Körfubolti

„Löngu kominn tími til að fara á EuroBasket“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Tryggvi í baráttunni í leik Íslands við Tyrkland.
Tryggvi í baráttunni í leik Íslands við Tyrkland. Serhat Cagdas/Anadolu Agency via Getty Images

Tryggvi Snær Hlinason er klár í slaginn fyrir leik Íslands við Ítalíu í undankeppni EuroBasket á næsta ári. Liðin mætast í Laugardalshöll í kvöld.

Tryggvi leikur með liði Bilbao á Spáni en hann skipti til liðsins á síðasta ári frá Zaragoza. Hann nýtur sín vel í Baskalandi.

„Það gengur ágætlega í deildinni til þessa. Við erum svo sem búnir að tapa nokkrum leikjum núna í röð en fyrir utan það er þetta bara gott. Bilbao er næs og liðið gott,“ segir Tryggvi og bætir við:

„Það gengur vel, persónlega sérstaklega. Þetta hafi verið 3-4 leikir sem við höfum misst frá okkur. Leiki sem maður ætti að vinna en missum frá okkur í lokin. Það er leiðinlegt en ég treysti á að við höldum áfram að róa í sömu átt og vinnum fleiri leiki.“

Tryggvi verður með landsliðinu sem mætir Ítalíu í höllinni í kvöld. Strákarnir þekkja ágætlega til enda unnu þeir frækinn sigur á Ítölum í Ólafssal fyrir örfáum árum og svipað ítalskt lið sem mætir til leiks í kvöld.

„Við vitum alveg hverju við eigum að búast við. En Ítalirnir að einhverju leyti þekkja okkur líka og við gerum ráð fyrir að þeir mæti brjálaðir hérna eftir síðasta leik hér heima,“ segir Tryggvi.

Klippa: „Löngu kominn tími til að fara á EuroBasket“

Ísland er með þrjú stig eftir sigur á Ungverjum og naumt tap fyrir Tyrkjum ytra í fyrstu tveimur leikjum riðilsins í mars. Þrjú lið af fjórum fara á EM á næsta ári og Tryggvi segir tíma kominn til, enda Ísland verið nærri stórmótasæti síðustu ár, en ekki komist á lokamót frá 2017.

„Það eru náttúrulega bara tveir leikir búnir og liðin á svipuðum stað. Þetta var mjög grátlegt þarna í Tyrklandi, að tapa svona stórum leik úti. Svona er bara körfuboltinn, þetta er bæði fallegt og leiðinlegt. En það er bara gott að spila aftur við Ítalina hérna heima,“

„Ég held það sé löngu kominn tími til að fara á EuroBasket. Ég held það séu sjö eða átta ár síðan við fórum síðast og það er löngu kominn tími til að fara aftur,“ segir Tryggvi.

Viðtalið má sjá að ofan.

Leikur Íslands og Ítalíu hefst klukkan 19:30 og verður lýst beint á Vísi.


Tengdar fréttir

Gafst upp á að læra frönskuna

Styrmir Snær Þrastarson nýtur lífsins í atvinnumennskunni í Belgíu. Hann undirbýr sig ásamt landsliði Íslands fyrir komandi leiki við Ítalíu í undankeppni EM 2025.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×