Honda nær þriðja stigi í sjálfsaksturstækni Honda hefur fengið leyfi japanskra yfirvalda til að framleiða bíl með þriðja stigs sjálfsaksturstækni. Það er í fyrsta skipti sem bifreið með þeirri tækni er leyfð til aksturs í venjulegri umferð. Bílar 20. nóvember 2020 07:01
Svifryksmengun nærri tvöfalt yfir mörkum í borginni í gær Styrkur svifryks var nærri tvöfalt hærri en heilsuverndarmörk gera ráð fyrir á mælistöð við Grensásveg í gær. Mengun hefur áfram verið viðvarandi í frosti og stillu í borginni í dag þrátt fyrir að borgin hafi látið rykbinda götur. Nagladekk eru sögð vega þungt í svifryksmengun af þessu tagi. Innlent 19. nóvember 2020 16:33
Feðgarnir í Svartárkoti halda báðir tryggð við fyrsta bílinn Áhugi manna á gömlum bílum lýsir sér með ýmsum hætti. Hjá feðgum á bænum Svartárkoti í Bárðardal í Þingeyjarsveit birtist hann í því að hafa aldrei sleppt takinu á fyrsta bílnum sem þeir eignuðust. Þetta mátti sjá í þættinum Um land allt á Stöð 2. Lífið 19. nóvember 2020 12:40
Flýta banni við bensín- og dísilbílum um fimm ár Breska ríkisstjórnin kynnti áform um að flýta banni við nýjum bensín- og dísilbílum um fimm ár í dag. Bannið á nú að taka gildi árið 2030 og vera liður í gera Bretland kolefnishlutlaust fyrir árið 2050. Erlent 18. nóvember 2020 10:52
Nýir Peugeot bílar með sjö ára ábyrgð Brimborg býður nú alla nýja Peugeot bíla með víðtækri sjö ára ábyrgð auk átta ára ábyrgðar á drifrafhlöðu rafbíla, samkvæmt fréttatilkynningu frá Brimborg. Bílar 18. nóvember 2020 07:01
Mercedes-Benz fjárfestir í framleiðslu rafbíla Daimler, eigandi Mercedes-Benz, hefur fjárfest fyrir alls 730 milljónir evra í verksmiðju sem mun einblína á framleiðslu á rafbílum frá Mercedes-Benz, það samsvarar um 118 milljörðum króna. Bílar 16. nóvember 2020 07:01
Nissan LEAF áreiðanlegasti notaði rafbíllinn í Bretlandi Rafbíllinn Nissan LEAF var á dögunum útnefndur áreiðanlegasti notaði rafbíllinn á breska markaðnum af tryggingafélaginu Warrantywise í Bretlandi sem sérhæfir sig í sölu framhaldsábyrgða á bílum eftir að framleiðsluábyrgð þeirra lýkur. Bílar 14. nóvember 2020 07:00
Citroën með 7 ára ábyrgð Nýir Citroën bílar frá Brimborg eru nú með sjö ára ábyrgð og átta ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Ábyrgðin er víðtæk verksmiðjuábyrgð fyrir fólksbíla og sendibíla. Bílar 13. nóvember 2020 07:00
Hyundai i20 vann aftur Gullna stýrið Hin nýja kynslóð Hyundai 120 hlaut í liðinni viku Gullna stýrið hjá þýska dagblaðinu Bild am Sonntag sem birt er í nýjasta tölublaði Auto Bild. Bílar 11. nóvember 2020 07:00
Fræðslumyndbönd um rafbíla og hleðslu þeirra Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur gert þrjúfræðslumyndbönd um rafbíla á Íslandi, hleðslu þeirra og raflagnir og hleðslu í fjölbýlishúsum. Bílar 9. nóvember 2020 07:00
Kia Sorento vinnur Gullna stýrið Nýr Kia Sorento var sæmdur hinu eftirsótta Gullna stýri en tilkynnt var um verðlaunin í Þýskalandi í gær. Kia Sorento hafði betur í úrslitum við Aston Martin DBX og BMW X6 í flokki stórra sportjeppa. Bílar 7. nóvember 2020 07:01
Fylgja þarf fyrirmælum framleiðenda um tjónaviðgerðir í hvívetna Undanfarna daga hefur verið fjallað nokkuð um tjón á nýlegum Nissan Leaf eftir umferðaróhapp árið 2019 sem olli skemmdum á rafhlöðu bílsins. BL hefur fylgst með málinu frá því að haft var samband við fyrirtækið vegna skyndilegra skertra afkasta rafhlöðu bílsins. BL hefur nú sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins. Bílar 6. nóvember 2020 07:00
Tesla opnaði stærstu hleðslustöð landsins Tesla opnaði stærstu hleðslustöð landsins við Staðarskála í gærmorgun. Stöðin er samkvæmt fréttatilkynningu frá Tesla sú lang öflugasta á landinu. Hún verður jafnframt sú fyrsta á landinu sem notast við þriðju kynslóðar ofurhleðslutæknina. Bílar 5. nóvember 2020 07:01
Toyota var með flestar nýskráningar í október Samtals voru 124 Toyota bifreiðar nýskráðar í október. Þar af voru flestar bifreiðarnar af Rav4 gerð, eða 45. Nýst flestar nýskráningar voru hjá Suzuki, eða 98. Þar var SX4 hlutskarpasta undirtegundin. Bílar 4. nóvember 2020 07:00
