Lífið

„Dorrit var eigin­lega Séð og heyrt stúlkan“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lilja vann lengi við á blaðinu.
Lilja vann lengi við á blaðinu.

Í síðasta þætti af Sér & heyrt, sagan öll á Stöð 2 var rætt við Lilju Katrín Gunnarsdóttur, blaðamanni og stjórnanda morgunútvarps Bylgjunnar.

Hún starfi lengi á blaðinu og var forsetafrúin Dorrit Moussaieff oft á tíðum til umræðu í tímaritinu.

„Hún elskaði Sér og heyrt,“ segir Lilja og heldur áfram.

„Hún var alltaf til og aldrei feimin en það er mjög minnisstætt á Grímunni þá fór ég ásamt ljósmyndara til að fá allar upplýsingar frá fólki í hverju það væri, frá hvaða merki fatnaðurinn væri. Dorrit vippar bara hálskraganum fram og sýnir mér merkið, og segir kíktu bara á þetta sjálf,“ segir Lilja.

„Hún var alltaf svo frjálsleg og það var alltaf svo gaman. Hún var eiginlega Séð og heyrt stúlkan.“

Um er að ræða sex þætti um sögu Séð & heyrt í 20 ár, í umsjón Þorsteins J. Tveir þættir eftir og eru þeir á dagskrá á sunnudögum klukkan 19:00.

Klippa: „Dorrit var eiginlega Séð og heyrt stúlkan“





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.