Tónlist

Troð­fylltu Iðnó: „Þetta kom okkur al­veg í opna skjöldu“

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Birkir fór mikinn á sviði.
Birkir fór mikinn á sviði.

Það var þakklæti í lofti hjá spenntum tónleikagestum þegar harðkjarnahljómsveitin I adapt steig á svið í Iðnó í desember í síðasta sinn. Uppselt var á tónleikana og gríðarleg stemning. Sveitin kom aftur saman í sumar eftir tólf ára hlé en söngvari sveitarinnar segir almættið eitt geta svarað því hvenær sveitin kemur aftur saman.

„Stemningin var svakalega life affirming, svo maður sletti,“ segir söngvari sveitarinnar Birkir Fjalar Viðarsson hlæjandi í samtali við Vísi. Hann segir að í gamla daga hafi mælistika á góða tónleika verið hversu sturlaðir áhorfendur hafi orðið og hve „illa“ þeir hafi hagað sér. Magnaðar myndir af tónleikunum má skoða neðst í fréttinni.

„En þarna var einhver svona þægileg þakklætisstemning í loftinu. Við fundum vel fyrir því og það má alveg færa rök fyrir því að þarna hafi verið mættar fjórar kynslóðir af tónleikagestum, fólk á aldur við pabba minn, fólk á mínum aldri með börnunum sínum og svo fólk sem er nýskriðið upp í tvítugt.“

Sveitina skipa Birkir Fjalar Viðarsson, Ingi Þór Pálsson, Erling Páll Karlsson, Þorsteinn Gunnar Friðriksson og Gunnar Ingi Jones. Sveitin spilar alvöru harðkjarnapönk og var stofnuð árið 2001. Það sætti mikilla tíðinda þegar sveitin tilkynnti endurkomu sína í sumar en strákarnir stigu á svið á tónleikahátíðinni Sátan í Stykkishólmi svo athygli vakti. Sveitin spilaði líka í tónleikaþáttaröð X-ins 977 Live in a fishbowl.

Alvöru mannlífsgallerí

Birkir segir strákana einstaklega þakkláta sjálfa, það hafi selst upp á tónleikana. „Þetta kom okkur alveg í opna skjöldu. Þetta var alvöru mannlífsgallerí, alvöru stúdía sem okkur þótti rosalega vænt um, að þetta var þvílík flóra af fólki. Það gladdi okkur svo mikið, því að upp á það að gera þá finnst okkur tónlistin okkar meira en bara tónlist ef hún nær að sameina fólk nema ef ekki væri bara þessu einu kvöldstund.“

Hann segir sveitina staðráðna í því að vera sestir í helgan stein, í hið minnsta á þessari stundu. Hún ætli ekki á fullt að nýju, að dæla út nýrri tónlist. En hvenær verða þá næstu tónleikar?

„Almættið eitt veit hvenær það verður. Við erum fjölskyldumenn á virðulegum aldri. Svo á ég svo bágt með að semja texta, mér finnst allir mínir textar svo asnalegir!“ segir Birki hlæjandi að lokum.

Hljómsveitarmeðlimir tilbúnir í fjörið baksviðs.Bowen Staines

Erling Páll Karlsson trommuleikari heldur á svið.Bowen Staines

Birkir segist þakklátur eftir kvöldið.Bowen Staines

Tónleikagestir voru á öllum aldri.Bowen Staines

Alvöru andi hjá Erlingi.Bowen Staines

Ingi Þór Pálsson gítarleikari vígalegur.Bowen Staines

Þorsteinn Gunnar Friðriksson og Gunnar Ingi Jones.Bowen Staines

Sveitin tók meðal annars eitt af sínum frægari lögum, Historical Manipulation.Bowen Staines

Tónleikagestum vel sinnt af öllum á sviði.Bowen Staines

Andi yfir Þorsteini Gunnari Friðrikssyni.Bowen Staines

Alvöru andi.Bowen Staines

Birkir segir kynslóðirnar hafa mæst í Iðnó.Bowen Staines

Sveitin nýtti tónleikastaðinn vel.Bowen Staines





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.