Af hverju treystir heilbrigðisráðherra ekki sérfræðingum? Læknafélag Íslands hefur nú ályktað að með flutningi rannsóknarhluta krabbameinsskimana í leghálsi séu mikilvæg sérhæfð störf flutt úr landi. Skoðun 18. febrúar 2021 07:31
Stafrænt kynferðisofbeldi nú refsivert: Fjögur prósent landsmanna fórnarlömb slíks ofbeldis Fjögur prósent landsmanna verða fyrir kynferðislegri myndbirtingu eða hótun um slíkt, samkvæmt nýrri skýrslu ríkislögreglustjóra. Aðeins fleiri karlar en konur verða fyrir slíkum brotum. Frumvarp sem tekur á stafrænu kynferðisofbeldi var samþykkt samhljóða á Alþingi í dag. Dómsmálaráðherra vonar að löggjöfin verði til þess að eyða því viðhorfi að slíkt sé í lagi. Innlent 17. febrúar 2021 20:07
„Traustið er laskað“ Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, segir tímabært að skoða hvernig staðið hafi verið að breytingum á fyrirkomulagi leghálsskimunar. Rýna þurfi málið, forsendur og afleiðingar þess. Innlent 17. febrúar 2021 16:59
Lög sem taka á stafrænu kynferðisofbeldi samþykkt Sá sem dreifir í heimildarleysi kynferðislegri mynd, eða mynd sem felur í sér nekt, getur nú átt yfir höfði sér allt að fjögurra ára fangelsi. Frumvarp um kynferðislega friðhelgi var samþykkt á Alþingi í dag með 49 samhljóða atkvæðum allra viðstaddra þingmanna. Innlent 17. febrúar 2021 14:37
Tímarnir breytast og löggjöfin með Í dag samþykkti Alþingi frumvarp dómsmálaráðherra um kynferðislega friðhelgi. Um er að ræða gríðarlega þarfa breytingu á almennum hegningarlögum sem tryggir fullnægjandi réttarvernd kynferðislegrar friðhelgi einstaklinga. Skoðun 17. febrúar 2021 14:30
Eðlilegt að skoða hvort lögregla þurfi frekari valdbeitingarheimildir Skoða þarf hvort lögregla þurfi á ríkari rannsóknar- og valdbeitingarheimildum að halda, segir Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann telur að fara eigi yfir málið í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis. Innlent 17. febrúar 2021 14:13
Vill að forseti Alþingis og forsætisnefnd skoði orðræðu Helga Hrafns Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Miðflokksins, vill að forseti Alþingis og forsætisnefnd taki til skoðunar ummæli Helga Hrafns Gunnarssonar, þingmanns Pírata, um Miðflokkinn. Innlent 17. febrúar 2021 13:36
Ber orðræðu Miðflokksins um útlendingamál saman við gyðingahatur Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, var harðorður í garð þingmanna Miðflokksins vegna umræðu um málefni innflytjenda sem fór fram á Alþingi í dag og kvöld. Sagði hann meðal annars orðræðu þeirra líkjast fordómafullri orðræðu um samkynhneigða á tíunda áratugi síðustu aldar og gyðingahatur. Innlent 16. febrúar 2021 21:02
Miðflokksþingmaður varar við erlendum glæpahópum Karl Gauti Hjaltason þingmaður Miðflokksins varaði við skipulagðri glæpastarfsemi með tengsl til annarra landa á Alþingi í dag. Dómsmálaráðherra segir að brugðist hafi verið við ábendingum lögreglunnar frá undanförnum árum. Innlent 16. febrúar 2021 20:14
Íslenskum ríkisborgurum verði aldrei vísað úr landi Heilbrigðisráðherra segir að íslenskum ríkisborgurum verði aldrei vísað úr landi. Hún telur kröfu um að allir framvísi PCR-prófi áður en þeir koma til landsins standast stjórnarskrá og tekur ekki undir efasemdir sem komið hafa fram þess efnis. Innlent 16. febrúar 2021 15:24
Fast land undir fótum Nýsköpun, rannsóknir, tækni og vísindi eru undirstaða framþróunar hvers samfélags. Þróttur í þessum greinum leiðir til fjölbreytni og þar með fleiri og styrkari stoða í atvinnulífinu. Stoðir sem byggja á hugviti og eiga möguleika á erlendum mörkuðum, skapa verðmæt störf og skila samfélaginu tekjum og stöðugleika. Skoðun 16. febrúar 2021 07:00
Telur að þjálfa þurfi almenna lögreglumenn til að vopnast Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi lögregluþjónn, telur að þjálfa þurfi almenna lögreglumenn til að vopnbúast ef þörf er á. Þessa skoðun sína setur hann í samhengi við manndráp við Rauðagerði í Reykjavík um helgina. Innlent 15. febrúar 2021 18:40
Ríkisrekin elítustjórnmál Sjálftaka stjórnmálaflokkanna úr opinberum sjóðum er orðin svo gegndarlaus að við erum komin inn í nýjan fasa lýðræðistímans, sem kenna mætti við ríkisrekin elítustjórnmál. Skoðun 15. febrúar 2021 13:28
Stjórnarskrá gerð að rifrildismáli Alþingi hefur til meðferðar frumvarp um breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins. Hún var samþykkt með 95% atkvæða í þjóðaratkvæðagreiðslu 1944 með 98% þátttöku. Skoðun 14. febrúar 2021 09:00
