna til að stöðva formlega staðfestingu úrslita forsetakosninganna í nóvember. Erlent 11. janúar 2021 17:51
Sjálfstæðismenn vilja leggja búsáhaldabyltingu og árásina á þinghúsið í Bandaríkjunum að jöfnu Fjölmargir flokksbundnir Sjálfstæðismenn hafa stigið fram að undanförnu og lýst því yfir að búsáhaldabyltingin og óeirðirnar við þinghúsið í Bandaríkjunum séu á margan hátt hliðstæðir atburðir. Innlent 11. janúar 2021 13:51
Hætta við að halda risamót á velli Trumps Samtök atvinnukylfinga í Bandaríkjunum, PGA of America, hafa ákveðið að hætta við að halda PGA meistaramótið á næsta ári á golfvelli í eigu Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta. Er það vegna atburðanna í síðustu viku þegar stuðningsmenn Trumps réðust inn í bandaríska þinghúsið. Golf 11. janúar 2021 07:55
Fulltrúadeildin ætlar að leggja fram ákæru á hendur Trump Fulltrúadeild Bandaríkjaþings mun á næstu dögum ákæra Donald Trump Bandaríkjaforseta fyrir embættisbrot. Þetta sagði Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildarinnar, í bréfi til þingmanna á sunnudag. Erlent 11. janúar 2021 00:50
Trump bað kosningaeftirlitsmann í Georgíu að „finna svindlið“ Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseti, hvatti kosningaeftirlitsmann í Georgíu til þess að „finna svindlið“ og sagði að hann yrði þjóðhetja ef það tækist. Þetta er þriðja skiptið sem því er lýst að Trump hafi hringt í háttsetta embættismenn í Georgíu í von um að þeir myndu snúa niðurstöðum kosninganna. Erlent 10. janúar 2021 16:01
Pence verður viðstaddur embættistöku Biden Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, ætlar að vera viðstaddur þegar Joe Biden og Kamala Harris verða sett í embætti síðar í þessum mánuði. Fjölmiðlar vestanhafs hafa þetta eftir heimildarmanni í Washington, en Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sjálfur lýst því yfir að hann muni ekki vera viðstaddur innsetningarathöfnina. Erlent 10. janúar 2021 11:15
Amazon neitar að hýsa Parler Amazon hefur tilkynnt samfélagsmiðlinum Parler að fyrirtækið muni ekki hýsa síðuna vegna brota á notendaskilmálum. Því mun Parler ekki lengur vera aðgengileg nema síðan finni sér nýjan stað til þess að hýsa vefinn. Viðskipti erlent 10. janúar 2021 09:02