Lægir en næsta lægð nálgast úr suðri Atli Ísleifsson skrifar 6. nóvember 2024 06:50 Hiti á landinu verður á bilinu eitt til átta stig. Vísir/Vilhelm Það er suðvestanátt á landinu, hvasst norðantil fram eftir morgni en lægir síðan. Næsta lægð nálgast úr suðri í kvöld með vaxandi austanátt og rigningu, fyrst sunnanlands.
Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Þar segir að það verði smáskúrir vestanlands í dag en annars bjart veður. Hiti verður á bilinu eitt til átta stig. „Í kvöld nálgast næsta lægð úr suðri með vaxandi austanátt og rigningu, fyrst sunnanlands. Á morgun fer lægðin norður skammt fyrir vestan land. Henni fylgir hvöss sunnanátt með rigningu og hlýindum, en þurru veðri á norðaustanverðu landinu. Suðvestan stormur eða rok norðan heiða seint á morgun, en töluvert hægari syðra. Úrkoman fer yfir í skúri eða slydduél og það kólnar í veðri. Næstu daga er útlit fyrir umhleypingasamt veður áfram,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Sunnan 15-23 m/s og rigning, en úrkomulítið á norðaustanverðu landinu. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast norðaustantil. Dregur úr vætu síðdegis, fer að lægja sunnan- og vestanlands og kólnar. Á föstudag: Suðlæg átt 3-10 og stöku skúrir eða slydduél, hiti 1 til 6 stig. Bjart veður á Norður- og Austurlandi með hita í kringum frostmark. Vaxandi suðaustanátt um kvöldið. Á laugardag: Suðaustanátt og rigning með köflum, en úrkomulítið norðanlands. Hiti 4 til 10 stig. Á sunnudag: Snýst í vestanátt með rigningu, en slyddu eða snjókomu til fjalla. Hiti 2 til 7 stig. Á mánudag og þriðjudag: Útlit fyrir sunnanátt með rigningu og hlýindum.
Veður Mest lesið Lést í umferðarslysi við Álfabakka Innlent Tuttugu og þrjár konur stíga fram og fórnarlömb raðnauðgara talin á sjöunda tug Erlent „Auðvitað lét ég hann heyra það“ Innlent Þingkonur þjarma að heilbrigðisráðherra Innlent Flugmaðurinn sem týndi herþotu tjáir sig Erlent Erlendir ferðamenn gripnir glóðvolgir Innlent Þurfa ekki að skila Stálskipaauðnum Innlent Handtökur hér á landi þegar stór barnaníðssíða var tekin niður Innlent „Þetta er bara brandarakvöld“ Innlent Stöðumælaverðir lausir við ákvörðun um sekt Innlent Fleiri fréttir Síðasta lægðin í bili gengur norður yfir landið Víða snjókoma, slydda eða rigning í nótt Dregur úr vindi þegar líður á daginn Sundgestir reknir inn vegna þruma og eldinga Hlýnandi veður Veðurviðvaranir um helgina Góður möguleiki á að sjá deildarmyrkva Snjókoma sunnantil eftir hádegi Stöku skúrir eða slydduél sunnan heiða Vindasamt á meðan öflugt úrkomusvæði gengur yfir landið Suðvestanátt með skúrum víða um land Vindasamt og úrkomusvæði gengur yfir landið Slydda eða snjókoma með köflum í flestum landshlutum Með rólegasta móti Skúrir og slydduél sunnan- og vestantil Rigning sunnan- og vestantil og kólnar síðdegis Dálítil væta og bætir í vind Hæg suðlæg átt og hiti að tíu stigum Mild sunnanátt og dálítil væta Væta af og til Íbúar á austari hluta landsins gætu séð til tunglmyrkvans Norðlæg átt en bjart að mestu sunnanlands Hiti að tíu stigum en víða næturfrost Vestlæg átt leikur um landið Víða allhvass vindur norðantil síðdegis Yfirleitt hægur vindur en allvíða él Breytileg átt og einhver él á sveimi Rólegt veður næstu daga Vindasamt og rigning Gul viðvörun á Vestfjörðum í kvöld og nótt Sjá meira