Tveggja leikja bann fyrir glórulausa tæklingu Stjörnumaðurinn Samúel Kári Friðjónsson getur þakkað fyrir það að fá bara tveggja leikja bann fyrir glórulausa tæklingu sína í leik Stjörnunnar og KR í Lengjubikarnum á dögunum. Íslenski boltinn 11.3.2025 17:44
Fyrirliði Vestra veðjaði á leiki í Bestu deildinni Elmar Atli Garðarsson, fyrirliði Vestra í fótbolta, viðurkennir að hafa veðjað á leiki í Bestu deild karla. Hann segist hafa brugðist sjálfum sér og segir að dómstólar KSÍ muni fá mál hans til rannsóknar. Íslenski boltinn 11.3.2025 14:17
Valur fær manninn sem var efstur á óskalistanum Norski miðjumaðurinn Marius Lundemo hefur samið við Val og mun leika með liðinu í Bestu deild karla næstu tvö árin. Lundemo kom til móts við Valsmenn sem eru í æfingaferð á Marbella á Spáni. Íslenski boltinn 11.3.2025 08:30
Daði Berg frá Víkingi til Vestra Vestri hefur fengið Daða Berg Jónsson á láni frá Víkingi. Hann er annar leikmaðurinn sem Vestri hefur fengið á jafn mörgum dögum. Íslenski boltinn 28. febrúar 2025 11:40
Víkingar skipta um gír Sölvi Geir Ottesen gengur stoltur frá fyrsta verkefni sínu sem þjálfari karlaliðs Víkings í fótbolta. Evrópudraumurinn er nú úti og leikmenn liðsins skipta um gír. Þeir snúa sér að undirbúningi fyrir komandi Íslandsmót. Íslenski boltinn 28. febrúar 2025 09:00
Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Vestri hefur samið við eistneska framherjann Kristoffer Grauberg Lepik. Hann mun leika með liðinu í Bestu deild karla í sumar. Íslenski boltinn 27. febrúar 2025 16:25
Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Kjartan Kári Halldórsson var orðaður við Val og Víking sem bæði hafa boðið í strákinn en nú staðfestir hann sjálfur að hann fari ekki fet og verði áfram í Hafnarfirðinum. Íslenski boltinn 27. febrúar 2025 13:03
Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Magnús Orri Schram er nýr formaður knattspyrnudeildar KR. Hann hlaut kjör á aðalfundi deildarinnar í gær og tekur við Páli Kristjánssyni. Íslenski boltinn 27. febrúar 2025 11:47
Atli Sigurjóns framlengir við KR Fótboltamaðurinn Atli Sigurjónsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við KR. Íslenski boltinn 26. febrúar 2025 18:02
Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR Björgvin Brimi Andrésson hefur ákveðið að hætta hjá KR og fara frekar aftur til uppeldisfélags síns Gróttu. Íslenski boltinn 26. febrúar 2025 12:01
FH-ingar æfðu á grasi í febrúar FH-ingar eru að undirbúa sig fyrir komandi keppnistímabil í Bestu deildinni í fótbolta sem hefst eftir rúman mánuð. FH-liðið þarf þó ekki að fljúga suður til Evrópu til að komast á grasvöll. Íslenski boltinn 26. febrúar 2025 09:30
Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Færeyingurinn Jóan Símun Edmundsson hefur samið á ný við KA og mun spila með liðinu í Bestu deild karla í fótbolta í sumar. Íslenski boltinn 26. febrúar 2025 08:40
Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Gylfi Þór Sigurðsson kemur meiddur til Víkings en segist þó á töluvert betri stað en hann var þegar hann samdi við Val fyrir tæpum tólf mánuðum síðan. Íslenski boltinn 26. febrúar 2025 07:30
Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi, er ánægður með komu Gylfa Þórs Sigurðssonar til félagsins. Hann hefur reynt að fá Gylfa til félagsins um langa hríð. Íslenski boltinn 25. febrúar 2025 23:15
ÍA fær Baldvin frá Fjölni Miðvörðurinn Baldvin Þór Berndsen er genginn í raðir ÍA og skrifar undir samning á Akranesi út tímabilið 2027 í Bestu deild karla í fótbolta. Íslenski boltinn 25. febrúar 2025 18:17
Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val Kjartan Kári Halldórsson gæti verið á leið til Vals frá FH. Valsmenn hafa elst við leikmanninn um hríð en Hlíðarendafélagið á þó eftir að semja um kaup og kjör. Íslenski boltinn 25. febrúar 2025 16:01
„Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ „Tilfinningin er mjög góð. Það eru spennandi tímar fram undan. Ég er mjög sáttur,“ segir Gylfi Þór Sigurðsson, nýr leikmaður Víkings. Gylfi var kynntur til leiks í Víkinni í dag. Íslenski boltinn 25. febrúar 2025 14:45
Gylfi orðinn Víkingur Landsliðsmaðurinn í fótbolta, Gylfi Þór Sigurðsson, var kynntur sem nýr leikmaður Víkings á blaðamannafundi í Víkinni í dag. Hann gerði tveggja ára samning við Fossvogsfélagið. Íslenski boltinn 25. febrúar 2025 12:11
Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum Ársþing Knattspyrnusambands Íslands fór fram í dag. Það voru samþykktar nokkrar breytingar á lögum sambandsins. Íslenski boltinn 22. febrúar 2025 15:13
Sindri Kristinn á óskalista KA Lið KA í Bestu deild karla í knattspyrnu er í leit að markverði og horfir nú til FH þar sem Sindri Kristinn Ólafsson er kominn á bekkinn. Íslenski boltinn 20. febrúar 2025 17:29
„Þetta er einstakur strákur“ Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, segir sjónarsvipti vera af Danijeli Djuric sem yfirgaf félagið í vikunni. Þar með fækkar um einn í leikmannahópi Víkinga fyrir stórleik kvöldsins við Panathinaikos í Sambandsdeild Evrópu. Sölvi endurheimtir hins vegar tvo aðra. Íslenski boltinn 20. febrúar 2025 11:30
Barðist við tárin þegar hann kvaddi Danijel Djuric var með leikmannahópi Víkings í Aþenu í vikunni þegar hann þurfti skyndilega að hverfa frá. Hann samdi við lið Istra í Króatíu og við tóku viðburðarríkir tveir sólarhringar. Íslenski boltinn 20. febrúar 2025 10:00
Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? Ég held að það deili enginn um það mat undirritaðs að félagsskipti Gylfa Þórs Sigurðssonar frá Val yfir í Víking í vikunni séu í hópi þeirra allra stærstu í sögu íslenskra knattspyrnu. En þekkjum við stærri félagsskipti hér á Íslandi? Íslenski boltinn 20. febrúar 2025 09:01
„Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, er ánægður með nýjustu kaup Víkinga. Gylfi Þór Sigurðsson varð leikmaður liðsins í gær. Hann er þó með fullan hug við stórleik morgundagsins við Panathinaikos í umspili Sambandsdeildar Evrópu. Íslenski boltinn 19. febrúar 2025 19:01