Lífið

Sau­tján langveik börn fengu ferða­styrk

Lovísa Arnardóttir skrifar
Á myndinni eru styrkþegar ásamt aðstandendum Vildarbarna við úthlutunina.
Á myndinni eru styrkþegar ásamt aðstandendum Vildarbarna við úthlutunina. Aðsend

Sautján börnum og fjölskyldum þeirra, samtals um 70 manns, var í gær, á fyrsta degi sumars, afhentur ferðastyrkur úr sjóði Vildarbarna Icelandair. Afhendingin fór fram í Icelandair húsinu í Hafnarfirði.

Markmið sjóðsins er að gefa langveikum börnum eða börnum sem búa við sérstakar aðstæður, og fjölskyldum þeirra, tækifæri til þess að fara í draumaferð til útlanda. Í hverjum styrk felst skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess. Allur kostnaður er greiddur – flug, gisting, dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér. Líkt og við úthlutun styrkjanna undanfarin ár afhentu Sambíóin börnunum bíómiða.

„Við erum mjög stolt af Vildarbarnasjóðnum og af því að hafa getað gert draumaferðir fjölda barna að veruleika. Sjóðurinn reiðir sig að miklu leyti á framlög frá viðskiptavinum og velunnurum og erum við afar þakklát fyrir þær góðu viðtökur sem við höfum fengið frá upphafi. Það er ekki sjálfsagt að sjóður sem þessi starfi samfleytt í svo langan tíma en það er að þakka elju Peggy og Sigurðar Helgasonar, einstaklingum og fyrirtækjum sem hafa lagt sjóðnum lið, auk stjórnar og starfsfólks sjóðsins sem hafa unnið frábært starf í gegnum árin,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í tilkynningu.

Ferðasjóður Vildarbarna var stofnaður árið 2003 með það að markmiði að styðja við langveik börn og börn sem búa við sérstakar aðstæður. Úthlutanir eru tvisvar á ári, á sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag. Verndari sjóðsins er frú Vigdís Finnbogadóttir.

Í tilkynningu kemur fram að sjóðurinn er fjármagnaður með stofnframlagi frá Icelandair auk framlaga frá viðskiptavinum Icelandair, fyrirtækjum og einstaklingum. Hjónin Peggy og Sigurðar Helgason hafa einnig setið í stjórn hans og veitt rausnarlegan stuðning. Peggy er iðjuþjálfi og Sigurður er fyrrverandi forstjóri og stjórnarformaður Icelandair.

Sjóðurinn er nú á sínu 22. starfsári og alls hafa yfir 800 fjölskyldur ferðast á vegum hans frá upphafi.

Á myndinni eru styrkþegar ásamt aðstandendum Vildarbarna við úthlutunina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.