Smáa letrið kom Eiríki í koll sem situr eftir með sárt ennið Eiríkur Björnsson keypti lítillega tjónaðan Nissan Leaf bíl árið 2019. Lítið mál hélt Eiríkur þar til rafhlaðan fór allt í einu að verða til vandræða. Bílar 2. nóvember 2020 07:00
Ætla að byrja að rukka fyrir rafhleðsluna í miðbænum Innan tíðar hefst gjaldtaka á rafhleðslustöðvum sem reknar eru af Reykjavíkurborg. Viðskipti innlent 29. október 2020 11:10
Mercedes-Benz verðmætasta lúxusbílamerkið fjórða árið í röð Vörumerki Mercedes-Benz er metið verðmætasta vörumerki lúxusbifreiða á árlegum lista Interbrands yfir verðmætustu vörumerkin. Mercedes-Benz er í áttunda sæti á lista Interbrands yfir verðmætustu vörumerki heims og eina evrópska fyrirtækið sem kemst á listann. Bílar 28. október 2020 07:00
Innkalla 87 Kia Soul bifreiðar Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf um að innkalla þurfi 87 Kia Soul EV (PS EV) bifreiðar. Innlent 27. október 2020 10:29
Innkalla 24 Mercedes-Benz Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf um að innkalla þurfi 24 Mercedes-Benz A-Class. Viðskipti innlent 26. október 2020 10:14
Nissan Juke fagnar tíu ára afmæli Tíu ár eru liðin síðan fyrsta kynslóð jepplingsins Nissan Juke kom á markað. Ytri og innri hönnun Juke þótti afar byltingarkennd í upphafi og þótti sumum hún full djörf. Bílar 26. október 2020 07:00
Heimsending á reynsluakstursbílum Bílaumboðið BL hefur nú tekið upp þá nýbreytni að bjóða viðskiptavinum sem kjósa að fá sendan nýjan reynsluakstursbíl heim að dyrum í stað þess að gera sér ferð í sýningarsali fyrirtækisins við Sævarhöfða, Hestháls eða Kauptún. Bílar 24. október 2020 07:00
Askja frumsýnir Kia Sorento á Facebook Nýr Kia Sorento verður frumsýndur á Facebook síðu Kia á Íslandi kl. 12 í dag, föstudag. Frá og með hádegi í dag verður bíllinn til sýnis í sýningarsal Kia á Krókhálsi 13 og hjá umboðsmönnum Kia út um land allt þar sem mögulegt verður að fá að reynsluaka honum. Bílar 23. október 2020 07:00
Samkeppniseftirlitið hefur rannsókn á Orku náttúrunnar Samkeppniseftirlitið hefur hafið formlega rannsókn á Orku náttúrunnar (ON) þar sem kannað er hvort að fyrirtækið hafi gerst brotlegt við samkeppnislög þegar kemur að sölu, uppsetningu og þjónustu fyrirtækisins bæði á hleðslustöðvum og hleðslum fyrir rafbíla. Viðskipti innlent 21. október 2020 07:48
Nýir Volvo lögreglubílar fyrir 200 milljónir Ríkiskaup hefur, í kjölfar útboðs fyrir hönd lögregluembættanna á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum tekið lægsta tilboði Brimborgar um kaup á 17 nýjum Volvo lögreglubifreiðum að verðmæti yfir 200 milljónir króna. Bílar 21. október 2020 07:01
Myndband: Rúða í Tesla Model Y splundrast inn í bílskúr Vandamál sem hrjáðu einhverja Tesla Model 3 bíla virðist vera fjölskylduvandi. Vandamálið snýr að því að bílarnir sprengja hliðarrúður sínar. Myndband fylgir fréttinni. Bílar 19. október 2020 07:01
Raunhæft að Ísland verði óháð bensíni og dísil árið 2050 Guðrún Arnbjörg Sævarsdóttir, formaður starfshóps stjórnvalda um Orkustefnu til næstu 30 ára telur mögulegt að Ísland verði orðið óháð jarðefnaeldsneyti ári 2050. Bílar 17. október 2020 07:01
Nýr Renault Megane eVision er fyrstur í nýrri rafbílafjölskyldu Franski bílaframleiðandinn Renault hefur kynnt til sögunnar Megane eVision sem er ætlað að „enduruppgötva sígílda hlaðbakinn“ samkvæmt Renault. Bíllinn er hugmyndabíll eins og er en er líkur þeim bíl sem er ætlað að fara í framleiðslu undir lok árs 2021. Bílar 16. október 2020 07:00
Afhentu fyrsta Honda e rafbílinn Fyrstu eintök verðlaunabílsins Honda e eru komin til landsins og afhendingar hafnar til kaupenda sem beðið hafa komu bílsins með mikilli eftirvæntingu. Bílar 13. október 2020 07:00
Svona nær Elon Musk að reisa verksmiðjur Teslu á ógnarhraða Eitt allra vinsælasta farartæki heimsins í dag eru bílarnir frá fyrirtækinu Tesla en um er að ræða rafmagnsbíla sem ganga aðeins fyrir rafmagni. Lífið 12. október 2020 16:29
Amazon kaupir 100.000 raf-sendibíla frá Rivian Amazon segir að fyrstu bílarnir verði komnir í umferð á næsta ári. Netrisinn segist vera að „hækka viðmiðið fyrir næstu kynslóð sendibíla“. Bílar 12. október 2020 07:01