Sex prósent landsmanna urðu fyrir barðinu á eltihrelli árið 2019 Eltihrellar mega búast við allt að fjögurra ára fangelsisvist eftir að Alþingi hefur samþykkt sérstök lög um umsáturseinelti. Um sex prósent landsmanna urðu fyrir barðinu á eltihrelli árið 2019. Dómsmálaráðherra segir þetta ofbeldisglæp og eitt mál af þessu tagi sé einu máli of mikið. Innlent 12. febrúar 2021 19:56
Segir skiptar skoðanir um hvort veiðigjald hafi hækkað eða lækkað Sjávarútvegsráðherra segir skiptar skoðanir um hvort veiðigjöld hafi hækkað eða lækkað við lagabreytingu 2018. Það verði alltaf deilur um álagningu gjalda en hann hafi engin áform uppi um að gera breytingar á núverandi lögum. Innlent 12. febrúar 2021 19:01
Lífskjör öryrkja eru þjóðarhneisa Hin kokhrausta ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur margoft lýst því yfir að það séu sjálfsögð manréttindi að bæta hag og lífskjör öryrkja og það sé reyndar ætlunin. Skoðun 12. febrúar 2021 18:15
Katrín vongóð um framgang stjórnarskrárfrumvarps Forsætisráðherra er vongóð um að frumvarp hennar um breytingar á stjórnarskránni fái vandaða meðferð í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og málið nái fram að ganga á Alþingi. Mestur ágreiningur er um auðlindaákvæði frumvarpsins sem Katrín segir ekki bara snúast um fisk. Innlent 12. febrúar 2021 11:24
Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar, hefur sagt sig úr flokknum og frá varaþingmennsku. Hún segir í bréfi sem hún sendi framkvæmdastjórn og stjórn flokksins í dag mikil vonbrigði að uppstillinganefnd Samfylkingarinnar í Reykjavík hafi boðið nýliðum þrjú af fjórum efstu sætum á lista hennar til Alþingiskosninga. Innlent 11. febrúar 2021 21:25
Stjórnarskrárfrumvarp gagnrýnt úr mörgum áttum Forseti Alþingis segir stjórnarskrárfrumvarp Katrínar Jakobsdóttur fela í sér skýrari ákvæði um stöðu þingsins í stjórnskipaninni. Þingmenn eru langt í frá einhuga í afstöðu sinni til frumvarpsins. Innlent 11. febrúar 2021 19:21
Hálfnað er verk… Umræður um stjórnarskrá lýðveldisins eru ekki nýjar af nálinni. Allt frá lýðveldisstofnun hefur fólk haft skoðanir á helstu málum og velt vöngum yfir því hvort stjórnarskráin þjónaði sínum upphaflegu markmiðum, hvort ný markmiðssetning væri tímabær eða hvort allt plaggið ætti að fara í gegnum endurskoðun. Skoðun 11. febrúar 2021 16:01
Fíkn er sjúkdómur! Að sópa rykinu undir teppið er mörgum tamt ef ekki á að þrífa almennilega. Skyndilausnir henta stjórnmálamönnum yfirleitt betur heldur en framtíðarsýn og lausnir sem taka langan tíma. Skoðun 11. febrúar 2021 12:30
Andrés fann samhljóm með Pírötum Andrés Ingi Jónsson, alþingismaður, segist hafa fundið samhljóm með þingmönnum Pírata. Hann hafi skoðað sig vel um og að endingu ákveðið að ganga til liðs við þá. Innlent 10. febrúar 2021 20:23
Óeðlileg völd og áhrif stórra útgerðarfyrirtækja Tíu stærstu útgerðirnar fara með meira en helming kvótans og 20 stærstu meira en 70% kvótans. Ofan á þetta bætist svo eignarhald þessara útgerðarisa í öðrum útgerðum. Skoðun 10. febrúar 2021 20:00
Andrés Ingi genginn til liðs við Pírata Andrés Ingi Jónsson, alþingismaður utan þingflokka sem áður sat á þingi fyrir Vinstri græn, hefur gengið til liðs við þingflokk Pírata. Frá þessu greinir Andrés sjálfur frá nú síðdegis. Innlent 10. febrúar 2021 17:00
Segir auðlindaákvæðistillögu „eins og að setja upp reykskynjara án battería“ Formenn Viðreisnar og Miðflokksins segja ýmislegt við stjórnarskrárbreytingatillögur Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, sem hún hefur lagt fram á þingi, óljóst. Þau telja það bæði varhugavert að tillögurnar séu ekki lagðar fram í sátt eða breiðri samstöðu. Innlent 8. febrúar 2021 10:43
Miðflokkurinn hafi lagt fram þingsályktunartillögu án þess að kynna sér aðstæður Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar segir Ólaf Ísleifsson ekki hafa kynnt sér aðstæður hælisleitenda í Grikklandi við gerð þingsályktunartillögu Miðflokksins. Innlent 7. febrúar 2021 14:01
Vefverslun með áfengi ekki leyfð samkvæmt nýju frumvarpi dómsmálaráðherra Frumvarp Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra um breytingar á áfengislögum, var lagt fram á Alþingi í gær. Innlent 5. febrúar 2021 07:16
Breytingar á sóttvarnalögum samþykktar Frumvarp heilbrigðisráðherra um breytingar á sóttvarnalögum var samþykkt á fimmta tímanum í dag með fjörutíu og sjö samhljóða atkvæðum. Innlent 4. febrúar 2021 17:11
Barnaherbergi komið á Alþingi Barnaherbergi með skiptiaðstöðu hefur verið útbúið á fyrstu hæð þinghússins. Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri Alþingis, segir þetta gott skref í átt að því að gera Alþingi að fjölskylduvænni vinnustað. Innlent 4. febrúar 2021 13:03