Innherji

Vís­bendingar um að mælda verð­bólgan sé að „megninu til gamalt vanda­mál“

Hörður Ægisson skrifar
„Mælingin er heilt yfir nokkuð góð og ætti ekki að standa í vegi fyrir frekari vaxtalækkun í nóvember,“ að mati Greiningar Arion banka, en meginvextir bankans standa núna í níu prósent. 
„Mælingin er heilt yfir nokkuð góð og ætti ekki að standa í vegi fyrir frekari vaxtalækkun í nóvember,“ að mati Greiningar Arion banka, en meginvextir bankans standa núna í níu prósent.  Vísir/Vilhelm

Undirliggjandi verðbólguþrýstingur heldur áfram að lækka og nýjasta verðbólgumælingin, sem sýndi hana fara niður í 5,1 prósent, er „heilt yfir“ nokkuð góð og ætti að þýða að peningastefnunefnd getur haldið áfram með vaxtalækkunarferlið þegar hún kemur saman í nóvember, að mati hagfræðinga Arion banka. Ef litið er á verðbólguhraðann undanfarna þrjá mánuði er hún á ársgrundvelli komin í markmið Seðlabankans sem er vísbending um að mæld verðbólga núna sé að stórum hluta „gamalt vandamál.“


Tengdar fréttir

Kíló­metra­gjaldið fer inn í vísitöluna og krafa verð­tryggðra ríkis­bréfa lækkar

Fyrirhuguð upptaka kílómetragjalds á öll ökutæki í staðinn fyrir olíugjald verður tekið með í útreikninga á vísitöluneysluverðs, staðfestir Hagstofan, en óvissa hefur verið meðal markaðsaðila hvernig stofnunin myndi meðhöndla útfærslu á þeirri breytingu. Ávöxtunarkrafa stuttra verðtryggðra ríkisbréfa hefur lækkað skarpt í morgun þar sem nú er ljóst að mæld verðbólga verður hærri en ella í upphafi næsta árs vegna ákvörðunar Hagstofunnar.

Verð­bólgu­hjöðnun í kortunum sem gæti opnað á stóra vaxta­lækkun í nóvember

Nokkuð skiptar skoðanir eru á meðal greinenda og hagfræðinga hversu hratt verðbólgan mun halda áfram að ganga niður þegar mælingin fyrir október verður kunngjörð síðar í vikunni, sú síðasta áður en peningastefnunefnd Seðlabankans kemur saman í næsta mánuði. Gangi bjartsýnustu spár eftir um að árstaktur verðbólgunnar muni lækka niður í fimm prósent ætti það að auka líkur á að Seðlabankinn telji forsendur til að íhuga að minnsta kosti 50 punkta vaxtalækkun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×