Samstarf

Jóla­gjöf sem hefur slegið í gegn - Dineout gjafa­bréf

Dineout

Dineout gjafabréf er frábær jólagjöf sem sló öll met í fyrra og mörg fyrirtæki hafa valið að gefa matarupplifun í jóla- og tækifærisgjafir í ár. 

Drykkur á einum stað og matur á öðrum fyrir sama gjafabréf

Dineout gjafabréf er frábrugðið öðrum rafrænum gjafabréfum að því leytinu til að handhafi getur notað sama gjafabréfið hjá mörgum samstarfsaðilum sem og notað það í gegnum snjallveskið (e.wallet) í símanum.

Handhafi getur því farið í drykk á einum stað og notað það svo í kvöldverð á öðrum stað. Í dag eru samstarfsaðilar yfir 300 veitingastaðir, hótel, barir, ísbúðir o.fl. og eykst fjöldi samstarfsaðila á hverjum degi. 

Flottustu veitingastaðir og hótel landsins eru samstarfsaðilar Dinout og má þar nefna Grillmarkaðinn, Fiskfélagið, Monkeys, KOL, Brút, Steikhúsið, SÓL, Hótel Keflavík, Íslandshótel, Berjaya Iceland Hotel Collection, og Center Hotels. Hægt er að skoða fleiri samstarsfaðila á dineout.is/gjafabref

Gjafabréfin ýmist rafræn eða útprentuð

Dineout býður fyrirtækjum upp á margskonar leiðir í framkvæmd á afhendingu gjafabréfanna meðal annars er vinsæl lausn fyrir fjölmenna vinnustaði að senda út rafræn gjafabréf með sér lendingarsíðu þar sem starfsmaður auðkennir sig með símanúmeri til að nálgast gjafabréfið í snjallsímaveskið. 

Lítil og meðalstór fyrirtæki kjósa oft seinni valkostinn og vilja gefa útprentuð gjafabréf í fallegri gjaföskju, hvort sem það er Dineout gjafaaskja eða gjafabréfið sett með í matarkörfu.

Hægt að útbúa gjafabréfin með eigin grafík

Hægt er velja hvaða verðflokk sem er en flestir taka frá 15.000 kr til 60.000 kr. Stór fyrirtæki hafa líka verið að gera sína eigin grafík og fá þá QR kóða frá Dineout og útbúið gjafaöskjur í sínu vörumerkja-útliti.

Nú er bara að velja hvað fer í jólapakkann á þínum vinnustað - en eitt er víst að matarupplifun í jólapakkann klikkar ekki.

Í desember verður Dineout með bás í Kringlunni þar sem hægt verður að kaupa Dineout gjafabréf og fá afhent í fallegri gjafaöskju.

Fyrir nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við söludeild Dineout dineout@dineout.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×