Lífið

Svava Rós og Hin­rik eiga von á dreng

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Svava Rós Guðmundsdóttir.
Svava Rós Guðmundsdóttir. Vísir/Getty

Svava Rós Guðmundsdóttir landsliðskona í fótbolta og unnusti hennar, Hinrik Hákonarson, eiga von á dreng. Um er að ræða þeirra fyrsta barn saman. Parið greinir frá gleðitíðindunum á Instagram.

„Hálfnuð með strákunum mínum,“ skrifar Svava Rós við færsluna.

Svava Rós er leikmaður bandaríska félagsins Gotham sem er með bækistöðvar sínar í New Jersey. Gotham var áður þekkt sem Jersey Sky Blue og er eitt af stofnfélögum NWSL-deildarinnar sem er ein besta atvinnumannadeild heims.

Svava er 29 ára gömul og á að baki 47 A-landsleiki. Hún hóf meistaraflokksferil sinn með Val en lék einnig með Breiðabliki hér á landi áður en hún flutti til Noregs til að spila með Röa árið 2018. Þá hefur hún hefur einnig leikið með Kristianstad, Bordeaux, Brann og Benfica.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.