Ný tegund hraðamyndavéla á Grindavíkurvegi
Hraðamyndavélar sem mæla meðalhraða ökutækja hafa verið settar upp á Grindavíkurvegi. Vélarnar eru öðruvísi en eldri hraðamyndavélar á landinu. Bæjarstjóri Grindavíkur bindur vonir við að myndavélaeftirlitið dragi úr ökuhraða inn til bæjarins.