Lífið

„Ef ég á að vera hrein­skilin þá var þetta bara svæsið ein­elti“

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Dagbjört á ferðalagi með fjölskyldu sinni í æsku. Hún segist hafa verið lögð í svæsið einelti sem barn og alltaf upplifað sig öðruvísi.
Dagbjört á ferðalagi með fjölskyldu sinni í æsku. Hún segist hafa verið lögð í svæsið einelti sem barn og alltaf upplifað sig öðruvísi. Dagbjört Andrésdóttir

Dagbjört Andrésdóttir, 33 ára söngkona, greindist með svokallaða heilatengda sjónskerðingu fyrir sjö árum. Greiningin færði henni svör við fjölmörgum spurningum sem höfðu ásótt hana frá barnæsku. Við heyrðum sögu Dagbjartar í Íslandi í dag í vikunni.

Dagbjört fæddist tveimur mánuðum fyrir tímann og fæðingarsaga hennar er vægast sagt brösuleg, eins og hún lýsir í Íslandi í dag. Þegar Dagbjört eltist varð ljóst að ekki var allt með felldu. Hún er með sjóntaugarýrnun og greindist með heilalömun, sem stundum er einnig kölluð CP-hreyfihömlun. 

Hún er einnig greind á einhverfurófi og níu ára var hún jafnframt greind með reikniblindu. En Dagbjört er ekki endilega á því í dag að þær greiningar séu allar réttar. Það sé dæmigert að fólk, sem reynist vera með heilatengda sjónskerðingu, sé fyrst greint með eitthvað annað. Og uppvöxturinn var alls enginn dans á rósum.

„Ef ég á að vera hreinskilin þá var þetta bara svæsið einelti. Ég passaði aldrei inn í hópinn, var alltaf öðruvísi, gat aldrei leikið mér við hina krakkana eða gert eins og þau gerðu. Þetta var mjög svæsið einelti eiginlega alla grunnskólagönguna,“ segir Dagbjört.

Viðtalið við Dagbjörtu má horfa á í heild sinni hér fyrir neðan. Þar fer hún yfir aðdraganda greiningarinnar, kynni sín af Gordon Dutton skoskum prófessor, foreldramissinn, sönginn og heimildamyndina Acting normal with CVI sem gerð var um líf hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×