Lífið

Tóm hamingja hjá for­setanum

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Það var stemning hjá Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra Hafnarfjarðarbæjar og þeim Gunna Helga og Karli Ágústi Úlfssyni.
Það var stemning hjá Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra Hafnarfjarðarbæjar og þeim Gunna Helga og Karli Ágústi Úlfssyni.

Gleðin var við völd á föstudagskvöld þegar Gaflaraleikhúsið frumsýndi leikverkið Tóm hamingja. Um er að ræða verk sem leiki er á tveimur sviðum í einu og skipta áhorfendur um sal í hléi.

Það var margt um manninn á frumsýningunni eins og myndirnar hér fyrir neðan bera með sér. Forsetahjónin létu sig ekki vanta og heldur ekki Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Verkið er sýnt í Borgarleikhúsinu þar sem Gaflaraleikhúsið er nú tímabundið með starfsemi.

Verkið er gleðisprengja þar sem öllum er haldið á tánum, leikurum jafnt sem áhorfendum. Vinahópurinn ákveður að taka smá inngrips partý upp í bústað um áramótin. Þau hafa þungar áhyggjur af Hjálmari sem virðist alveg vera að missa af hamingjulestinni. Hann er óvirkur á samfélagsmiðlum og hættur að drekka sem er klárlega merki um alvarlegt þunglyndi. Því ákveður vinahópurinn að hjálpa. Þessi áramót eiga að vera tóm hamingja svo Hjálmar sjái ljósið á ný.

Forsetahjónin ásamt gaflaranum Gunna Helga.

Kári ásamt móður sinni Berglindi, sem oftast er kennd við Festival.

Elín Reynis og fólk í sínu fínasta dressi.

Vilberg Andri Pálsson, Jakob Van Oosterhout leikarar, Einar Baldvin Brimar leikskáld og Sara Sól Sigurðardóttir búningahönnuður.

Ástrós Signýjardóttir fréttakona og Auðunn Sölvi Hugason ungleikari.

Karl Ágúst og Ágústa Skúladóttir leikstjóri.

VÆB bræðurnir Hálfdán og Matti.

Björk Jakobs og Ágústa Skúla, prímusmótorarar Gaflaraleikhússins.

Björn Sigurðsson stjórnarformaður Gaflaraleikhússins og Aðalbjörg Óladóttir.

Kolbrún María Másdóttir, Krakkafréttaritari og aðstoðarleikstjóri.

Mikael Emil Kaaber og Svala Davíðs.

Máni Svavarsson, Björk Jakobsdóttir leikstjrí TH, Eydís Elva Örnólfsdóttir,Berglind og Sara Sól Sig.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×