Sæmdu hvor aðra Gullmerki KKÍ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. mars 2025 11:30 Birna Lárusdóttir og Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir sæmdu hvor aðra Gullmerki KKÍ. KKÍ Gullmerki Körfuknattleikssambands Íslands voru veitt á ársþinginu á Grand Hótel Reykjavík í gær.
Alls fengu fimm aðilar gullmerki að þessu sinni en það voru þau Erlingur Hannesson, Kristinn Geir Pálsson, Lárus Blöndal, Birna Lárusdóttir og Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir. Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir var þarna enn formaður enda ekki búið að kjósa nýjan formann ennþá. Guðbjörg sæmdi fjóra Gullmerki KKÍ en það var síðan Birna Lárusdóttir sem sæmdi Guðbjörgu Gullmerki sinu. Þær sæmdu því hvor aðra Gullmerki KKÍ. Guðbjörg er fráfarandi formaður og Birna er fráfarandi varaformaður. Báðar hafa þær unnið mikið og gott starf fyrir körfuknattleikshreyfinguna. Guðbjörg hefur þannig verið í stjórn KKÍ í 21 ár, formaður síðustu tvö ár og varaformaður í næstum því öll hin árin. Lárus Blöndal var einnig að hætta í stjórn en hann var annar varaformaður. Hann hefur verið í stjórn KKÍ í tólf ár og formaður mótanefndar í áratug auk þess að vera allt í öllu hjá Valsmönnum. Erlingur Hannesson er faðir Rúnars Inga Erlingsson, þjálfara karlaliðs Njarðvíkur, og hefur unnið mikið starf fyrir bæði Njarðvík og KKÍ. Silfurmerki KKÍ voru einnig veitt á ársþinginu á Grand Hótel Reykjavík en þau fengu Ingvi Þór Hákonarson frá Keflavík, Ásthildur Jónasdóttir frá Hetti, Huginn Freyr Þorsteinsson frá Álftanesi, Kristinn Jónasson frá Haukum, Dagur Þór Baldvinsson frá Tindastóli og Algirdas Slapikas frá Stál-úlfi. Helena Sverrisdóttir fékk líka sértaka viðurkenningu fyrir hennar árangur og framlag til íslensks körfubolta og að vera að auki landseikjahæst með 81 landsleik. Einnig fékk hún afhent silfurmerki sambandsins. View this post on Instagram A post shared by Körfuknattleikssamband Íslands (@kkikarfa) View this post on Instagram A post shared by Körfuknattleikssamband Íslands (@kkikarfa)
KKÍ Mest lesið Eygló verður síðasti Evrópumeistarinn í sögunni Sport Gummi Ben fór hamförum yfir endurkomu United Fótbolti Fjögurra ára strákur gerði allt brjálað í höllinni Sport Brynjar Karl tekur slaginn og segist ætla að bjóða sig fram sem forseta ÍSÍ Körfubolti Bellingham í efsta sæti listans en Ísak Bergmann er áttundi Fótbolti Ætlar að nota krakka í síðustu leikjum Man. United í ensku deildinni Enski boltinn Hefði fengið 20 ára bann fyrir samskonar mál og Sinner Sport Max svaraði Marko fullum hálsi Formúla 1 „Maður er náttúrlega bara í pínu sjokki“ Sport Ítalíudvölin tók á andlegu hliðina: „Vil finna gleðina aftur“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Veðbankar vestanhafs halda með mótherjum Lakers KR einum sigri frá því að komast upp í Bónus-deildina Brynjar Karl tekur slaginn og segist ætla að bjóða sig fram sem forseta ÍSÍ Haiden Palmer kemur aftur til Íslands en nú sem þjálfari Garðabæjargrýla Grindvíkinga hefur stækkað og stækkað í 86 mánuði Lagði egóið til hliðar fyrir liðið „Ég er alltaf stressuð“ Dallas og Miami enn á lífi í umspili NBA „Skitum á okkur í þriðja leikhluta“ „Fáránlega erfið sería“ Háspenna í umspili um sæti í Bónus deildinni Uppgjörið: Haukar - Grindavík 79-64 | Haukar númeri of stórar Svona eru undanúrslitin: Ballið hefst á tvíhöfða annan í páskum Versta úrslitakeppnin í sögu Reykjanesbæjarliðanna Butler og Curry í stuði þegar Golden State komst í úrslitakeppnina Luka fyrstur til að skáka Steph og LeBron í meira en áratug „Holan var of djúp“ „Vissum alveg að við værum í góðum málum“ „Við erum að byggja upp ákveðinn kúltúr“ Uppgjörið: Álftanes - Njarðvík 104-89 | Álftnesingar í undanúrslit í fyrsta sinn Uppgjörið: ÍR - Stjarnan 74-80 | Garðbæingar í undanúrslit Hafa rekið þrjá þjálfara síðan Durant kom til Phoenix Suns „Vorum að veita fría sálfræðihjálp fyrir heilt samfélag“ „Við bara brotnum“ „Eru greinilega lið sem eru betri en við“ „Kominn tími fyrir þá að fara í háttinn“ Uppgjörið: Grindavík - Valur 82-74 | Meistararnir sendir í sumarfrí „Stuðningsmenn Dallas vilja bara ekki fyrirgefa þetta“ Spilaði í sex sekúndur til að missa ekki úr leik Dani komin alla leið í úrslitaeinvígið um titilinn Sjá meira