Lífið

Fólkið sem fer yfir tíu tonn af fatnaði á dag

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sigrún Ósk var fluga á vegg hjá Rauða krossinum.
Sigrún Ósk var fluga á vegg hjá Rauða krossinum.

Í Skútuvogi í Reykjavík fer fram flokkun á því sem Fatasöfnun Rauða krossins berst, en að meðaltali rúlla tíu þúsund kíló af fatnaði og textíl þar í gegn á hverjum einasta degi.

„Það er nóg til af notuðum fötum, eða um 2500 tonn á ári af textíl,“ segir Guðbjörg Rut Pálmadóttir, teymisstjóri í fataverkefni Rauða krossins, í Íslandi í dag á Stöð 2 í vikunni.

Óhreinn fatnaður og ónýtur fer í eina körfu - hann á þó enn séns á að komast aftur í hringrásina erlendis þangað sem hann er seldur. Aðalmálið er þó að finna fatnað sem hægt er að selja í einhverri af nítján verslunum Rauða krossins hér heima, en þær eru ein mikilvægasta fjáröflunarleið samtakanna.

Guðrún rakst á lopapeysu þegar hún fór í gegnum fötin með Sigrúnu Ósk sjónvarpskonu.

„Þetta eru gríðarleg verðmæti fyrir okkur. Ferðafólk er mjög spennt fyrir því að kaupa íslenskan lopa. Það selst allt af lopanum, kjólar seljast og barnaföt en það mætti seljast meira af barnafötum því við fáum gríðarlegt magn,“ segir Guðbjörg.

Haldi fólk að tilviljun ráði því hvað er í búðunum hverju sinni þá er það misskilningur. Hér vita starfsmenn nákvæmlega hvað selst og hvenær. Föt eru flokkuð í ákveðna bunka árið um kring og þau sett í búðirnar á hárréttum tíma.

„Núna eru jólin að skella á og þá erum við að setja allar jólapeysurnar af stað. Bleikur október er nýliðin og þá söfnum við einhverju bleiku og höfum það tilbúið,“ segir Elsa Vestmann Kjartansdóttir, samfélagsmiðlastjóri hjá fatabúðum Rauða krossins.

„Stundum erum við með eitthvað til hliðar sem við ætlum að rannsaka betur, ef það er til að mynda merkjavara hvort hún sé ekta og hvað hún kostar á eBay, en við erum alltaf með hana miklu ódýrari en á eBay.“

Sigrún leit einnig við í verslun Rauða krossins í Kringlunni og fékk að skyggnast fyrir hvað sé til sölu þar en hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.