Viðskipti innlent

Kort­leggja tómar í­búðir í sam­starfi við sveitar­fé­lög

Lovísa Arnardóttir skrifar
Akureyrarbær er eitt þeirra sveitarfélaga sem mun kortleggja tómar íbúðir með HMS.
Akureyrarbær er eitt þeirra sveitarfélaga sem mun kortleggja tómar íbúðir með HMS. Vísir/Tryggvi

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS, ætlar að bregðast við ábendingum frá sveitarfélögum um fjölda tómra íbúða. Í nýrri mánaðarskýrslu stofnunarinnar sem kom út í dag kom fram að á landinu væru um tíu þúsund tómar íbúðir. Það væri um 6,5 prósent allra fullbúinna íbúða. Sum telji að fjöldinn sé ofáætlaður og önnur telji hann vanáætlaðan.

„HMS mun bregðast við ábendingunum með því að efna til nánari könnunar á því hvernig notkun íbúðanna sé háttað,“ segir í tilkynningunni.

Í tilkynningu HMS segir að farið verði nánar yfir þær íbúðir þar sem engar upplýsingar liggja fyrir um langtímabúsetu til að áætla betur nýtingu þeirra. Í einhverjum tilfellum geti verið um ofmat á tómum íbúðum að ræða, þar sem í sumum þeirra gæti til dæmis verið fólk í langtímaleigu án skráðs leigusamnings. Í öðrum tilfellum geti verið um vanmat að ræða, þar sem HMS áætlar íbúð á hverja fjölskyldu sem er ekki með skráð lögheimili í íbúð, en sumar þessara fjölskyldna gætu búið í atvinnuhúsnæði eða sumarhúsum.

HMS segir að í samstarfi við ákveðin sveitarfélög muni fara fram kortlagning. Það eru Akureyrarbær, Skagafjörður, Mýrdalshreppur og Norðurþing. Í kjölfarið mun HMS svo birta endurbætta tölfræði um nýtingu íbúða.

Þróun nýs mælikvarða

HMS segir að um sé að ræða nýja greiningu sem sé ætlað að áætla nýtingu íbúða. Í skýrslunni komi fram mat á „tómum“ íbúðum sem eru íbúðir sem HMS telur að séu ekki nýttar til langtímabúsetu. Þeirra á meðal eru nýjar og óseldar íbúðir, en einnig gætu þar verið um að ræða íbúðir sem nýttar eru til skammtímaútleigu og orlofsíbúðir þar sem eigendur hafa ekki fasta búsetu. Samkvæmt matinu eru yfir tíu þúsund íbúðir á landinu öllu sem falla undir þessa skilgreiningu.

HMS segir það hluta af þróun nýrra mælikvarða eins og þessa að skoða tölurnar í samhengi við fleiri gögn til að hægt sé að átta sig á undirliggjandi ástæðum fyrir þeim niðurstöðum sem mælingarnar gefa. HMS hvetur öll sveitarfélög sem telja hugsanlegt að tölur um tómar íbúðir séu ekki í samræmi við raunverulega nýtingu húsnæðisins til að koma gögnum á framfæri við stofnunina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×